Fréttir
28. Júní 2006 | ÚTVEGURINN
Leyfilegur heildarafli á næsta fiskveiðiári
Fréttatilkynning frá sjávarútvegsráðuneyti
Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla á næsta fiskveiðiári 2006-2007. Jafnframt hefur hann falið Hagfræðistofnun Háskóla Íslands að gera úttekt á þjóðhagslegum áhrifum af breyttu veiðihlutfalli á þorski samkvæmt aflareglu.
22. Júní 2006 | ÚTVEGURINN
Yfir 50 milljarðar á ári í styrki til sjávarútvegs ESB
Evrópusambandið
mun setja á stofn nýjan þróunarsjóð sem starfa mun í sjö ár og
velta um 3,8 milljörðum EVRA samkvæmt samkomulagi sem
sjávarútvegsráðherrar sambandsins gerðu nýlega. Sjóðurinn
tekur við af öðrum sjóð sem starfaði á árunum 2000-2006 og hafði
til umráða 5,6 milljarða Evra. Á sama tíma og
sjávarútvegur í Evrópusambandinu er styrktur með opinberum
fjármunum er íslenskur sjávarútvegur að greiða milljarða í skatta
og álögur umfram aðrar atvinnugreinar í landinu.
21. Júní 2006 | ÚTVEGURINN
Klippum á togvíra sjóræningjaskipa á Reykjaneshrygg
Friðrik J. Arngrímsson í viðtali við Fiskifréttir
,,Ég tel að kominn sé tími til að fara út í harðar aðgerðir gagnvart þeim skipum sem stunda ólöglegar úthafskarfaveiðar á Reykjaneshrygg. Annað hvort þarf að taka skipin eða draga upp gamla góða vopnið úr þorskastríðunum og klippa á togvíra þeirra, segir Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ í samtali við Fiskifréttir.
20. Júní 2006 | ÚTVEGURINN
Þorskur og karfi hækka um 5% þann 21. júní og ýsa hækkar um 10% frá sama tíma.
Þorskur og karfi hækka um 5% þann 21. júní og ýsa hækkar um 10% frá sama tíma.
Á fundi í Úrskuðarnefndar sjómanna og útvegsmanna þann 19. júní síðastliðinn ákvað nefndin að hækka viðmiðunarverð á þorski og karfa um 5% og verð á ýsu um 10%. Hækkunin tekur gildi frá 21. júní.
13. Júní 2006 | ÚTVEGURINN
Hafið, veiðistjórnunin, fyrirtækið og vörurnar mynda órofa heild
Ræða Eggerts Benedikts Guðmundssonar, forstjóra HB Granda hf. Sjómannadaginn, 11. júní 2006
"Ég er stoltur af því að
vinna hjá fyrirtæki, sem hefur á meðal starfsmanna sinna á fjórða
hundrað vaskra sjómanna, sem uppfylla þær margvíslegu kröfur, sem
við og okkar kaupendur gerum til þeirra. Ég er stoltur af því
að hafa fengið að kynnast mörgum þessara manna og fengið að læra af
þeirra fjölþættu reynslu. Ég er stoltur af því að hafa fengið
að vinna með þeim og kaupendum okkar að því að gera sem allra mest
verðmæti úr þeirri auðlind, sem fiskimiðin við landið okkar
eru."
8. Júní 2006 | ÚTVEGURINN
Fjöltækniskólinn bryddar upp á nýjungum í námi. Nám í rekstri og stjórnun meðal nýjunga
42 nemendur luku námi frá
Fjöltækniskólanum nú í vor, en innritaðir nemendur á haustönn voru
samtals 317. Stöðugt er verið að leita leiða til þess að bæta námið
og auka námsframboð. Meðal nýjunga er hagnýtt framhaldsnám í
rekstri og stjórnun. Námið á að henta öllum faglærðum sem hafa
reynslu úr atvinnulífinu, svo sem í sjávarútvegi, matvælaiðnaði,
ferðaþjónustu og öðrum atvinnugreinum.
3. Júní 2006 | ÚTVEGURINN
Veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar fyrir næsta fiskveiðiár birt
Veiðiráðgjöf
Hafrannsóknastofnunarinnar fyrir næsta fiskveiðiár var birt í
dag. Í ljósi niðurstaðna stofnunarinnar á síðasta ári er fátt
sem kemur á óvart. Stóru vonbrigðin eru að draga á úr veiði á
þorski. Stofnar ýsu og ufsa eru í góðu ástandi, þó að mælt sé með
að ýsuafli minnki miðað við yfirstandandi fiskveiðiár. Gert
er ráð fyrir að síldveiði verði aukin.
3. Júní 2006 | ÚTVEGURINN
Minni verðmæti, engir sértækir skattar
Friðrik J. Arngrímsson um stöðuna í ljósi tillagna Hafrannsóknastofnunarinnar um hámarksafla.
Það eru bæði jákvæðir og neikvæðir punktar í þessari ráðgjöf. Ég hafði vonast til að aflamark í þorski yrði ekki skert en það er ljóst að stofninn þarf að stækka og nýliðun hefur verið of slök undanfarin ár. Það er þó jákvætt að hrygningastofninn er að stækka. Ýsustofninn er mjög stór, síldarstofninn í góðu ástandi sem og ufsinn.
2. Júní 2006 | ÚTVEGURINN
Veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar.
Grein í Fiskifréttum 2 júní 2006 eftir Friðrik J. Arngrímsson
Birting
Hafrannsóknastofnunarinnar á gögnum úr togararalli hefur árum saman
gert lítið annað en að rugla þá sem málið varðar. Því vil ég
beina því til stofnunarinnar að hún breyti vinnubrögðum sínum
þannig að í stað þess að birta hluta þeirra upplýsinga sem aflast í
togararallinu verði beðið þar til úrvinnslu gagna lýkur.
1. Júní 2006 | ÚTVEGURINN
Samningarnir forsenda þess að ná tökum á stjórn fiskveiða
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, um tímamótin 1. júní 1976
Þessa dagana er þess minnst að 30 ár eru liðin frá því að samningar tókust um útfærslu 200 mílna fiskveiðilögsögu við Ísland, en þann 1. júní 1976 var samningur milli Breta og Íslendinga undirritaður í Osló Það er óumdeilt að útfærsla fiskveiðilögsögunnar úr 12 í 50 og síðar í 200 sjómílur sem lauk með samningunum við Breta og Þjóðverja í 200 mílna deilunni er forsenda þess að Íslendingar náðu tökum á stjórn fiskveiða innan lögsögunnar.













