Fréttir
24. Júlí 2006 | ÚTVEGURINN
Að færast fram á við.
Skoðun Friðriks J. Arngrímssonar í Fiskifréttum 21.07.2006
Ekki dettur
útgerðinni í hug að fara í Fréttablaðið og biðja um að birt verði
frétt um að Afl hafi reynt að svíkja nokkrar krónur út úr
útgerðinni. Þetta mál er einfaldlega til umfjöllunar og nú er
beðið eftir nýrri útlistun á meintum kröfum frá Afli. Í
framhaldi af því verður leitað leiða til að leysa málið og sem
betur fer eru flest mál milli sjómanna og útvegsmanna leyst með
samningum.
14. Júlí 2006 | ÚTVEGURINN
Sumarlokun skrifstofu LÍÚ 24. júlí til 7. ágúst
Skrifstofu LÍÚ verður lokað í tvær vikur frá mánudeginum 24. júlí til þriðjudagsins 8. ágúst nk. vegna sumarleyfa starfsfólks. Hægt er að ná í starfsmenn í farsíma (sjá nánar) meðan á sumarlokun stendur.
10. Júlí 2006 | ÚTVEGURINN
Ráðstefna um vistkerfisnálgun við stjórn fiskveiða
Dagana 26.-28. september verður haldin ráðstefna um vistkerfisnálgun við stjórn fiskveiða í Bergen í Noregi. Að ráðstefnunni standa Noregur, Ísland, Norræna ráðherranefndin og Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO).
Kristján Þórarinsson stofnvistfræðingur LÍÚ á sæti í dagskrárnefnd ráðstefnunnar sem lagði lokahönd á dagskrá ráðstefnunnar á fundi í Bergen 6. júlí s.l.
4. Júlí 2006 | ÚTVEGURINN
Ýsuafli 101% meiri en við upptöku kvótakerfisins
Grein eftir
Vilhjálm Jens Árnason, aðstoðarframkvæmdastjóra LÍÚ, sem birtist í
Morgunblaðinu 4. júlí 2006
Það er afar mikilvægt að gera skýran greinarmun á aflamarkskerfinu, sem er aðferð til að hámarka afrakstur þess sem ákveðið er að veiða, og vísindunum sem að ákvörðun um hámarksafla byggist á.













