Fréttir
24. Janúar 2006 | ÚTVEGURINN
Flutningur aflamarks einfaldaður, samkvæmt nýju frumvarpi
5. Janúar 2006 | ÚTVEGURINN
Móttaka hafin á endurnýtanlegum veiðarfæraúrgangi úr gerviefnum
Landssamband íslenskra útvegsmanna hóf um áramótin móttöku á
endurnýtanlegum veiðarfæraúrgangi úr gerviefnum í samræmi við
samning LÍÚ og Úrvinnslusjóðs sem gerður var á sl. ári. Í
samningnum er kveðið á um ráðstafanir til að tryggja úrvinnslu
úrgangs vegna veiðarfæra úr gerviefnunum. Tekið er á móti
endurnýtanlegum veiðarfæraúrgangi frá úrgangshafa án endurgjalds í
móttökustöð á Grandagarði, Reykjavík, alla virka daga frá kl. 08:00
til 16:00.
3. Janúar 2006 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegsráðherra boðar aðgerðir vegna veiða hentifánaskipa á Reykjaneshrygg
Aukið eftirlit
Landhelgisgæslunnar á Reykjaneshrygg, ósk um liðsinni stjórnvalda
og sjávarútvegsfyrirtækja, aðallega í Evrópu og eftirlit með
umskipun afla á hafi úti, eru meðal aðgerða sem gripið verður til í
vor, en markmið þeirra er að stemma stigu við ólöglegum
úthafskarfaveiðum hentifánaskipa á Reykjaneshrygg. Jafnframt verður
leitast við að koma í veg fyrir viðskipti með afla þeirra. Þessar
aðgerðir boðaði Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, á
fréttamannfundi í dag. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri
LÍÚ, fagnar áformum stjórnvalda um aðgerðir gegn veiðum
hentifánaskipa á Reykjaneshrygg. Segir hann að LÍÚ hafi árum saman
barist fyrir því að á þessum veiðum verði tekið.













