Fréttir
26. Apríl 2006 | ÚTVEGURINN
Veiðarfæraúrgangur fluttur út í fyrsta sinn
Fyrsti skammturinn af veiðarfæraúrgangi sem safnað hefur verið á
vegum LÍÚ hefur nú verði sendur til endurvinnslu, en þann 12. apríl
sl. var fluttur gámur frá Höfn í Hornafirði áleiðis til Litháen með
12,5 tonn af veiðarfæraúrgangi.
25. Apríl 2006 | ÚTVEGURINN
Málþing um uppsjávarstofna
Málþing um uppsjávarstofna í
samvinnu FíF, LÍÚ, FFSÍ og Hafrannsóknastofnunarinnar var haldið á
Grand Hótel í Reykjavík föstudaginn 21. apríl sl.
Sjávarútvegsráðherra ávarpaði málþingið og síðan fluttu forstjóri
og sérfræðingar Hafrannsóknastofnunarinnar erindi auk fulltrúa
atvinnugreinarinnar.
10. Apríl 2006 | ÚTVEGURINN
Af slægingarstuðlum - Friðrik J. Arngrímsson svarar grein Gunnlaugs Ármanns Finnbogasonar
Gunnlaugur Ármann Finnbogason
formaður félags eigenda svokallaðra smábáta á norðanverðum
Vestfjörðum ritar einstaklega rætna grein í garð Hjartar Gíslasonar
blaðamanns vegna breytinga á svokölluðum slægingarstuðli í
Morgunblaðið laugardaginn 8. apríl 2006. Greinin er ekki
einungis áhugaverð fyrir það að vera full af rangfærslum heldur
ekki síður fyrir það hvernig hún opinberar vinnubrögð
fyrirsvarsmanna hinna svokölluðu smábátamanna í garð þeirra sem
fjalla á málefnalegan hátt um efni sem þeim eru ekki að skapi.
Þetta segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ í grein í
Morgunblaðinu 10. apríl, en greinin er svar við grein sem
Gunnlaugur Ármann Finnbogason skrifaði í blaðið 8.apríl.
10. Apríl 2006 | ÚTVEGURINN
Fiskverð: Þorskur, ýsa og karfi hækka um 5% 18. apríl - karfi hefur hækkað um 32% frá áramótum
Verð á þorski, ýsu og karfa
hækkar um 5% þann 18. apríl nk., en ákvörðun þess efnis var tekin í
Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna á fundi í dag, en nefndin
ákveður verð á þessum tegundum þegar útgerð ráðstafar afla til
eigin vinnslu. Þetta er í annað sinn sem fiskverð á þessum tegundum
hækkar á skömmum tíma, en síðast hækkaði verðið þann 22. mars sl.
Frá áramótum hefur verð á karfa hækkað mest eða um 32%.
6. Apríl 2006 | ÚTVEGURINN
Háskóli Íslands rannsakar sérstöðu íslenska fiskveiðistjórnunarkerfisins
6. Apríl 2006 | ÚTVEGURINN
Brottkast hefur minnkað verulega samkvæmt niðurstöðum könnunar
Verulega hefur dregið úr
brottkasti fisks á Íslandsmiðum samkvæmt nýrri könnun sem IMG
Gallup hefur gert fyrir sjávarútvegsráðuneytið. Niðurstöður benda
til að brottkast hafi minnkað um helming á síðustu fimm árum.
Rúmlega 10% sjómanna urðu varir við brottkast í síðustu veiðiferð
sinni, en hlutfallið var ríflega 20% fyrir fimm árum og rúm 18%
fyrir tveimur árum.
5. Apríl 2006 | ÚTVEGURINN
Togararallið 2006: Lægri stofnvísitala þorsks -- þýðir ekki samsvarandi minnkun kvóta
Hafrannsóknastofnunin hefur
sent frá sér fréttatilkynningu um helstu niðurstöður stofnmælingar
botnfiska á Íslandsmiðum 2006 - togararalls. Niðurstöður benda til
þess að þorskárgangur ársins 2005 sé nærri meðallagi og eru það
jákvæðar fréttir.
3. Apríl 2006 | ÚTVEGURINN
Óstöðvandi framkvæmdagleði - hvað gerir ríkisvaldið til þess að ná stöðugleika?
"Mikil þensla einkennir
nú íslenskt efnahagslíf. Ástæða þess er öðru fremur mikil bjartsýni
í þjóðfélaginu sem birtist í kaupgleði og gríðarlegum
framkvæmdum. Við nánast hvern einasta blett á höfuðborgarsvæðinu má
sjá heilan skóg af byggingakrönum til marks um þá gríðarlegu
fjárfestingu sem er í húsnæði. Svo eru stóriðjuframkvæmdir og
álversbyggingar í áður óþekktum stærðarskala sem enn auka á
þensluna. Á síðasta ári voru fluttar inn um 25 þúsund bifreiðar til
að nefna annað dæmi meira og minna fyrir erlent lánsfé."
Þetta segir m.a. í grein Sveins Hjartar Hjartarsonar, hagfræðings
LÍÚ, en greinin birtist í Morgunblaðinu þann 1. apríl. sl.













