Fréttir
23. Nóvember 2006 | ÚTVEGURINN
Gæslan fylgist með bæði hjá löglegum skipum og ólöglegum
21. Nóvember 2006 | ÚTVEGURINN
Sögulegt samkomulag um stjórn kolmunnaveiða
Ársfundur Norðaustur-Atlantshafs fiskveiðinefndarinnar, NEAFC
Ársfundi
Norðaustur-Atlantshafs fiskveiðinefndarinnar, NEAFC, lauk í London
nýlega. Mestu tíðindin af þessum ársfundi eru líklega þau að
þar náðist samkomulag um stjórn kolmunnaveiða sem öll veiðiríkin
samþykkja. Á síðasta ári náðist strandríkjasamkomulag um stjórn
veiðanna, sem batt enda á stjórnlausar ofveiðar fyrri ára, en
Rússar stóðu utan þess. Aðilar strandríkjasamkomulagsins náðu nú
samkomulagi við Rússa sem vissulega markar tímamót þar sem hlutur
hvers veiðiríkis hefur verið ákveðin.
21. Nóvember 2006 | ÚTVEGURINN
Íslendingar taki forystu í baráttunni gegn sjóræningjaveiðum
Framkvæmdastjóri LÍÚ fagnar afstöðu Valgerðar Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, um sjóræningjaveiðar sem fram komu í skýrslu um utanríkismál á Alþingi
Friðrik J. Arngrímsson,
framkvæmdastjóri LÍÚ fagnar afstöðu utanríkisráðherra sem fram kom
í skýrslu hennar um utanríkismál á Alþingi s.l. fimmtudag 16.
nóvember. Valgerður sagði m.a. að ólöglegar og eftirlitslausar
fiskveiðar skipa, sem skráð væru undir hentifána, væru alvarleg
ógnun við hagsmuni sjávarútvegsríkja. Við þessari ógn verður að
bregðast af fullri einurð. Við Íslendingar eigum að taka forystu í
baráttunni gegn sjóræningjaveiðum. Hún sagði jafnframt að
Íslendingar stæðu hugsanlega frammi fyrir því að heyja nýtt
þorskastríð til varnar fiskimiðunum umhverfis landið gegn
taumlausri rányrkju.
13. Nóvember 2006 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegsráðherra Kanada í heimsókn
Sjávarútvegsráðherra Kanada,
Loyola Hearn, átti fund með fulltrúum LÍÚ í gær, mánudag 13
nóvember. Á fundinum voru ýmiss mál rædd, en mest var þó
fjallað um þá umræðu sem nú fer fram á alþjóðavettvangi
um umhverfismál. Kanada er í hópi stærstu útflytjenda
sjávarafurða í heiminum og sjávarútvegur er ein mikilvægasta
atvinnugreinin í nokkrum fylkjum landsins.
Ráðherrann var hér á landi í stuttri heimsókn, en héðan hélt hann til Noregs til fundar við norska ráðamenn.













