Fréttir
26. Janúar 2007 | ÚTVEGURINN
Viðmiðunarverð á þorski og ýsu hækkar
Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna ákvað á fundi sínum í dag þann 26. janúar að hækka viðmiðunarverð í beinum viðskiptum í þorski um 3,0% og ýsu um 3,0%. Viðmiðunarverð á karfa er óbreytt. Ákvörðunin tekur gildi 1. febrúar 2007.
26. Janúar 2007 | ÚTVEGURINN
Samstarfsnefnd Íslands og Rússlands funda um sjávarútvegsmál
Samstarfsnefnd Íslands og Rússlands um tiltekna þætti í
samstarfi á sviði sjávarútvegsmála hélt áttunda fund sinn í
Reykjavík dagana 24.-25. janúar 2007. Á fundinum voru rædd þau mál
sem helst eru á döfinni varðandi samstarf landanna.
Á fundinum skiptust fulltrúar landanna á upplýsingum um framkvæmd
samnings frá 15. maí 1999 milli ríkisstjórnar Íslands, Noregs og
Rússlands um tiltekna þætti í samstarfi á sviði
sjávarútvegsins.
26. Janúar 2007 | ÚTVEGURINN
Rangfærslur aðila í norskum sjávarútvegi vegna síldarsamningsins.
Í tliefni af undirritun samnings um norsk-íslensku síldina í Osló í síðustu viku sendu Fiskebåtredernes Forbund, Norges Fiskarlag og FHL industri & export frá sameiginlega fréttatilkynningu. Í fréttatilkynningunni var spjótunum sérstaklega beint að Íslandi með óviðeigandi hætti. Í tilefni af því hefur LÍÚ sent viðkomandi aðilum bréf þar sem gerðar eru athugasemdir við augljósar rangfærslur.
18. Janúar 2007 | ÚTVEGURINN
Samningur um norsk – íslenska síld
Í nótt var gerður samningur í Osló milli Íslands, Noregs, Færeyja, Rússlands og ESB um stjórn veiða úr norsk íslenska síldarstofninum árið 2007.
Samningurinn felur það í sér að heildaraflinn verður 1.280.000 tonn sem skiptist þannig að í hlut Íslands koma 185.728 tonn eða 14,51%, í hlut Noregs koma 780.800 tonn eða 61,00%, í hlut Færeyja koma 66.048 tonn eða 5,%, í hlut Rússa koma 164.096 tonn eða 12,82% og í hlut ESB koma 83.328 tonn eða 6,51%.
11. Janúar 2007 | ÚTVEGURINN
Byrjunarkvóti í loðnu gefinn út
Tillaga hefur borist frá Hafrannsóknastofnuninni um að leyfilegur upphafsafli í loðnu verði ákveðinn 180.000 tonn. Í hlut Íslendinga koma 143.000 tonn, en Norðmenn, Færeyingar og Grænlendingar fá líka hlutdeild samkvæmt alþjóðasamningum.
9. Janúar 2007 | ÚTVEGURINN
Loðna finnst norður af Grímsey
Nokkuð magn af stórri og
fallegri hrygningarloðnu hefur fundist um 30 sjómílur norður af
Grímsey. Rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar, Árni
Friðriksson og Bjarni Sæmundsson eru nú við loðnuleit eftir að hafa
verið í vari undir Grímsey í á annan sólarhring.













