Fréttir
29. Maí 2007 | ÚTVEGURINN
Aðgát skal höfð
Skoðun Friðriks J.
Arngrímssonar í Fiskifréttum 25 maí
Þá eru alþingiskosningarnar afstaðnar og væntanlega verður búið að mynda nýja ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar þegar þessi skrif birtast.
Fátt kom á óvart í aðdraganda kosninganna. Áfram reyndi einn stjórmálaflokkur að slá sér upp með því að rakka niður íslenska fiskveiðistjórnun. Hann hafði ekki erindi sem erfiði enda sjá núorðið flestir í gegnum áróðurinn. Reyndar var aumkunarvert að fylgjast með því, að þegar allir voru að tala við alla eftir kosningarnar, datt engum í hug að ræða við þennan undarlega flokk. Nú taka væntanlega við fjögur ár þar sem fulltrúar hans halda sömu ræðurnar og þeir hafa haldið mörg þúsund sinnum áður.
23. Maí 2007 | ÚTVEGURINN
Kynntu sér íslenska fiskveiðistjórnun
12 manna sendinefnd frá norska stórþinginu átti fund með fulltrúum LÍÚ í vikunni, en hópurinn var hér á landi m.a. til að fræðast um íslenska fiskveiðastjórnunarkerfið.
Um var að ræða fulltrúa úr nefnd um iðnað og viðskipti sem er ein af þrettán fastanefndum norska þingsins, en nefndina skipa fulltrúar þeirra flokka sem eiga sæti á norska stórþinginu.
11. Maí 2007 | ÚTVEGURINN
Innritun í Fjöltækniskóla Íslands stendur yfir
Innritun fyrir
næsta skólaár stendur nú yfir í Fjöltækniskóla Íslands, en frestur
til að skila inn umsóknum rennur út þann 10 júní n.k. Að sögn
Jóns B. Stefánssonar, skólameistara Fjöltækniskólans, er góður
gangur í fyrirspurnum og innritunum í skólann. Nú
stendur yfir viðamikið átak þar sem námið er kynnt í helstu miðlum
landsins.
8. Maí 2007 | ÚTVEGURINN
Neyðaröndunartæki í íslensk fiskiskip
LÍÚ hefur haft
frumkvæði að því að félagsmenn kaupi neyðaröndunartæki fyrir skip
sín. Gert er ráð fyrir að neyðaröndunartækin verði fyrir alla
skipverja og staðsett í svefnklefum áhafnar. Um leið
setja félagsmenn sér staðal um öryggi sem gengur lengra en þekkist
annars staðar í heiminum, en í dag er þess einungis krafist að tæki
af þessum toga séu staðsett í vélarúmum, kælivélarými o.þ.h.













