Fréttir
11. Júlí 2007 | ÚTVEGURINN
Að ákæra og dæma í beinni
Grein eftir Friðrik J. Arngrimsson, framkvæmdastjóra LÍÚ, sem birtist á visir.is og í Fréttablaðinu 10. júlí 2007
Fjömiðlamönnunum Jóhannesi Kr.
Kristjánssyni og Kristni Hrafnssyni eru það nokkur vonbrigði að
undirritaður skuli hafa gagnrýnt efnistök í Kompásþætti sem sýndur
var 6. maí s.l. og fréttaumfjöllun í kjölfar þáttarins í grein sem
birtist í Fiskifréttum. Lýsa þeir þessu yfir í blaðagrein hinn 18.
júní.
11. Júlí 2007 | ÚTVEGURINN
Skerðing þorskafla meiri vegna línuívilnunar
Skerðing aflamarks í þorski
vegna línuívilnunar hefur aukist hlutfallslega vegna minni
þorskafla. Afla- og krókaaflamark hefur verið skert sem nemur
3.375 tonnum í þorski vegna svokallaðrar línuívilnunar óháð því
hver er leyfilegur heildarafli fiskveiðiársins. Ef engar breytingar
verða gerðar mun hlutdeild línuívilnunar fara úr 1,65%
fiskveiðiárið 2004/2005, í 2,60% af heildarafla á komandi
fiskveiðiári 2007/2008. Þetta þýðir að ákveðinn hópur tekur
ekki á sig sömu skerðingar og aðrir og felur þannig í sér grófa
mismunun.
10. Júlí 2007 | ÚTVEGURINN
Rangir slægingarstuðlar leiða til vaxandi umframafla
Afli á línu og handfæri vanreiknaður um 2300 tonn á síðasta fiskveiðiári.
Fiskveiðiárið 2005/2006 nam vanreikningur á lönduðum línu- og handfæraafla um 2.300 tonnum, en netaafli var hins vegar ofreiknaður um 200 tonn. Orsökin er sú að frádráttur vegna slógs þegar fiski er landað óslægðum er of mikill þegar um er að ræða handfæra- og línuafla en of lítill þegar um er að ræða netaafla. Þetta veldur því að tölur um landaðan afla eru rangar, of lítill afli er dreginn frá aflamarki í krókaveiðum en of mikill í netaveiðum.
9. Júlí 2007 | ÚTVEGURINN
Ákvörðun ráðherra um leyfilegan heildarafla á næsta fiskveiðiári
Fréttatilkynning frá sjávarútvegsráðuneyti um afla og aðgerðir vegna samdráttar í þorskafla
Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla á næsta fiskveiðiári, 2007-2008. Jafnframt eru kynntar tillögur sjávarútvegsráðuneytisins til aðgerða vegna verulegra breytinga á leyfilegum heildarafla í þorski milli ára.
2. Júlí 2007 | ÚTVEGURINN
Tillögur LÍÚ vegna ráðgjafar Hafrannsóknastofnunarinnar
Tillögur Landssambands íslenskra útvegsmanna vegna ráðgjafar Hafrannsóknastofnunarinnar um 130 þúsund tonna aflamark í þorski fiskveiðiárið 2007/2008.
Landssamband íslenskra útvegsmanna deilir ekki við Hafrannsóknastofnunina um að þorskstofninn er of lítill og að nauðsynlegt er að byggja hann upp. Þá hefur nýliðun verið léleg frá 2001 sem mótar framvindu í stofnstærð og veiðimöguleika á næstu árum. Eins er þorskurinn léttari en æskilegt væri, væntanlega aðallega vegna þess að loðnan hefur ekki haldið sig á hefðbundinni slóð hans á undanförnum árum og vegna þess að loðnustofninn er ekki nægjanlega sterkur. Mikil aukning hvala hefur áhrif á afrán þeirra á loðnu og þorski en áætlað er að þeir taki á milli eina og tvær milljónir tonna af loðnu á ári og umtalsvert magn af þorski.













