Fréttir
30. Nóvember 2007 | ÚTVEGURINN
Þorskverð hækkað um 33% á árinu.
Á fundi Úrskurðarnefndar
sjómanna og útvegsmanna þann 30. nóvember var ákveðið að hækka verð
á þorski sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur er til
skyldra aðila um 10% og ýsu um 5% frá og með 1. desember.
19. Nóvember 2007 | ÚTVEGURINN
Veiðar Íslendinga úr deilistofnum á Norð-austur Atlantshafi gætu orðið allt að hálfri milljón tonna á næsta ári
Föstudaginn 16. nóvember síðastliðinn lauk í London 26. ársfundi Norðaustur-Atlantshafs fiskveiðinefndarinnar, NEAFC. Á fundinum var m.a. fjallað um stjórn veiða á kolmunna, úthafskarfa, norsk-íslenskri síld, og makríl fyrir árið 2008 auk verndunar viðkvæmra hafsvæða og aðgerða gegn ólöglegum og óábyrgum fiskveiðum.
15. Nóvember 2007 | ÚTVEGURINN
Breyting á tollfrjálsum innflutningskvóta á humar og karfa frá Íslandi.
Utanríkisráðuneytið hefur sent frá sér tilkynningu um breytingu á reglugerð Evrópusambandsins númer 499/96 frá 19. mars 1996 varðandi tollfrjálsa innflutningskvóta á humar og karfa frá Íslandi.
14. Nóvember 2007 | ÚTVEGURINN
Nýtt samkomulag um norsk - islensku síldina
Gengið hefur verið frá nýju
samkomulagi um norsk - íslensku síldina fyrir árið 2008 á fundi
strandríkjanna sem nú fer fram í London. Samkvæmt
samkomulaginu verður heildarkvótinn 1.518.000 tonn, en í hlut
Íslands munu koma 220.262 tonn.













