Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

27. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Heildaraflamark í Kolmunna lækkar um 15% samkvæmt nýjum samningi strandríkjanna

Fyrsta fundi aðila strandríkjasamnings um stjórnun kolmunnaveiða lauk í Þórshöfn í Færeyjum í dag. Samningurinn var gerður seint á síðasta ári og kom böndum á þær stjórnlausu veiðar sem viðgengist höfðu árin á undan.

Samkvæmt samningnum fær Ísland í sinn hlut 17,63% af heildaraflamarki strandríkjanna, Evrópusambandið 30,5%, Færeyjar 26,125% og Noregur 25,745%.

20. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Er verðbólgumarkmiðið hugsanlega of metnaðarfullt?

Ræða formanns Landssambands íslenskra útvegsmanna, Björgólfs Jóhannssonar, á aðalfundi

Kjarasamningar hafa í gegnum tíðina tekið allnokkuð pláss í ræðu formanns.  Nú ber svo við að í ræðu minni mun ég lítið koma inn á kjarasamninga svo undarlega sem það kann að hljóma Ræðan verður því væntanlega stutt í ár.

Á aðalfundi fyrir rétt tæpu ári síðan var gengi krónunnar mál málanna.  Nú erum við hér aftur komin og enn er það staða krónunnar sem er efst á baugi.

20. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Ræða Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra á aðalfundi LÍÚ

 

Sautjándi október sl. var góður dagur. Þann dag undirritaði ég reglugerð um að hvalveiðar í atvinnuskyni skyldu hafnar að nýju. Þetta var ekki stórt skref í sjálfu sér. Heimildin kvað á um veiðar á 9 langreyðum og 30 hrefnum á þessu fiskveiðiári. En þetta var stórt skref í þeim skilningi að veiðar í atvinnuskyni hafa legið niðri um 20 ára skeið. Ákvörðunin nú felur í sér að við brjótum ísinn, ljúkum óvissu sem grúft hefur yfir þessari sjálfsögðu auðlindanýtingu okkar og hrindum af stað veiðum í anda þeirrar sjálfbæru nýtingarstefnu sem við höfum haft að leiðarljósi.

20. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Núverandi kvótakerfi hefur sannað gildi sitt

Ræða Geirs H. Haarde á aðalfundi LÍÚ

Núverandi kvótakerfi hefur sannað gildi sitt. Það hefur leitt til bæði ábyrgrar og hagkvæmrar nýtingar auðlindarinnar. Með upptöku auðlindagjaldsins á sínum tíma var einnig séð til þess að útgerðarmenn greiddu rentu til þjóðarinnar fyrir afnot af auðlindinni. Brýnasta verkefnið er að treysta þá sátt sem er um núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi. Eyða þarf enn frekar óvissu um réttarstöðu útgerðarmanna, þannig að ljóst liggi fyrir að réttindi þau sem þeir nú kaupa á markaði muni ekki á einni nóttu verða af þeim tekin. Með þeim hætti skapast traustari rekstrarforsendur, útgerðirnar geta skipulagt rekstur sinn til lengri tíma. Jafnframt stuðlar slíkt að enn ábyrgari umgengni um auðlindina.

20. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Alyktanir Aðalfundar LÍÚ

Ályktanir Aðalfundar LÍÚ 2006

Á Aðalfundi LÍÚ sem lauk í dag var m.a. ályktaði um hvalveiðar, starfsskilyrði sjávarútvegsins, vaxtastefnu seðlabankans og um aukið samstarf atvinnurekenda í sjávarútvegi.   

20. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Ný stjórn LÍÚ

Ný stjórn LÍÚ var kjörinn á aðalfundi í dag. Björgólfur Jóhannsson gegnir áfram formennsku. Gunnar Ásgeirrson var nú kjörinn sem aðalmaður í stjórn, en var áður varamaður, en Sigurður Bjarnason gekk úr stjórn.

20. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Dala-Rafn fékk Umhverfisverðlaun LÍÚ 2006

Dala-Rafn í Vestmannaeyjum hlaut Umhverfisverðlaun LÍÚ 2006, en verðlaunin voru nú veitt í áttunda sinn. Þau eru veitt aðilum innan samtakanna sem þykja hafa skarað fram úr á sviði umhverfismála. 

17. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Hvalveiðar í atvinnuskyni heimilaðar

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra hefur í dag tekið ákvörðun í samráði við ríkisstjórnina um veiðiheimildir vegna hvalveiða á fiskveiðiárinu 2006/2007. Er þessi ákvörðun tekin á grunni stefnu stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu lifandi auðlinda hafsins og með hliðsjón af ályktun Alþingis um hvalveiðar frá 10. mars 1999.´

LÍÚ hefur lengi hvatt til þess að hvalveiðar í atvinnuskyni verði hafnar hér við land vegna þeirra áhrifa sem hvalastofnar hafa á nytjastofna og vegna þeirrar stefnu að nýta beri allar auðlindir hafsins á sjálfbæran hátt.  Af hálfu samtakanna er því litið á þetta sem mikil tímamót.   

16. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Aukning í afla af norsk-íslenskri síld og minnkun kolmunnaafla

Haustráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins

Haustráðgjöf fiskveiðiráðgjafarnefndar (ACFM) Alþjóðahafrannsóknaráðsins hefur nú verið birt. Ráðlagt er að veiða 1 280 000 tonn af norsk-íslenskri síld á næsta ári, en samsvarandi ráðgjöf fyrir yfirstandandi ár var 732 000 tonn.  Hrygningarstofnstærð er áætluð 10 milljónir tonna og veiðarnar eru taldar sjálfbærar

13. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Vistkerfisnálgun við stjórn fiskveiða

Dagana 26.-28. sept. 2006 var haldin alþjóðleg ráðstefna um vistkerfisnálgun við stjórn fiskveiða í Bergen í Noregi.  Ráðstefnan var haldin á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, Noregs og Íslands með tæknilegum stuðningi frá Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO). Ráðstefnan var liður í stefnumörkun Norðurlandanna fyrir fund fiskveiðinefndar FAO í mars á næsta ári, en þar verður fjallað sérstaklega um skuldbindingar ríkja á þessu sviði.

13. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Misskilningur að Bandaríkaforseti vilji banna botnvörpuveiðar

" Það er misskilningur að Bandaríkaforseti vilji banna botnvörpuveiðar og það er einnig ólíklegt að ályktað verði um stöðvun botnvörpuveiða á úthafinu" segir Kristján Þórarinsson, stofnvistfræðingur LÍÚ, en hann sat samráðsfund um málið hjá Sameinuðu þjóðunum í New York nýlega. Að sögn Kristjáns er markmið viðræðnanna að vernda viðkvæm vistkerfi í hafinu.  "Einkum er um að ræða kóralsvæði, neðansjávartinda og hverastrýtur, fyrir skaðlegum áhrifum veiða.  Um þetta markmið eru öll þátttökuríkin einhuga en þau greinir á um leiðir. 

6. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Aðalfundur LÍÚ 2006

Aðalfundur Landssambands íslenskra útvegsmanna verður haldinn dagana 19. og 20. október nk. á Nordica Hótel í Reykjavík.

Dagskrá fundarins fer hér á eftir.

4. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Aðalframkvæmdstjóri EFTA fundar með fulltrúum LÍÚ

Staða EFTA og samskiptin við Evrópusambandið var meðal þess sem rætt var um á fundi fulltrúa LÍÚ og Kåre Bryn aðalframkvæmdastjóra EFTA.  Hann er nú staddur hér á landi og hefur átt fundi með ráðmönnum og helstu hagsmunaaðilum. 

Kåre Bryn tók við stöðu framkvæmdastjóra EFTA fyrir rúmum mánuði, en hann hefur um margra ára skeið starfað innan norsku utanríkisþjónustunnar og var meðal annars fulltrúi Noregs á fundum Alþjóðahvalveiðiráðsins.  


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta