Fréttir
29. Júní 2007 | ÚTVEGURINN
Hrygg eða lambalæri á sunnudögum

Skoðun Sveins Hjartar Hjartarssonar í Fiskifréttum 29. júní 2007
Maður hefur það á tilfinningunni að ef illa liggur á sumum álitsgjöfum í samfélaginu beini þeir spjótum sínum að sjávarútveginum. Fjölmiðlaumræðan undanfarna áratugi um sjávarútveginn hefur oft verið óvægin og illskeytt.
15. Júní 2007 | ÚTVEGURINN
Tillögur um 15 þúsund tonna úthafskarfaafla í Síldarsmugunni samþykktar á aukafundi NEAFC
Aukafundi
Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar, NEAFC lauk í
gærkvöldi. Á fundinum var m.a. fjallað um veiðar á
úthafskarfa í Síldarsmugunni. Að mati Alþjóða
hafrannsóknaráðsins, ICES er stofninn í slæmu ástandi og lagt hefur
verið til af þess hálfu að engar beinar veiðar verði stundaðar, en
á síðasta ári voru veidd 27.000 tonn af úthafskarfa í
Síldarsmugunni. Niðurstaða fundarins nú var sú að leyfa veiðar
á 15.000 tonnum á tímabilinu 1. september 15. nóvember 2007
12. Júní 2007 | ÚTVEGURINN
Viðmiðunarverð ýsu lækkar um 5% og á karfa um 7%
Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna ákvað á fundi sínum þann 7. júní 2007 að lækka viðmiðunarverð í beinum viðskiptum með ýsu um 5,0% og karfa um 7,0%. Viðmiðunarverð í þorski er óbreytt. Ákvörðunin tók gildi 11. júní 2007.
12. Júní 2007 | ÚTVEGURINN
Heildarskerðing nemur rúmum 12.000 tonnum
Úthlutun vegna byggðakvóta, línuívilnunar og bóta vegna skel og rækju
Yfir þrjú hundruð fyrirtæki þurfa að sæta því að aflaheimildir þeirra séu skertar um rúmlega 4,7% vegna byggðakvóta, línuívilnunar og bóta vegna skel og rækjubáta, en úthlutun stendur nú yfir fyrir yfirstandandi fiskveiðiár. Þær tegundir sem er verið að úthluta í tengslum við þessar millifærslur eru þorskur, ýsa, ufsi og steinbítur. Heildarúthlutun í þessum tegundum nemur 270.065 þorskígildistonnum, en skerðingin sem útgerðarfyrirtækin verða fyrir nemur 12.280 þorskígildistonnum.
7. Júní 2007 | ÚTVEGURINN
Umhverfismerkingar og fiskveiðiráðgjöf í brennidepli
Fundur í London með smásöluaðilum og helstu stórkaupendum á fiski
Sendiráð Íslands í
London ásamt LÍÚ og helstu sölufyrirtækjum íslenskra sjávarafurða
stóðu í gær, 6. júní, fyrir fundi með fulltrúum allra helstu
fiskkaupenda og smásöluaðila í Bretlandi. Fundinn sat einnig
sjávarútvegsráðherra, Einar K. Guðfinnsson og aðstoðarmaður
utanríkisráðherra, Kristrún Heimisdóttir.
5. Júní 2007 | ÚTVEGURINN
Tekið verði á vanda í stjórn peningamála og hagstjórn
Framkvæmdastjórn SA fundar með forsætisráðherra og utanríkisráðherra
Framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins átti í gær fund með forsætisráðherra og utanríkisráðherra til að leggja áherslu á að ríkisstjórnin taki þegar á þeim vanda sem stjórn peningamála og hagstjórnin hefur ratað í. Aðgerðir Seðlabankans skaði atvinnulíf án þess að skila árangri á móti og að bankinn muni ekki að óbreyttu um fyrirsjáanlega framtíð eiga möguleika á því að lækka vexti.
Framkvæmdastjórnin afhenti forsætisráðherra bréf þar sem þessum sjónarmiðum er lýst.
4. Júní 2007 | ÚTVEGURINN
Seðlabankinn verður að lækka stýrivexti sína strax
Ávarp Björgólfs Jóhannssonar á
Sjómannadag í Reykjavík 2007.
Ef farið yrði í öllu að ráðgjöf stofnunarinnar þýddi það að útflutningstekjur sjávarútvegsins lækkuðu um 25 milljarða króna sem er um 20% af útflutningstekjum ársins 2006. Öllum ætti að vera ljóst að hér er um grafalvarlegt mál að ræða. Þó að það kunni að vera skynsamlegt að draga eins mikið úr þorskveiðum og Hafró leggur til þannig að stofninn byggist hraðar upp þá sé ég ekki að við getum farið að þessari ráðgjöf þegar tekið er tillit til allra þátta.
3. Júní 2007 | ÚTVEGURINN
Tilllögur um mikinn samdrátt í þorskveiðum
Hafrannsóknastofnunin hefur kynnt veiðiráðgjöf fyrir fiskveiðiárið 2007/2008. Stofnunin leggur til að dregið verði verulega úr veiðum á þorski, en vegna bágs ástands uppvaxandi árganga er lagt til að afli næsta fiskveiðiárs verði takmarkaður við 130 þús. tonn. Stofnar ýsu og ufsa eru í góðu ástandi, þó að mælt sé með að ufsaafli minnki miðað við yfirstandandi fiskveiðiár. Haustið 2006 tókst í fyrsta sinn síðan árið 2002 að mæla fjölda ársgamallar loðnu. Sjá nánar á vef Hafrannsóknastofnunarinnar













