Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

28. Desember 2007 | ÚTVEGURINN

Óskum ykkur gleðilegs nýs árs og farsældar á komandi ári. Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.

Með kveðju

Landssamband íslenskra útvegsmanna.

18. Desember 2007 | ÚTVEGURINN

Samstarf á sviði menntunar og rannsókna í sjávarútvegi

17. Desember 2007 | ÚTVEGURINN

Veiðigjald lækkað

Lög um lækkun veiðigjalds í 4,8%, næstu tvö ár voru samþykkt á Alþingi s.l. föstudag 14. desember, en jafnframt er veiðigjald á þorsk og rækju fellt niður til tveggja ára.  

7. Desember 2007 | ÚTVEGURINN

Ráðstefna um menntun og atvinnulíf 8. janúar

Menntun og atvinnulíf er yfirskrift ráðstefnu sem haldin verður í Fjöltækniskóla Íslands  8. janúar 2008 frá kl 10-16. Á fundinum verður meðal annars farið yfir ný lög um áhafnir og ný framhaldsskólalög og hvaða breytingar þessi lög geta haft í för með sér í tengslum við skipstjórnar- og vélstjórnarnám.  Einnig verður farið yfir hvernig staðið er að endurmenntun og hvernig hægt sé að bæta og þróa nýjar leiðir í tengslum við slíka menntun.    

 

7. Desember 2007 | ÚTVEGURINN

Fiskveiðistefna ESB fær falleinkunn

Fiskveiðistefna Evrópusambandsins fær falleinkun í nýrri endurskoðunarskýrslu sem Endurskoðunarréttur Evrópusambandsins hefur gefið út. Í skýrslunni segir m.a. að upplýsingar um fiskveiðar séu óáreiðanlegar og ófullkomnar og eftirlitskerfi ómarkviss og komi ekki í veg fyrir brot. Á það er einnig bent að ef ekki er hægt að styðjast við réttar upplýsingar, eftirlit og framkvæmd reglna fiskveiðistjórnunar, þá sé ómögulegt að byggja upp raunhæfa fiskveiðistefnu á vettvangi ESB. 

7. Desember 2007 | ÚTVEGURINN

Ofurgjald á íslenskan sjávarútveg

Skoðun Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra Landssambands íslenskra útvegsmanna í Fiskifréttum 7. des. 2007

Nú er til umfjöllunar á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða þar sem m.a. er lagt til að veiðigjald á aflamark í þorski verði afnumið tímabundið.  Um leið og því ber að fagna að afnám veiðigjalds sé komið á dagskrá með svo afgerandi hætti er rétt að velta því fyrir sér hvað veiðigjaldið er.

6. Desember 2007 | ÚTVEGURINN

Veiðigjald verði fellt niður

Stjórn Samtaka atvinnulífsins lýsir yfir stuðningi við LÍÚ

Á fundi í stjórn Samtaka atvinnulífsins sem haldin var í vikunni var lýst yfir eindregnum stuðningi við það sjónarmið Landssambands íslenskra útvegsmanna að fella að fullu niður veiðigjald á sjávarútveginn.

3. Desember 2007 | ÚTVEGURINN

Mikilvægt að þyrla verði staðsett úti á landi

Skrifað undir samkomulag um kaup og rekstur björgunarþyrla  

Mikilvægt skref í þá veru að tryggja aukið öryggi sjófarenda á miðunum í kringum landið í framtíðinni var stigið s.l. föstudag þegar Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra og Knut Storberget dómsmálaráðherra Noregs skrifuðu undir samkomulag um samstarf Íslands og Noregs um kaup og rekstur nýrra langdrægra björgunarþyrla.   

Á aðalfundi LÍÚ í október var samþykkt ályktun þar sem eflingu þyrlubjörgunarsveitar Landhelgisgæslunnar var fagnað og því beint til ríkisstjórnarinnar að þyrla yrði staðsett úti á landi.

30. Nóvember 2007 | ÚTVEGURINN

Þorskverð hækkað um 33% á árinu.

Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna þann 30. nóvember var ákveðið að hækka verð á þorski sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur er til skyldra aðila um 10% og ýsu um 5% frá og með 1. desember.

19. Nóvember 2007 | ÚTVEGURINN

Veiðar Íslendinga úr deilistofnum á Norð-austur Atlantshafi gætu orðið allt að hálfri milljón tonna á næsta ári

Föstudaginn 16. nóvember síðastliðinn lauk í London 26. ársfundi Norðaustur-Atlantshafs fiskveiðinefndarinnar, NEAFC. Á fundinum var m.a. fjallað um stjórn veiða á kolmunna, úthafskarfa, norsk-íslenskri síld, og makríl fyrir árið 2008 auk verndunar viðkvæmra hafsvæða og aðgerða gegn ólöglegum og óábyrgum fiskveiðum.

15. Nóvember 2007 | ÚTVEGURINN

Breyting á tollfrjálsum innflutningskvóta á humar og karfa frá Íslandi.

Utanríkisráðuneytið hefur sent frá sér tilkynningu um breytingu á reglugerð Evrópusambandsins númer 499/96 frá 19. mars 1996 varðandi tollfrjálsa innflutningskvóta á humar og karfa frá Íslandi.

14. Nóvember 2007 | ÚTVEGURINN

Nýtt samkomulag um norsk - islensku síldina

Gengið hefur verið frá nýju samkomulagi um norsk - íslensku síldina fyrir árið 2008 á fundi strandríkjanna sem nú fer fram í London.  Samkvæmt samkomulaginu verður heildarkvótinn 1.518.000 tonn, en í hlut Íslands munu koma 220.262 tonn.  

29. Október 2007 | ÚTVEGURINN

Ný stjórn LÍÚ

Stjórnarkjör á aðalfundi LÍÚ 25. og 26. október 2007.

Eftirtaldir voru kosnir í stjórn LÍÚ næsta starfsár.

29. Október 2007 | ÚTVEGURINN

Loðnuvinnslan hf. hlaut umhverfisverðlaun LÍÚ

Loðnuvinnslan hf. á Fáskrúðsfirði hlaut umhverfisverðlaun LÍÚ sem afhent voru á aðalfundi samtakanna.  Fyrirtækið hefur ítrekað sýnt að því er umhugað um umhverfið og virðist leggja mikinn metnað í að sýna samfélagslega ábyrgð í verki.

26. Október 2007 | ÚTVEGURINN

Ályktanir aðalfundar LÍÚ 2007

Samþykktar tillögur á aðalfundi LÍÚ 2007 sem haldinn var í Reykjavík 25. og 25. október 2007.

25. Október 2007 | ÚTVEGURINN

Gengi íslensku krónunnar er allt of sterkt

Ræða Einars Kristins Guðfinnssonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna

Það er eftirtektarvert hve íslensk tunga geymir mörg orð og orðtök sem snerta sjómennsku og veðurfar og nota má til að lýsa þeim erfiðleikum sem nú er við að etja. Ef til vill er það þó ekki svo sérkennilegt. Við vitum að sjórinn hefur oft verið erfiður til sóknar, það er aldrei á vísan að róa, svipull getur sjávaraflinn verið og sjaldan er ein báran stök. Svo getum við bætt við að skjótt geta skipast veður í lofti.

24. Október 2007 | ÚTVEGURINN

Kaldhæðnislegt að veiðigjaldið skuli hækka um 73%

Ræða Björgólfs Jóhannssonar, formanns LÍÚ á aðalfundi

Tillaga Hafrannsóknastofnunarinnar um 130 þúsund tonna þorskafla á þessu fiskveiðiári kom útvegsmönnum í opna skjöldu. Tillagan var mikið áfall fyrir sjávarútveginn þrátt fyrir að flestir hafi átt von á tillögum um skerðingu í ljósi lélegrar nýliðunar og lítillar meðalþyngdar eftir aldri. Á þessari stundu finnst mér rétt að kryfja málið aðeins. Að óbreyttri aflareglu hefði leyfilegur þorskafli orðið 178 þúsund tonn eða 15 þúsund tonnum minni en á síðasta fiskveiðiári.  Hafrannsóknastofnunin lagði hins vegar til lækkun veiðihlutfalls úr 25% í 20% af veiðistofni. Þessi breyting ein og sér hefði þýtt 162 þúsund tonna aflamark. 

12. Október 2007 | ÚTVEGURINN

Dagskrá 68. aðalfundar LÍÚ

Aðalfundur Landssambands íslenskra útvegsmanna verður á Hilton Reykjavík Nordica 25. og 26. október 2007.

Dagskrá fundarins fer hér á eftir:

28. September 2007 | ÚTVEGURINN

LÍÚ styrkir vélstjórnardeild Menntaskólans á Ísafirði

Einar Valur Kristjánsson, formaður Útvegsmannafélags Vestfjarða, afhenti í gær vélstjórnardeild Menntaskólans á Ísafirði eina milljón króna, en stjórn Landssambands íslenskra útvegsmanna ákvað á stjórnarfundi nýlega að styrkja vélstjórnarnámið á Ísafirði með þessum hætti.

24. September 2007 | ÚTVEGURINN

Mótvægisaðgerðir

Skoðun Sveins Hjartar Hjartarsonar í Fiskifréttum 21. sept. 2007

Það kom væntanlega engum á óvart að stjórnvöld skyldu bregðist við þeim vanda sem við er að glíma vegna minni aflaheimilda í þorski. Flestir bjuggust við að mótvægisaðgerðirnar yrðu af almennum toga og myndu ekki mismuna aðilum í sjávarútveginum. Það er óhætt að segja að eftirvæntingin eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar hafi breyst  í undrun þegar þær voru kynntar við hátíðlega athöfn á blaðamannafundi í nýlega. Í meginatriðum snéru þær alls ekkert að sjávarútveginum.

21. September 2007 | ÚTVEGURINN

Hagræðingin felst fyrst og fremst í fækkun fiskiskipa

-- segir Eiríkur Tómasson forstjóri Þorbjarnar hf. í viðtali við Fiskifréttir

Deilur hafa staðið um kvótakerfið frá upphafi þess árið 1984. Ýmist eru menn á móti kerfinu og finna því allt til foráttu eða að þeir styðja kerfið og telja það besta fiskveiðistjórnunarkerfi sem völ er á. Eiríkur Tómasson, forstjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík, er einn þeirra sem telur kvótakerfið gott og að staða sjávarútvegsfyrirtækja hafi batnað með tilkomu þess. Eiríkur segist vilja sjá minni afskipti stjórnvalda af rekstri sjávarútvegsfyrirtækja og að stjórnendum verði gert kleift að reka þau eins og önnur fyrirtæki í landinu. 

21. September 2007 | ÚTVEGURINN

Að taka af einum og færa öðrum

Rafn Guðlaugsson skipstjóri á Katrínu SH í viðtali við Fiskifréttir

,,Sjávarútvegsráðherra er að reyna að uppræta ræningjaveiðar erlendra skipa hérna við íslensku lögsöguna en hvað er það annað en rán að hrifsa sífellt aflaheimildir af okkur sem eru á aflamarki og færa það til krókakarlanna í smábátakerfinu. Ráðherrann ræðst ofan í budduna hjá okkur og réttir peningana öðrum. Ég er með afar litlar þorskveiðiheimildir en samt eru tekin af mér 7 kvótatonn í línuívilnun og byggðakvóta. Ef ég leigði þessar heimildir frá mér fengi ég 1,4 milljónir króna fyrir þær og ef ég seldi þær fengi ég 21 milljón króna. Ég sætt mig ekki við svona meðferð. Við megum ekki gefast upp í baráttunni gegn þessu óréttlæti og þessari mismunun. Við höfum verið alltof linir til þessa, sagði Rafn Guðlaugsson skipstjóri og útgerðarmaður netabátsins Katrínar SH í samtali við Fiskifréttir. 

10. September 2007 | ÚTVEGURINN

Óskað eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna LÍÚ 2007

Landssamband íslenskra útvegsmanna óskar eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna LÍÚ fyrir árið 2007. Allir félagar í LÍÚ koma til greina sem handhafar verðlaunanna.  

3. September 2007 | ÚTVEGURINN

Friðrik Friðriksson hefur störf sem lögfræðingur LÍÚ.

Friðrik Friðriksson hefur hafið störf sem lögfræðingur LÍÚ.  Friðrik er 34 ára, kvæntur og á tvö börn. Hann útskrifaðist frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2000, fékk lögmannsréttindi 2001 og hefur einnig lagt stund á nám í mannauðsstjórnun við Háskóla Íslands.

31. Ágúst 2007 | ÚTVEGURINN

Ágiskanir duga ekki.

Skoðun Friðriks J. Arngrímssonar í Fiskifréttum 31. ágúst 2007 

Þau merkilegu tíðindi bárust fyrir skömmu að þýski togarinn Kiel hefði mokveitt þorsk við Austur-Grænland nú í ágústmánuði.  Jafnframt kom fram hjá skipstjóra togarans að um stórþorsk hefði verið að ræða og að svo virtist sem mikið væri af honum.  Einnig kom fram að hann hefði líka orðið var við smærri fisk en að sjálfsögðu lagt sig eftir þeim stærri. Þessar fréttir koma í framhaldi af fréttum í vor um þorsk á grálúðuslóð djúpt vestur af Íslandi og fyrri fréttum af góðum þorskafla fyrr í ár og í fyrra við Austur-Grænland, en á öðrum árstíma. Þá er þess að minnast að mun meira gekk af vænum þorski til hrygningar við Ísland í vetur en undanfarin ár.

30. Ágúst 2007 | ÚTVEGURINN

Vísbendingar um að hrefnum hafi fækkað við landið

Breyting á lífríkinu nærtækasta skýringin

Í gær, fimmtudaginn 30. ágúst, var frétt í Ríkisútvarpinu sem byggð var á viðtali við Ásbjörn Björgvinsson, formann hvalaskoðunarsamtaka Íslands, þar sem hann hélt því fram að vísindaveiðar á hrefnu hefðu haft þau áhrif að hrefnu hafi fækkað á þeim svæðum sem hvalaskoðun er stunduð.  

8. Ágúst 2007 | ÚTVEGURINN

Yfirlýsing um ábyrgar fiskveiðar

Yfirlýsing um ábyrgar fiskveiðar sem ætlað er að mæta þörfum innkaupaaðila sjávarafurða erlendis var í gær undirrituð á kynningarfundi sem haldinn var í Fiskmarkaði Íslands við Grandagarð.  Sjávarútvegsráðherra, forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar, Fiskistofustjóri og formaður Fiskifélags Íslands skrifuðu undir yfirlýsinguna, en á fundinum var einnig farið yfir hver gætu orðið næstu skref í tengslum við gerð staðla og vottun fyrir íslenskan sjávarútveg.

11. Júlí 2007 | ÚTVEGURINN

Að ákæra og dæma í beinni

Grein eftir Friðrik J. Arngrimsson, framkvæmdastjóra LÍÚ, sem birtist á visir.is og í Fréttablaðinu 10. júlí 2007

Fjömiðlamönnunum Jóhannesi Kr. Kristjánssyni og Kristni Hrafnssyni eru það nokkur vonbrigði að undirritaður skuli hafa gagnrýnt efnistök í Kompásþætti sem sýndur var 6. maí s.l. og fréttaumfjöllun í kjölfar þáttarins í grein sem birtist í Fiskifréttum. Lýsa þeir þessu yfir í blaðagrein hinn 18. júní.

11. Júlí 2007 | ÚTVEGURINN

Skerðing þorskafla meiri vegna línuívilnunar

Skerðing aflamarks í þorski vegna línuívilnunar hefur aukist hlutfallslega vegna minni þorskafla.  Afla- og krókaaflamark hefur verið skert sem nemur 3.375 tonnum í þorski vegna svokallaðrar línuívilnunar óháð því hver er leyfilegur heildarafli fiskveiðiársins. Ef engar breytingar verða gerðar mun hlutdeild línuívilnunar fara úr 1,65% fiskveiðiárið 2004/2005, í 2,60% af heildarafla á komandi fiskveiðiári 2007/2008.  Þetta þýðir að ákveðinn hópur tekur ekki á sig sömu skerðingar og aðrir og felur þannig í sér grófa mismunun.

10. Júlí 2007 | ÚTVEGURINN

Rangir slægingarstuðlar leiða til vaxandi umframafla

Afli á línu og handfæri vanreiknaður um 2300 tonn á síðasta fiskveiðiári.

Fiskveiðiárið 2005/2006 nam vanreikningur á lönduðum línu- og handfæraafla um 2.300 tonnum, en netaafli var hins vegar ofreiknaður um 200 tonn.  Orsökin er sú að frádráttur vegna slógs þegar fiski er landað óslægðum er of mikill þegar um er að ræða handfæra- og línuafla en of lítill þegar um er að ræða netaafla.  Þetta veldur því að tölur  um landaðan afla eru rangar, of lítill afli er dreginn frá aflamarki í krókaveiðum en of mikill í netaveiðum. 

9. Júlí 2007 | ÚTVEGURINN

Ákvörðun ráðherra um leyfilegan heildarafla á næsta fiskveiðiári

Fréttatilkynning frá sjávarútvegsráðuneyti um afla og aðgerðir vegna samdráttar í þorskafla

Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla á næsta fiskveiðiári, 2007-2008. Jafnframt eru kynntar tillögur sjávarútvegsráðuneytisins til aðgerða vegna verulegra breytinga á leyfilegum heildarafla í þorski milli ára.

2. Júlí 2007 | ÚTVEGURINN

Tillögur LÍÚ vegna ráðgjafar Hafrannsóknastofnunarinnar

Tillögur Landssambands íslenskra útvegsmanna vegna ráðgjafar Hafrannsóknastofnunarinnar um 130 þúsund tonna aflamark í þorski fiskveiðiárið 2007/2008.

Landssamband íslenskra útvegsmanna deilir ekki við Hafrannsóknastofnunina um að þorskstofninn er of lítill og að nauðsynlegt er að byggja hann upp. Þá hefur nýliðun verið léleg frá 2001 sem mótar framvindu í stofnstærð og veiðimöguleika á næstu árum. Eins er þorskurinn léttari en æskilegt væri, væntanlega aðallega vegna þess að loðnan hefur ekki haldið sig á hefðbundinni slóð hans á undanförnum árum og vegna þess að loðnustofninn er ekki nægjanlega sterkur. Mikil aukning hvala hefur áhrif á afrán þeirra á loðnu og þorski en áætlað er að þeir taki á milli eina og tvær milljónir tonna af loðnu á ári og umtalsvert magn af þorski.  

29. Júní 2007 | ÚTVEGURINN

Hrygg eða lambalæri á sunnudögum

Skoðun Sveins Hjartar Hjartarssonar í Fiskifréttum 29. júní 2007

Maður hefur það á tilfinningunni að ef illa liggur á sumum álitsgjöfum  í samfélaginu beini þeir spjótum sínum að sjávarútveginum. Fjölmiðlaumræðan undanfarna áratugi um sjávarútveginn hefur oft verið óvægin og illskeytt.

15. Júní 2007 | ÚTVEGURINN

Tillögur um 15 þúsund tonna úthafskarfaafla í Síldarsmugunni samþykktar á aukafundi NEAFC

Aukafundi Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar, NEAFC lauk í gærkvöldi.  Á fundinum var m.a. fjallað um veiðar á úthafskarfa í Síldarsmugunni.  Að mati Alþjóða hafrannsóknaráðsins, ICES er stofninn í slæmu ástandi og lagt hefur verið til af þess hálfu að engar beinar veiðar verði stundaðar, en á síðasta ári voru veidd 27.000 tonn af úthafskarfa í Síldarsmugunni. Niðurstaða fundarins nú var sú að leyfa veiðar á 15.000 tonnum á tímabilinu 1. september 15. nóvember 2007

12. Júní 2007 | ÚTVEGURINN

Viðmiðunarverð ýsu lækkar um 5% og á karfa um 7%

Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna ákvað á fundi sínum þann 7. júní 2007 að lækka viðmiðunarverð í beinum viðskiptum með ýsu um 5,0% og karfa um 7,0%. Viðmiðunarverð í þorski er óbreytt. Ákvörðunin tók gildi 11. júní 2007.

12. Júní 2007 | ÚTVEGURINN

Heildarskerðing nemur rúmum 12.000 tonnum

Úthlutun vegna byggðakvóta, línuívilnunar og bóta vegna skel og rækju

Yfir þrjú hundruð fyrirtæki þurfa að sæta því að aflaheimildir þeirra séu skertar um rúmlega 4,7% vegna byggðakvóta, línuívilnunar og bóta vegna skel og rækjubáta, en úthlutun stendur nú yfir fyrir yfirstandandi fiskveiðiár.  Þær tegundir sem er verið að úthluta í tengslum við þessar millifærslur eru þorskur, ýsa, ufsi og steinbítur.  Heildarúthlutun í þessum tegundum nemur 270.065 þorskígildistonnum, en skerðingin sem útgerðarfyrirtækin verða fyrir nemur 12.280 þorskígildistonnum.

7. Júní 2007 | ÚTVEGURINN

Umhverfismerkingar og fiskveiðiráðgjöf í brennidepli

Fundur í London með smásöluaðilum og helstu stórkaupendum á fiski 

Sendiráð Íslands í London ásamt LÍÚ og helstu sölufyrirtækjum íslenskra sjávarafurða stóðu í gær, 6. júní, fyrir fundi með fulltrúum allra helstu fiskkaupenda og smásöluaðila í Bretlandi.  Fundinn sat einnig sjávarútvegsráðherra, Einar K. Guðfinnsson og aðstoðarmaður utanríkisráðherra, Kristrún Heimisdóttir. 

5. Júní 2007 | ÚTVEGURINN

Tekið verði á vanda í stjórn peningamála og hagstjórn

Framkvæmdastjórn SA fundar með forsætisráðherra og utanríkisráðherra

Framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins átti í gær fund með forsætisráðherra og utanríkisráðherra til að leggja áherslu á að ríkisstjórnin taki þegar á þeim vanda sem stjórn peningamála og hagstjórnin hefur ratað í. Aðgerðir Seðlabankans skaði atvinnulíf án þess að skila árangri á móti og að bankinn muni ekki að óbreyttu um fyrirsjáanlega framtíð eiga möguleika á því að lækka vexti.

Framkvæmdastjórnin afhenti forsætisráðherra bréf þar sem þessum sjónarmiðum er lýst.

4. Júní 2007 | ÚTVEGURINN

Seðlabankinn verður að lækka stýrivexti sína strax

Ávarp Björgólfs Jóhannssonar á Sjómannadag í Reykjavík 2007.  

Ef farið yrði í öllu að ráðgjöf stofnunarinnar þýddi það að útflutningstekjur sjávarútvegsins lækkuðu um 25 milljarða króna sem er um 20% af útflutningstekjum ársins 2006. Öllum ætti að vera ljóst að hér er um grafalvarlegt mál að ræða. Þó að það kunni að vera skynsamlegt að draga eins mikið úr þorskveiðum og Hafró leggur til þannig að stofninn byggist hraðar upp þá sé ég ekki að við getum farið að þessari ráðgjöf þegar tekið er tillit til allra þátta.

3. Júní 2007 | ÚTVEGURINN

Tilllögur um mikinn samdrátt í þorskveiðum

Hafrannsóknastofnunin hefur kynnt veiðiráðgjöf fyrir fiskveiðiárið 2007/2008. Stofnunin leggur til að dregið verði verulega úr veiðum á þorski, en vegna bágs ástands uppvaxandi árganga er lagt til að afli næsta fiskveiðiárs verði takmarkaður við 130 þús. tonn.  Stofnar ýsu og ufsa eru í góðu ástandi, þó að mælt sé með að ufsaafli minnki miðað við yfirstandandi fiskveiðiár.  Haustið 2006 tókst í fyrsta sinn síðan árið 2002 að mæla fjölda ársgamallar loðnu. Sjá nánar á vef Hafrannsóknastofnunarinnar

29. Maí 2007 | ÚTVEGURINN

Aðgát skal höfð

Skoðun Friðriks J. Arngrímssonar í Fiskifréttum 25 maí

Þá eru alþingiskosningarnar afstaðnar og væntanlega verður búið að mynda nýja ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar þegar þessi skrif birtast.

Fátt kom á óvart í aðdraganda kosninganna. Áfram reyndi einn stjórmálaflokkur að slá sér upp með því að rakka niður íslenska fiskveiðistjórnun. Hann hafði ekki erindi sem erfiði enda sjá núorðið flestir í gegnum áróðurinn. Reyndar var aumkunarvert að fylgjast með því, að þegar allir voru að tala við alla eftir kosningarnar, datt engum í hug að ræða við þennan undarlega flokk.  Nú taka væntanlega við fjögur ár þar sem fulltrúar hans halda sömu ræðurnar og þeir hafa haldið mörg þúsund sinnum áður. 

23. Maí 2007 | ÚTVEGURINN

Kynntu sér íslenska fiskveiðistjórnun

12 manna sendinefnd frá norska stórþinginu átti fund með fulltrúum LÍÚ í vikunni, en hópurinn var hér á landi m.a. til að fræðast um íslenska fiskveiðastjórnunarkerfið.   

Um var að ræða fulltrúa úr nefnd um iðnað og viðskipti sem er ein af þrettán fastanefndum norska þingsins, en nefndina skipa fulltrúar þeirra flokka sem eiga sæti á norska stórþinginu. 

11. Maí 2007 | ÚTVEGURINN

Innritun í Fjöltækniskóla Íslands stendur yfir

Innritun fyrir næsta skólaár stendur nú yfir í Fjöltækniskóla Íslands, en frestur til að skila inn umsóknum rennur út þann 10 júní n.k.  Að sögn Jóns B. Stefánssonar, skólameistara Fjöltækniskólans, er góður gangur í fyrirspurnum og innritunum í skólann.  Nú stendur yfir viðamikið átak þar sem námið er kynnt í helstu miðlum landsins.  

8. Maí 2007 | ÚTVEGURINN

Neyðaröndunartæki í íslensk fiskiskip

LÍÚ hefur haft frumkvæði að því að félagsmenn kaupi neyðaröndunartæki fyrir skip sín.  Gert er ráð fyrir að neyðaröndunartækin verði fyrir alla skipverja og staðsett í svefnklefum áhafnar.   Um leið setja félagsmenn sér staðal um öryggi sem gengur lengra en þekkist annars staðar í heiminum, en í dag er þess einungis krafist að tæki af þessum toga séu staðsett í vélarúmum, kælivélarými o.þ.h.

23. Apríl 2007 | ÚTVEGURINN

Útflutningsálag afnumið

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að afnema frá næstu fiskveiðiáramótum svo kallað útflutningsálag. Í álaginu felst að botnfiskafli sem fluttur er óunninn á erlendan markað og sem hefur ekki endanlega verið vigtaður hér á landi fyrir útflutning er reiknaður með 10% álagi til aflamarks.

30. Mars 2007 | ÚTVEGURINN

Viðmiðunarverð á þorski hækkar 1. apríl nk. um 7%.

  Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna ákvað á fundi sínum í dag þann 30. mars að hækka viðmiðunarverð í beinum viðskiptum í þorski um 7,0%. Viðmiðunarverð á karfa og ýsu er óbreytt frá síðustu ákvörðun. Ákvörðunin tekur gildi 1. apríl 2007.

30. Mars 2007 | ÚTVEGURINN

Styrkur til náms í fiskifræði og skyldum greinum

Landssamband íslenskra útvegsmanna auglýsir styrk til framhaldsnáms í fiskifræði, sjávarvistfræði eða sjávarlíffræði.  Styrkurinn er ætlaður náttúrufræðingum sem hafa lokið eða eru að ljúka grunnnámi í háskóla (B.S. prófi) og hyggjast hefja framhaldsnám erlendis á næsta skólaári.  Styrkupphæð er kr. 700.000,-.

15. Mars 2007 | ÚTVEGURINN

Skrúfudagur Fjöltækniskólans laugardaginn 17. mars

Skrúfudagurinn verður laugardaginn 17. mars kl. 13-17. Þá er opið hús í skólanum og fjölbreytt kynning á skólastarfinu. Vélasalir, vélhermir og siglingasamlíkir iða af lífi og reglubundnar skoðunarferðir verða á svæði Flugskólans. Skemmtilegur spurningaleikur og heppnir gestir geta unnið útsýnisflug yfir Reykjavík og tíma í flughermi.

13. Mars 2007 | ÚTVEGURINN

Jákvæðar niðurstöður í helstu málum

Fundur Fiskimálanefndar FAO í síðustu viku

Verndun viðkvæmra vistkerfa fyrir skaðlegum áhrifum fiskveiða og aðgerðir gegn ólöglegum veiðum voru ofarlega á baugi á fundi fiskimálanefndar Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) sem lauk sl. föstudag í Róm.

Að sögn Kristjáns Þórarinssonar, stofnvistfræðings sem sat fundinn var hann gagnlegur og niðurstöður í helstu málum voru jákvæðar frá íslensku sjónarmiði.  Þannig tók FAO að sér það verkefni sem allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna beindi til stofnunarinnar, að móta tæknilegar viðmiðunarreglur um verndun viðkvæmra vistkerfa á úthafinu.

9. Mars 2007 | ÚTVEGURINN

LÍÚ og SF stofna Samtök atvinnurekenda í sjávarútvegi

Samtök atvinnurekenda í sjávarútvegi voru sett á stofn í gær á sameiginlegum fundi Landssambands íslenskra útvegsmanna og Samtaka fiskvinnslustöðva sem fram fór á Akranesi.  Um er að ræða samstarfsvettvangs samtaka atvinnurekenda í sjávarútvegi, sem starfa innan Samtaka atvinnulífsins.  

7. Mars 2007 | ÚTVEGURINN

Viðmiðunarverð á þorski hækkar um 10% og ýsu um 5% þann 10 mars.

Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna ákvað á fundi sínum í dag þann 7. mars að hækka viðmiðunarverð í beinum viðskiptum í þorski um 10,0% og ýsu um 5,0%. Viðmiðunarverð á karfa er óbreytt. Ákvörðunin tekur gildi 10. mars 2007.

5. Mars 2007 | ÚTVEGURINN

Lækkun úrvinnslugjalds 1. mars

Úrvinnslugjald lækkaði á nokkrum vöruflokkum 1. mars sl. Úrvinnslugjaldið er hagrænn hvati til að auka verðgildi flokkaðs úrgangs, þannig að eftirsótt verði að endurnýta og endurvinna hann.

28. Febrúar 2007 | ÚTVEGURINN

Kanna á möguleika á að nota jurtaolíu sem eldsneyti fyrir fiskiskip

Kanadískt kanólafræ notað til framleiðslunnar

Í dag var stofnað hlutafélagið ORKEY sem hefur að markmiði að skoða leiðir og hagkvæmni þess að framleiða jurtaolíu úr kanadísku kanólafræi, mögulega í Krossanesverksmiðjunni við Akureyri. Um er að ræða vistvænan orkugjafa sem má brenna í stað svartolíu í íslenskum fiskiskipum en hluti flotans notar nú svartolíu á skipavélarnar. Stofnaðilar fyrirtækisins eru Akureyrarhöfn, LÍÚ, Samherji, Brim,  Ísfélag Vestmannaeyja, HB Grandi, Arngrímur Jóhannsson og Norðurorka. Áætlað er að forathugun verkefnis taki um sex mánuði og að þá verði tekin ákvörðun um eiginlega framleiðslu. 

23. Febrúar 2007 | ÚTVEGURINN

Ímynd Íslands ?

Skoðun Friðriks J. Arngrímssonar í Fiskifréttum 23. feb.  

Þetta, sem helst nú varast vann, varð þó að koma yfir hann.  Þessi frægu orð meistara Hallgríms Péturssonar úr Passíusálmunum um Pílatus landsstjóra komu í huga mér þegar ég las þá slæmu frétt í síðustu viku að Bakkavör hefði innkallað houmous vörur frá verslunarkeðjunum Marks og Spencer, Tesco, Somerfield, Waitrose, Co-op og Sainsbury's. Ástæðan var sú að fyrirtækið fann salmonellu í vöru sem það framleiddi fyrir Marks og Spencer. 

                                                                                    

7. Febrúar 2007 | ÚTVEGURINN

Mikill hvati til þess að minnka olíunotkun skipa

Loftslagsskýrsla Sameinuðu Þjóðanna

Nokkur umræða hefur verið um loftslagsskýrslu Sameinuðu Þjóðanna að undanförnu og stöðu Íslands þegar kemur að útstreymi gróðurhúsalofttegunda.  Heildarútstreymi gróðurhúsalofttegunda hérlendis samkvæmt nýjustu opinberu tölum sem eru frá 2004, er um 3,7 milljónir tonna.  Þetta er um 10,7 tonn á íbúa, en til samanburðar var útstreymi á hvern íbúa í 25 ríkjum ESB  10,9 tonn.

6. Febrúar 2007 | ÚTVEGURINN

Lítið gert úr góðum málum

Grein eftir Vilhjálm J. Árnason, aðstoðarframkvæmdastj. sem birtist í Morgunblaðinu 4.febrúar s.l.

ÚTGERÐARFYRIRTÆKIÐ Þormóður rammi-Sæberg hf. er eitt öflugasta útgerðarfyrirtæki landsins og burðarás í atvinnulífi í Fjallabyggð. Síðastliðið sumar tilkynntu forsvarsmenn fyrirtækisins að þeir hefðu skrifað undir samning um smíði á tveimur nýjum skuttogurum frá Noregi og er kaupverðið um 5 milljarðar íslenskra króna. Hér er um að ræða eina af stærstu fjárfestingum innlends einkafyrirtækis á landsbyggðinni í nokkurn tíma.

26. Janúar 2007 | ÚTVEGURINN

Viðmiðunarverð á þorski og ýsu hækkar

Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna ákvað á fundi sínum í dag þann 26. janúar að hækka viðmiðunarverð í beinum viðskiptum í þorski um 3,0% og ýsu um 3,0%. Viðmiðunarverð á karfa er óbreytt. Ákvörðunin tekur gildi 1. febrúar 2007.

26. Janúar 2007 | ÚTVEGURINN

Samstarfsnefnd Íslands og Rússlands funda um sjávarútvegsmál

Samstarfsnefnd Íslands og Rússlands um tiltekna þætti í samstarfi á sviði sjávarútvegsmála hélt áttunda fund sinn í Reykjavík dagana 24.-25. janúar 2007. Á fundinum voru rædd þau mál sem helst eru á döfinni varðandi samstarf landanna.

Á fundinum skiptust fulltrúar landanna á upplýsingum um framkvæmd samnings frá 15. maí 1999 milli ríkisstjórnar Íslands, Noregs og Rússlands um tiltekna þætti í samstarfi á sviði sjávarútvegsins.

26. Janúar 2007 | ÚTVEGURINN

Rangfærslur aðila í norskum sjávarútvegi vegna síldarsamningsins.

Í tliefni af undirritun samnings um norsk-íslensku síldina í Osló í síðustu viku sendu Fiskebåtredernes Forbund, Norges Fiskarlag og FHL industri & export frá sameiginlega fréttatilkynningu. Í fréttatilkynningunni var spjótunum sérstaklega beint að Íslandi með óviðeigandi hætti. Í tilefni af því hefur LÍÚ sent viðkomandi aðilum bréf þar sem gerðar eru athugasemdir við augljósar rangfærslur. 

18. Janúar 2007 | ÚTVEGURINN

Samningur um norsk – íslenska síld

Í nótt var gerður samningur í Osló milli Íslands, Noregs, Færeyja, Rússlands og ESB um stjórn veiða úr norsk íslenska síldarstofninum árið 2007.

Samningurinn felur það í sér að heildaraflinn verður 1.280.000 tonn sem skiptist þannig að í hlut Íslands koma 185.728 tonn eða 14,51%, í hlut Noregs koma 780.800 tonn eða 61,00%, í hlut Færeyja koma 66.048 tonn eða 5,%, í hlut Rússa koma 164.096 tonn eða 12,82% og í hlut ESB koma 83.328 tonn eða 6,51%.

11. Janúar 2007 | ÚTVEGURINN

Byrjunarkvóti í loðnu gefinn út

Tillaga hefur borist frá Hafrannsóknastofnuninni um að leyfilegur upphafsafli í loðnu verði ákveðinn 180.000 tonn.  Í hlut Íslendinga koma 143.000 tonn, en Norðmenn, Færeyingar og Grænlendingar fá líka hlutdeild samkvæmt alþjóðasamningum.

9. Janúar 2007 | ÚTVEGURINN

Loðna finnst norður af Grímsey

Nokkuð magn af stórri og fallegri hrygningarloðnu hefur fundist um 30 sjómílur norður af Grímsey. Rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar,  Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson eru nú við loðnuleit eftir að hafa verið í vari undir Grímsey í á annan sólarhring. 


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta