Fréttir
29. Mars 2006 | ÚTVEGURINN
Styrkur til náms í fiskifræði og skyldum greinum
Landssamband íslenskra útvegsmanna auglýsir styrk til framhaldsnáms í fiskifræði, sjávarvistfræði eða sjávarlíffræði. Styrkurinn er ætlaður náttúrufræðingum sem hafa lokið eða eru að ljúka grunnnámi í háskóla (B.S. prófi) og hyggjast hefja framhaldsnám erlendis á næsta skólaári. Styrkupphæð er kr. 700.000,-.
17. Mars 2006 | ÚTVEGURINN
17% minni veiðiheimildir í úthafskarfa í ár
Íslenskum skipum verður
heimilt að veiða 28.610 lestir af úthafskarfa á þessu ári, samkvæmt
reglugerð sem sjávarútvegsráðherra hefur gefið út. Eru
veiðiheimildirnar í ár um 17% minni en í fyrra. Þetta magn skiptist
á tvö svæði og verður heimilt að veiða 23.406 lestir á deilisvæði
sem að hluta liggur innan lögsögunnar, en sá karfi er veiddur á
fyrri helmingi ársins, en 5.204 lestir á deilisvæði utan
lögsögunnar en sá karfi er veiddur á síðari helmingi ársins.
16. Mars 2006 | ÚTVEGURINN
Vilhjálmur Jens Árnason aðstoðarframkvæmdastjóri LÍÚ
Vilhjálmur Jens Árnason hefur
verið ráðinn í starf aðstoðarframkvæmdastjóra LÍÚ. Vilhjálmur mun
bera ábyrgð á kynningar-, stefnumótunar- og samskiptamálum.
16. Mars 2006 | ÚTVEGURINN
“Hún snýst nú samt” - Friðrik J. Arngrímsson skrifar um einhliða upptöku evru
"Hin frægu orð Galileo
Galilei Hún snýst nú samt komu í huga mér þegar ég las Staksteina
Morgunblaðsins 11. mars sl. Þar veittist blaðið að Valgerði
Sverrisdóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra á afar smekklausan
hátt."
Þetta segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ í grein
sem birtist í Fréttablaðinu í dag.
10. Mars 2006 | ÚTVEGURINN
Fyrirtækjum verði heimilað að verja helmingi auðlindagjalds til rannsókna og þróunarverkefna
Jón Eðvald Friðriksson,
framkvæmdastjóri FISK Seafood á Sauðárkróki leggur til að helmingi
þess fjár sem útgerðarfyrirtækin greiða í auðlindagjald megi þau
leggja til rannsókna og þróunarverkefna. Í tilviki FISK Seafood
gæti sú fjárhæð numið 20 til 40 milljónum króna á ári. Að mati Jóns
Eðvalds myndi slíkt fyrirkomulag laða ýmsar rannsókna- og
menntastofnanir til samstarfs við fyrirtækin og treysta árangur
þróunar og rannsóknarstarfsins.
9. Mars 2006 | ÚTVEGURINN
Iceprotein, próteinverksmiðja Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins flutt til Sauðárkróks
Próteinverksmiðja
Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, Iceprotein ehf, verður flutt á
Sauðárkrók og tekið upp samstarf um reksturinn við FISK Seafood, en
samningur þess efnis var undirritaður á Sauðárkróki sl. þriðjudag,
við opnun Versins, þróunarseturs Hólaskóla.
8. Mars 2006 | ÚTVEGURINN
Verið, þróunarsetur Háskólans á Hólum opnað í húsnæði FISK Seafood á Sauðárkróki
Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra opnaði Verið, Þróunarsetur Háskólans á Hólum
með formlegum hætti í gær, en Verið hefur aðstöðu í húsnæði sem
FISK Seafood á Sauðárkróki lætur í té. Við þetta tækifæri skrifuðu
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra og Valgerður
Sverrisdóttir iðnaðarráðherra undir samninga um 6 milljóna króna
fjárveitingu til Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins með það að
markmiði að efla og styrkja samstarf Rf, Hólaskóla, FISK-Seafood,
Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri.
2. Mars 2006 | ÚTVEGURINN
Þörf er á víðtækari beitingu skilgreinds nýtingarréttar til verndar fiskveiðiauðlindum
Matvælastofnun Sameinuðu
þjóðanna, FAO, leggur áherslu á nauðsyn þess að ríkisstjórnir setji
skýrar og sanngjarnar reglur um stjórnun aðgangs að sjávarauðlindum
og nýtingu þeirra. Þetta kom fram á stórri alþjóðlegri ráðstefnu um
fiskveiðistjórnun sem nú er haldin í Fremantle í Ástralíu, en frá
þessu er greint í frétt á heimasíðu FAO, www.fao.org. Ráðstefnan
stóð yfir dagana 26. febrúar til 2. mars.













