Fréttir
30. September 2006 | ÚTVEGURINN
Nýr formaður hjá Útvegsmannafélagi Norðurlands
Á fundi í Útvegsmannafélagi
Norðurlands sem fór fram í vikunni var Kristján Vilhelmsson,
framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, kjörinn nýr formaður
Útvegsmannafélags Norðurlands. Kristján tekur við af Bjarna
Aðalgeirssyni útgerðarmanni á Húsavík.
14. September 2006 | ÚTVEGURINN
Fisksöluþjóð verður að vera fiskneysluþjóð
13. September 2006 | ÚTVEGURINN
Mikill meirihluti landsmanna með hvalveiðum einungis 11% á móti
Mikill meirihluti íslensku
þjóðarinnar, eða rúmlega 73% landsmanna, er fylgjandi því að
hvalveiðar í atvinnuskyni verði stundaðar og einungis 11% er því
andvígur, samkvæmt könnun Capacent Gallup sem kynnt var á
blaðamannafundi um hvalveiðar í atvinnuskyni sem fram fór í
dag.
Að fundinum stóðu Sjávarnytjar, LÍÚ, Landssamband smábátaeigenda, Sjómannasamband Íslands, Farmanna og fiskimannasamband Íslands, Vélstjórafélag Íslands, Félag hrefnuveiðimanna og Hvalur hf., en hann fór fram á veitingastaðnum Tveir Fiskar.
13. September 2006 | ÚTVEGURINN
Vöxtur hvalastofna hefur mikil áhrif á afrakstur þorskstofnsins.
Áætlað er að fjöldi stórra og
smárra hvala við Ísland sé rúm 300.000 dýr og er stærð
nokkurra stofna nú í sögulegu hámarki. Talið er
að að hvalir éti rúmlega 6 milljónir tonna af fæðu á
ári. Af þessari fæðu eru um 3 milljónir tonna krabbadýr af
ýmsum toga, fiskmeti nemur 2 milljónum tonna og smokkfiskur
um einni milljón tonna.
Hrefnan er atkvæðamesti afræninginn bæði hvað varðar heildarmagn (2 millj. tonna) og fiskát (1 millj.tonn). Talið er að hvalir éti á aðra milljón tonna af loðnu á ári og frumathuganir sérfræðinga Hafrannsóknastofnunarinnar benda til að frekari vöxtur hvalastofna gæti haft veruleg áhrif á langtíma afrakstur þorskstofnsins.
8. September 2006 | ÚTVEGURINN
Magnús hættir Sigurgeir Brynjar tekur við
Á aðalfundi Útvegsbændafélags Vestmannaeyja sem haldinn var í gær tilkynnti Magnús Kristinsson að hann hygðist ekki gefa kost á sér til áframhaldandi formennsku í félaginu, en Magnús hefur verið formaður s.l. 12 ár. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, forstjóri Vinnslustöðvarinnar, tekur við af Magnúsi.
1. September 2006 | ÚTVEGURINN
Fjöltækniskóli Íslands kaupir Flugskóla Íslands
Fjöltækniskóli
Íslands ehf og eigendur Flugskóli Íslands hf undirrituðu í dag
samningu um kaup Fjöltækniskólans á Flugskóla Íslands.
Fjöltækniskólinn fyrirhugar að reka Flugskóla Íslands áfram sem sjálfstæða rekstrareiningu en flytja starfsemi skólans í núverandi húsnæði Fjöltækniskólans og samnýta rekstrarúrræði eftir því sem kostur er.













