Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

30. Mars 2007 | ÚTVEGURINN

Viðmiðunarverð á þorski hækkar 1. apríl nk. um 7%.

  Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna ákvað á fundi sínum í dag þann 30. mars að hækka viðmiðunarverð í beinum viðskiptum í þorski um 7,0%. Viðmiðunarverð á karfa og ýsu er óbreytt frá síðustu ákvörðun. Ákvörðunin tekur gildi 1. apríl 2007.

30. Mars 2007 | ÚTVEGURINN

Styrkur til náms í fiskifræði og skyldum greinum

Landssamband íslenskra útvegsmanna auglýsir styrk til framhaldsnáms í fiskifræði, sjávarvistfræði eða sjávarlíffræði.  Styrkurinn er ætlaður náttúrufræðingum sem hafa lokið eða eru að ljúka grunnnámi í háskóla (B.S. prófi) og hyggjast hefja framhaldsnám erlendis á næsta skólaári.  Styrkupphæð er kr. 700.000,-.

15. Mars 2007 | ÚTVEGURINN

Skrúfudagur Fjöltækniskólans laugardaginn 17. mars

Skrúfudagurinn verður laugardaginn 17. mars kl. 13-17. Þá er opið hús í skólanum og fjölbreytt kynning á skólastarfinu. Vélasalir, vélhermir og siglingasamlíkir iða af lífi og reglubundnar skoðunarferðir verða á svæði Flugskólans. Skemmtilegur spurningaleikur og heppnir gestir geta unnið útsýnisflug yfir Reykjavík og tíma í flughermi.

13. Mars 2007 | ÚTVEGURINN

Jákvæðar niðurstöður í helstu málum

Fundur Fiskimálanefndar FAO í síðustu viku

Verndun viðkvæmra vistkerfa fyrir skaðlegum áhrifum fiskveiða og aðgerðir gegn ólöglegum veiðum voru ofarlega á baugi á fundi fiskimálanefndar Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) sem lauk sl. föstudag í Róm.

Að sögn Kristjáns Þórarinssonar, stofnvistfræðings sem sat fundinn var hann gagnlegur og niðurstöður í helstu málum voru jákvæðar frá íslensku sjónarmiði.  Þannig tók FAO að sér það verkefni sem allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna beindi til stofnunarinnar, að móta tæknilegar viðmiðunarreglur um verndun viðkvæmra vistkerfa á úthafinu.

9. Mars 2007 | ÚTVEGURINN

LÍÚ og SF stofna Samtök atvinnurekenda í sjávarútvegi

Samtök atvinnurekenda í sjávarútvegi voru sett á stofn í gær á sameiginlegum fundi Landssambands íslenskra útvegsmanna og Samtaka fiskvinnslustöðva sem fram fór á Akranesi.  Um er að ræða samstarfsvettvangs samtaka atvinnurekenda í sjávarútvegi, sem starfa innan Samtaka atvinnulífsins.  

7. Mars 2007 | ÚTVEGURINN

Viðmiðunarverð á þorski hækkar um 10% og ýsu um 5% þann 10 mars.

Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna ákvað á fundi sínum í dag þann 7. mars að hækka viðmiðunarverð í beinum viðskiptum í þorski um 10,0% og ýsu um 5,0%. Viðmiðunarverð á karfa er óbreytt. Ákvörðunin tekur gildi 10. mars 2007.

5. Mars 2007 | ÚTVEGURINN

Lækkun úrvinnslugjalds 1. mars

Úrvinnslugjald lækkaði á nokkrum vöruflokkum 1. mars sl. Úrvinnslugjaldið er hagrænn hvati til að auka verðgildi flokkaðs úrgangs, þannig að eftirsótt verði að endurnýta og endurvinna hann.


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta