Fréttir
29. Október 2007 | ÚTVEGURINN
Ný stjórn LÍÚ
Stjórnarkjör á aðalfundi LÍÚ 25. og 26. október 2007.
Eftirtaldir voru kosnir í stjórn LÍÚ næsta starfsár.
29. Október 2007 | ÚTVEGURINN
Loðnuvinnslan hf. hlaut umhverfisverðlaun LÍÚ
Loðnuvinnslan hf. á Fáskrúðsfirði hlaut umhverfisverðlaun LÍÚ sem afhent voru á aðalfundi samtakanna. Fyrirtækið hefur ítrekað sýnt að því er umhugað um umhverfið og virðist leggja mikinn metnað í að sýna samfélagslega ábyrgð í verki.
26. Október 2007 | ÚTVEGURINN
Ályktanir aðalfundar LÍÚ 2007
Samþykktar tillögur á aðalfundi LÍÚ 2007 sem haldinn var í Reykjavík 25. og 25. október 2007.
25. Október 2007 | ÚTVEGURINN
Gengi íslensku krónunnar er allt of sterkt
Ræða Einars Kristins Guðfinnssonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna
Það er eftirtektarvert hve íslensk tunga geymir mörg orð og orðtök sem snerta sjómennsku og veðurfar og nota má til að lýsa þeim erfiðleikum sem nú er við að etja. Ef til vill er það þó ekki svo sérkennilegt. Við vitum að sjórinn hefur oft verið erfiður til sóknar, það er aldrei á vísan að róa, svipull getur sjávaraflinn verið og sjaldan er ein báran stök. Svo getum við bætt við að skjótt geta skipast veður í lofti.
24. Október 2007 | ÚTVEGURINN
Kaldhæðnislegt að veiðigjaldið skuli hækka um 73%
Ræða Björgólfs Jóhannssonar, formanns LÍÚ á aðalfundi
Tillaga Hafrannsóknastofnunarinnar um 130 þúsund tonna þorskafla á þessu fiskveiðiári kom útvegsmönnum í opna skjöldu. Tillagan var mikið áfall fyrir sjávarútveginn þrátt fyrir að flestir hafi átt von á tillögum um skerðingu í ljósi lélegrar nýliðunar og lítillar meðalþyngdar eftir aldri. Á þessari stundu finnst mér rétt að kryfja málið aðeins. Að óbreyttri aflareglu hefði leyfilegur þorskafli orðið 178 þúsund tonn eða 15 þúsund tonnum minni en á síðasta fiskveiðiári. Hafrannsóknastofnunin lagði hins vegar til lækkun veiðihlutfalls úr 25% í 20% af veiðistofni. Þessi breyting ein og sér hefði þýtt 162 þúsund tonna aflamark.
12. Október 2007 | ÚTVEGURINN
Dagskrá 68. aðalfundar LÍÚ
Aðalfundur Landssambands íslenskra útvegsmanna verður á Hilton
Reykjavík Nordica 25. og 26. október 2007.
Dagskrá fundarins fer hér á eftir:













