Fréttir
31. Ágúst 2007 | ÚTVEGURINN
Ágiskanir duga ekki.
Skoðun Friðriks J. Arngrímssonar í Fiskifréttum 31. ágúst 2007
Þau merkilegu tíðindi bárust
fyrir skömmu að þýski togarinn Kiel hefði mokveitt þorsk við
Austur-Grænland nú í ágústmánuði. Jafnframt kom fram hjá
skipstjóra togarans að um stórþorsk hefði verið að ræða og að svo
virtist sem mikið væri af honum. Einnig kom fram að hann
hefði líka orðið var við smærri fisk en að sjálfsögðu lagt sig
eftir þeim stærri. Þessar fréttir koma í framhaldi af fréttum í vor
um þorsk á grálúðuslóð djúpt vestur af Íslandi og fyrri fréttum af
góðum þorskafla fyrr í ár og í fyrra við Austur-Grænland, en á
öðrum árstíma. Þá er þess að minnast að mun meira gekk af vænum
þorski til hrygningar við Ísland í vetur en undanfarin ár.
30. Ágúst 2007 | ÚTVEGURINN
Vísbendingar um að hrefnum hafi fækkað við landið
Breyting á lífríkinu nærtækasta skýringin
Í gær,
fimmtudaginn 30. ágúst, var frétt í Ríkisútvarpinu sem byggð
var á viðtali við Ásbjörn Björgvinsson, formann
hvalaskoðunarsamtaka Íslands, þar sem hann hélt því fram að
vísindaveiðar á hrefnu hefðu haft þau áhrif að hrefnu hafi fækkað á
þeim svæðum sem hvalaskoðun er stunduð.
8. Ágúst 2007 | ÚTVEGURINN
Yfirlýsing um ábyrgar fiskveiðar
Yfirlýsing um ábyrgar
fiskveiðar sem ætlað er að mæta þörfum innkaupaaðila sjávarafurða
erlendis var í gær undirrituð á kynningarfundi sem haldinn var í
Fiskmarkaði Íslands við Grandagarð. Sjávarútvegsráðherra,
forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar, Fiskistofustjóri og formaður
Fiskifélags Íslands skrifuðu undir yfirlýsinguna, en á fundinum var
einnig farið yfir hver gætu orðið næstu skref í tengslum við gerð
staðla og vottun fyrir íslenskan sjávarútveg.













