Fréttir
28. Febrúar 2007 | ÚTVEGURINN
Kanna á möguleika á að nota jurtaolíu sem eldsneyti fyrir fiskiskip
Kanadískt kanólafræ notað til framleiðslunnar

Í dag var stofnað hlutafélagið ORKEY sem hefur að markmiði að skoða leiðir og hagkvæmni þess að framleiða jurtaolíu úr kanadísku kanólafræi, mögulega í Krossanesverksmiðjunni við Akureyri. Um er að ræða vistvænan orkugjafa sem má brenna í stað svartolíu í íslenskum fiskiskipum en hluti flotans notar nú svartolíu á skipavélarnar. Stofnaðilar fyrirtækisins eru Akureyrarhöfn, LÍÚ, Samherji, Brim, Ísfélag Vestmannaeyja, HB Grandi, Arngrímur Jóhannsson og Norðurorka. Áætlað er að forathugun verkefnis taki um sex mánuði og að þá verði tekin ákvörðun um eiginlega framleiðslu.
23. Febrúar 2007 | ÚTVEGURINN
Ímynd Íslands ?
Skoðun Friðriks J. Arngrímssonar í Fiskifréttum 23. feb.
Þetta, sem helst
nú varast vann, varð þó að koma yfir hann. Þessi frægu orð
meistara Hallgríms Péturssonar úr Passíusálmunum um Pílatus
landsstjóra komu í huga mér þegar ég las þá slæmu frétt í síðustu
viku að Bakkavör hefði innkallað houmous vörur frá
verslunarkeðjunum Marks og Spencer, Tesco, Somerfield, Waitrose,
Co-op og Sainsbury's. Ástæðan var sú að fyrirtækið fann
salmonellu í vöru sem það framleiddi fyrir Marks og
Spencer.
7. Febrúar 2007 | ÚTVEGURINN
Mikill hvati til þess að minnka olíunotkun skipa
Loftslagsskýrsla Sameinuðu Þjóðanna
Nokkur umræða hefur verið um loftslagsskýrslu Sameinuðu Þjóðanna að undanförnu og stöðu Íslands þegar kemur að útstreymi gróðurhúsalofttegunda. Heildarútstreymi gróðurhúsalofttegunda hérlendis samkvæmt nýjustu opinberu tölum sem eru frá 2004, er um 3,7 milljónir tonna. Þetta er um 10,7 tonn á íbúa, en til samanburðar var útstreymi á hvern íbúa í 25 ríkjum ESB 10,9 tonn.
6. Febrúar 2007 | ÚTVEGURINN
Lítið gert úr góðum málum
Grein eftir Vilhjálm J. Árnason,
aðstoðarframkvæmdastj. sem birtist í Morgunblaðinu 4.febrúar
s.l.
ÚTGERÐARFYRIRTÆKIÐ Þormóður rammi-Sæberg hf. er eitt öflugasta útgerðarfyrirtæki landsins og burðarás í atvinnulífi í Fjallabyggð. Síðastliðið sumar tilkynntu forsvarsmenn fyrirtækisins að þeir hefðu skrifað undir samning um smíði á tveimur nýjum skuttogurum frá Noregi og er kaupverðið um 5 milljarðar íslenskra króna. Hér er um að ræða eina af stærstu fjárfestingum innlends einkafyrirtækis á landsbyggðinni í nokkurn tíma.













