Fréttir
24. Ágúst 2006 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegsráðherra Noregs sækir LÍÚ heim
Sjávarútvegsráðherra Noregs,
Helga Pedersen, sótti heim skrifstofur LÍÚ nú í vikunni.
Þetta er í fyrsta sinn sem norskur ráðherra kemur í heimsókn
í höfuðstöðvar LÍÚ.
17. Ágúst 2006 | ÚTVEGURINN
Anna Heiða Ólafsdóttir fær námsstyrk LÍÚ
Anna Heiða Ólafsdóttir sem
stundar doktorsnám í fiskifræði við Memorial University of
Newfoundland, Kanada hlaut að þessu sinni námsstyrk LÍÚ til
framhaldsnáms í fiskifræði. Doktorsverkefni Önnu felst í að
rannsaka hvernig umhverfisþættir hafa áhrif á dreifingu og
útbreiðslu loðnu.
15. Ágúst 2006 | ÚTVEGURINN
Óskað eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna LÍÚ
Landssamband íslenskra útvegsmanna óskar eftir tilnefningum til
umhverfisverðlauna LÍÚ fyrir árið 2006. Öll félög í sjávarútvegi
koma til greina sem handhafar verðlaunanna sem eiga skip og eru
félagar í LÍÚ.
8. Ágúst 2006 | ÚTVEGURINN
Loðnuleit skilar kolmunna
Rannsóknaskipið
Bjarni Sæmundsson fann nokkuð magn af kolmunna vestur af
Bjargtöngum í loðnuleitarleiðangri sem er nýlokið. Í
framhaldi af því fékk Ásgrímur Halldórsson SF-250 leyfi til að
veiða á svæðinu og að sögn Gunnþórs B. Ingvasonar, útgerðarstjóra
Síldarvinnslunnar hf. sem gerir skipið út, fékk Ásgrímur um 1000
tonn af kolmunna í 4 holum. Uppistaðan í aflanum voru tvö 400 tonna
hol af stórum og góðum kolmunna. Veiðar á kolmuna á þessum slóðum
hafa ekki verið stundaðar í um 30 ár.













