Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

20. Desember 2006 | ÚTVEGURINN

Seðlabankinn brást of seint við og aðhald hjá hinu opinbera skorti

Seðlabankinn var of lengi að taka við sér í upphafi núverandi hagavaxtarskeiðs og aðhald hjá opinberum aðilum, ekki síst hjá sveitarfélögunum skorti.  Afleiðingarnar voru þær að raungengi krónunnar hefur verið óstöðugt og hátt og verðbólga hefur farið langt fram yfir sett verðbólgumarkmið. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem kynnt var á blaðamannafundi í dag, en sérfræðingar Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands undir forystu Tryggva Þórs Herbertssonar, forstöðumanns stofnunarinnar,  hafa unnið skýrsluna sem ber heitið Hagstjórnarumhverfið og sambýli atvinnuvega.    

15. Desember 2006 | ÚTVEGURINN

Fræðslufundur um keyrslu véla á svartolíu

VM Félag vélstjóra og málmiðnaðarmanna, Vélar og skip ehf  og LÍÚ  halda fræðslufund um keyrslu véla á svartolíu á Grand Hótel Reykjavík  frá kl. 11.00-16.00, 28. desember 2006.

Sérfræðingar frá Wärtsilä vélaverksmiðjunum í Finnlandi munu halda fyrirlestra um efnið.

Fjallað verður um olíueyðslu, minnkun á útblæstri mengandi efna, nýjungar í brennsluolíukerfum, skrúfukerfi og þróun eyðsluminni og umhverfisvænni skipavéla

14. Desember 2006 | ÚTVEGURINN

Gild rök fyrir því að banna ekki botnvörpuveiðar.

John Connelly,  sem er forseti National Fisheries Institute (NFI) í Bandaríkjunum og  framkvæmdastjóri International Coalition of Fisheries Association (Alþjóðasamtökum fiskifélaga), tekur undir sjónarmið Íslendinga í botnvörpumálinu í bréfi til Washington Post nýlega, en í leiðara blaðsins þann 3. des  s.l. var fjallað um það mál og voru íslensk stjórnvöld m.a. gagnrýnd fyrir að vinna gegn allsherjarbanni á notkun botnvörpu á úthöfunum.

13. Desember 2006 | ÚTVEGURINN

Starfshópur skilar skýrslu um gjaldtöku í þágu hagsmunasamtaka

Starfshópur ráðuneytanna hefur skilað skýrslu um lögbundna gjaldtöku í þágu hagsmunasamtaka og félagafrelsisákvæði stjórnarskrárinnar.  Í skýrslunni er fjallað um hvaða úrbætur þurfi hugsanlega að gera á löggjöf í kjölfar álits umboðsmanns varðandi greiðslumiðlun í sjávarútvegi, búnaðargjald og tryggingagjald.

Á aðalfundi LÍÚ sem haldinn var í október 2005 var ályktað um greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins. Þar var samþykkt að beina því til stjórnvalda að lög um greiðslumiðlun í sjávarútvegi verði felld úr gildi.

13. Desember 2006 | ÚTVEGURINN

Viðmiðunarverð á þorski, ýsu og karfa hækkar

Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna ákvað á fundi sínum þann 13. desember að hækka viðmiðunarverð í beinum viðskiptum í þorski um 6,0%,  ýsu um 10,0% og karfa um 7,0%. Ákvörðunin tekur gildi 15. desember 2006.

5. Desember 2006 | ÚTVEGURINN

Þar skilur á milli

4. Desember 2006 | ÚTVEGURINN

AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi auglýsir eftir umsóknum

AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi auglýsir eftir umsóknum í styrki til rannsókna- og þróunarverkefna i sjávarútvegi.  Lögð verður áhersla á verkefni sem snerta fiskeldi, líftækni, veiðar, vinnslu, búnað, gæði og markaði.  

Styrkir AVS rannsóknasjóðs eru til hagnýtra rannsókna og ætlaðir einstaklingum, fyrirtækjum, rannsókna-, þróunar- og háskólastofnunum.

3. Desember 2006 | ÚTVEGURINN

Mikilvægast að styrkja úrræði strandríkja

Samningaviðræðum um fiskveiðiályktun allsherjarþings SÞ lauk í New York nýlega. Í viðræðunum var m.a. fjallað um vernd viðkvæmra vistkerfa hafsins gegn skaðlegum áhrifum fiskveiða og náðist samkomulag um hertar aðgerðir í þessu skyni.  Er því beint til ríkja og svæðisbundinna fiskveiðistjórnunarstofnana að grípa til sérstakra varúðarráðstafana til að vernda viðkvæm vistkerfi hafsins, svo sem kaldsjávarkóralla, neðansjávartinda og hverastrýtur, gegn skaðlegum áhrifum fiskveiða.  Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ sat fundinn og sagði hann að niðurstaða fundarins væri ásættanleg, en mikilvægast sé þó að styrkja úrræði strandríkja til þess að takast á við veiðar hentifánaskipa.  

1. Desember 2006 | ÚTVEGURINN

Mældi Hafrannsóknastofnunin veiðistofn þorsks stærri eða minni í haustralli en í marsralli?

Niðurstaða haustralls Hafrannsóknastofunarinnar leiðir ekki til breyttra væntinga um stærð þorskstofnsins á næsta ári, né heldur um veiðihorfur á næsta fiskveiðiári.  Hvort veiðistofninn mældist stærri eða minni í haustrallinu eða marsrallinu er ekki vitað, enda ekki unnið úr gögnum haustrallsins með það að markmiði.


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta