Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

20. Desember 2006 | ÚTVEGURINN

Seðlabankinn brást of seint við og aðhald hjá hinu opinbera skorti

Seðlabankinn var of lengi að taka við sér í upphafi núverandi hagavaxtarskeiðs og aðhald hjá opinberum aðilum, ekki síst hjá sveitarfélögunum skorti.  Afleiðingarnar voru þær að raungengi krónunnar hefur verið óstöðugt og hátt og verðbólga hefur farið langt fram yfir sett verðbólgumarkmið. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem kynnt var á blaðamannafundi í dag, en sérfræðingar Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands undir forystu Tryggva Þórs Herbertssonar, forstöðumanns stofnunarinnar,  hafa unnið skýrsluna sem ber heitið Hagstjórnarumhverfið og sambýli atvinnuvega.    

15. Desember 2006 | ÚTVEGURINN

Fræðslufundur um keyrslu véla á svartolíu

VM Félag vélstjóra og málmiðnaðarmanna, Vélar og skip ehf  og LÍÚ  halda fræðslufund um keyrslu véla á svartolíu á Grand Hótel Reykjavík  frá kl. 11.00-16.00, 28. desember 2006.

Sérfræðingar frá Wärtsilä vélaverksmiðjunum í Finnlandi munu halda fyrirlestra um efnið.

Fjallað verður um olíueyðslu, minnkun á útblæstri mengandi efna, nýjungar í brennsluolíukerfum, skrúfukerfi og þróun eyðsluminni og umhverfisvænni skipavéla

14. Desember 2006 | ÚTVEGURINN

Gild rök fyrir því að banna ekki botnvörpuveiðar.

John Connelly,  sem er forseti National Fisheries Institute (NFI) í Bandaríkjunum og  framkvæmdastjóri International Coalition of Fisheries Association (Alþjóðasamtökum fiskifélaga), tekur undir sjónarmið Íslendinga í botnvörpumálinu í bréfi til Washington Post nýlega, en í leiðara blaðsins þann 3. des  s.l. var fjallað um það mál og voru íslensk stjórnvöld m.a. gagnrýnd fyrir að vinna gegn allsherjarbanni á notkun botnvörpu á úthöfunum.

13. Desember 2006 | ÚTVEGURINN

Starfshópur skilar skýrslu um gjaldtöku í þágu hagsmunasamtaka

Starfshópur ráðuneytanna hefur skilað skýrslu um lögbundna gjaldtöku í þágu hagsmunasamtaka og félagafrelsisákvæði stjórnarskrárinnar.  Í skýrslunni er fjallað um hvaða úrbætur þurfi hugsanlega að gera á löggjöf í kjölfar álits umboðsmanns varðandi greiðslumiðlun í sjávarútvegi, búnaðargjald og tryggingagjald.

Á aðalfundi LÍÚ sem haldinn var í október 2005 var ályktað um greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins. Þar var samþykkt að beina því til stjórnvalda að lög um greiðslumiðlun í sjávarútvegi verði felld úr gildi.

13. Desember 2006 | ÚTVEGURINN

Viðmiðunarverð á þorski, ýsu og karfa hækkar

Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna ákvað á fundi sínum þann 13. desember að hækka viðmiðunarverð í beinum viðskiptum í þorski um 6,0%,  ýsu um 10,0% og karfa um 7,0%. Ákvörðunin tekur gildi 15. desember 2006.

5. Desember 2006 | ÚTVEGURINN

Þar skilur á milli

4. Desember 2006 | ÚTVEGURINN

AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi auglýsir eftir umsóknum

AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi auglýsir eftir umsóknum í styrki til rannsókna- og þróunarverkefna i sjávarútvegi.  Lögð verður áhersla á verkefni sem snerta fiskeldi, líftækni, veiðar, vinnslu, búnað, gæði og markaði.  

Styrkir AVS rannsóknasjóðs eru til hagnýtra rannsókna og ætlaðir einstaklingum, fyrirtækjum, rannsókna-, þróunar- og háskólastofnunum.

3. Desember 2006 | ÚTVEGURINN

Mikilvægast að styrkja úrræði strandríkja

Samningaviðræðum um fiskveiðiályktun allsherjarþings SÞ lauk í New York nýlega. Í viðræðunum var m.a. fjallað um vernd viðkvæmra vistkerfa hafsins gegn skaðlegum áhrifum fiskveiða og náðist samkomulag um hertar aðgerðir í þessu skyni.  Er því beint til ríkja og svæðisbundinna fiskveiðistjórnunarstofnana að grípa til sérstakra varúðarráðstafana til að vernda viðkvæm vistkerfi hafsins, svo sem kaldsjávarkóralla, neðansjávartinda og hverastrýtur, gegn skaðlegum áhrifum fiskveiða.  Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ sat fundinn og sagði hann að niðurstaða fundarins væri ásættanleg, en mikilvægast sé þó að styrkja úrræði strandríkja til þess að takast á við veiðar hentifánaskipa.  

1. Desember 2006 | ÚTVEGURINN

Mældi Hafrannsóknastofnunin veiðistofn þorsks stærri eða minni í haustralli en í marsralli?

Niðurstaða haustralls Hafrannsóknastofunarinnar leiðir ekki til breyttra væntinga um stærð þorskstofnsins á næsta ári, né heldur um veiðihorfur á næsta fiskveiðiári.  Hvort veiðistofninn mældist stærri eða minni í haustrallinu eða marsrallinu er ekki vitað, enda ekki unnið úr gögnum haustrallsins með það að markmiði.

23. Nóvember 2006 | ÚTVEGURINN

Gæslan fylgist með bæði hjá löglegum skipum og ólöglegum

21. Nóvember 2006 | ÚTVEGURINN

Sögulegt samkomulag um stjórn kolmunnaveiða

Ársfundur Norðaustur-Atlantshafs fiskveiðinefndarinnar, NEAFC

Ársfundi Norðaustur-Atlantshafs fiskveiðinefndarinnar, NEAFC, lauk í London nýlega.  Mestu tíðindin af þessum ársfundi eru líklega þau að þar náðist samkomulag um stjórn kolmunnaveiða sem öll veiðiríkin samþykkja. Á síðasta ári náðist strandríkjasamkomulag um stjórn veiðanna, sem batt enda á stjórnlausar ofveiðar fyrri ára, en Rússar stóðu utan þess. Aðilar strandríkjasamkomulagsins náðu nú samkomulagi við Rússa sem vissulega markar tímamót þar sem hlutur hvers veiðiríkis hefur verið ákveðin.

21. Nóvember 2006 | ÚTVEGURINN

Íslendingar taki forystu í baráttunni gegn sjóræningjaveiðum

Framkvæmdastjóri LÍÚ fagnar afstöðu Valgerðar Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, um sjóræningjaveiðar sem fram komu  í skýrslu um utanríkismál á Alþingi

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ fagnar afstöðu utanríkisráðherra sem fram kom í skýrslu hennar um utanríkismál á Alþingi s.l. fimmtudag 16. nóvember. Valgerður sagði m.a. að ólöglegar og eftirlitslausar fiskveiðar skipa, sem skráð væru undir hentifána, væru alvarleg ógnun við hagsmuni sjávarútvegsríkja. Við þessari ógn verður að bregðast af fullri einurð. Við Íslendingar eigum að taka forystu í baráttunni gegn sjóræningjaveiðum. Hún sagði jafnframt að Íslendingar stæðu  hugsanlega frammi fyrir því að heyja nýtt þorskastríð til varnar fiskimiðunum umhverfis landið gegn taumlausri rányrkju.  

 

13. Nóvember 2006 | ÚTVEGURINN

Sjávarútvegsráðherra Kanada í heimsókn

Sjávarútvegsráðherra Kanada, Loyola Hearn, átti fund með fulltrúum LÍÚ í gær, mánudag 13 nóvember.  Á fundinum voru ýmiss mál rædd, en mest var þó fjallað um þá umræðu sem nú fer fram á alþjóðavettvangi um umhverfismál.  Kanada er í hópi stærstu útflytjenda sjávarafurða í heiminum og sjávarútvegur er ein mikilvægasta atvinnugreinin í nokkrum fylkjum landsins. 

Ráðherrann var hér á landi í stuttri heimsókn, en héðan hélt hann til Noregs til fundar við norska ráðamenn. 

27. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Heildaraflamark í Kolmunna lækkar um 15% samkvæmt nýjum samningi strandríkjanna

Fyrsta fundi aðila strandríkjasamnings um stjórnun kolmunnaveiða lauk í Þórshöfn í Færeyjum í dag. Samningurinn var gerður seint á síðasta ári og kom böndum á þær stjórnlausu veiðar sem viðgengist höfðu árin á undan.

Samkvæmt samningnum fær Ísland í sinn hlut 17,63% af heildaraflamarki strandríkjanna, Evrópusambandið 30,5%, Færeyjar 26,125% og Noregur 25,745%.

20. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Er verðbólgumarkmiðið hugsanlega of metnaðarfullt?

Ræða formanns Landssambands íslenskra útvegsmanna, Björgólfs Jóhannssonar, á aðalfundi

Kjarasamningar hafa í gegnum tíðina tekið allnokkuð pláss í ræðu formanns.  Nú ber svo við að í ræðu minni mun ég lítið koma inn á kjarasamninga svo undarlega sem það kann að hljóma Ræðan verður því væntanlega stutt í ár.

Á aðalfundi fyrir rétt tæpu ári síðan var gengi krónunnar mál málanna.  Nú erum við hér aftur komin og enn er það staða krónunnar sem er efst á baugi.

20. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Ræða Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra á aðalfundi LÍÚ

 

Sautjándi október sl. var góður dagur. Þann dag undirritaði ég reglugerð um að hvalveiðar í atvinnuskyni skyldu hafnar að nýju. Þetta var ekki stórt skref í sjálfu sér. Heimildin kvað á um veiðar á 9 langreyðum og 30 hrefnum á þessu fiskveiðiári. En þetta var stórt skref í þeim skilningi að veiðar í atvinnuskyni hafa legið niðri um 20 ára skeið. Ákvörðunin nú felur í sér að við brjótum ísinn, ljúkum óvissu sem grúft hefur yfir þessari sjálfsögðu auðlindanýtingu okkar og hrindum af stað veiðum í anda þeirrar sjálfbæru nýtingarstefnu sem við höfum haft að leiðarljósi.

20. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Núverandi kvótakerfi hefur sannað gildi sitt

Ræða Geirs H. Haarde á aðalfundi LÍÚ

Núverandi kvótakerfi hefur sannað gildi sitt. Það hefur leitt til bæði ábyrgrar og hagkvæmrar nýtingar auðlindarinnar. Með upptöku auðlindagjaldsins á sínum tíma var einnig séð til þess að útgerðarmenn greiddu rentu til þjóðarinnar fyrir afnot af auðlindinni. Brýnasta verkefnið er að treysta þá sátt sem er um núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi. Eyða þarf enn frekar óvissu um réttarstöðu útgerðarmanna, þannig að ljóst liggi fyrir að réttindi þau sem þeir nú kaupa á markaði muni ekki á einni nóttu verða af þeim tekin. Með þeim hætti skapast traustari rekstrarforsendur, útgerðirnar geta skipulagt rekstur sinn til lengri tíma. Jafnframt stuðlar slíkt að enn ábyrgari umgengni um auðlindina.

20. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Alyktanir Aðalfundar LÍÚ

Ályktanir Aðalfundar LÍÚ 2006

Á Aðalfundi LÍÚ sem lauk í dag var m.a. ályktaði um hvalveiðar, starfsskilyrði sjávarútvegsins, vaxtastefnu seðlabankans og um aukið samstarf atvinnurekenda í sjávarútvegi.   

20. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Ný stjórn LÍÚ

Ný stjórn LÍÚ var kjörinn á aðalfundi í dag. Björgólfur Jóhannsson gegnir áfram formennsku. Gunnar Ásgeirrson var nú kjörinn sem aðalmaður í stjórn, en var áður varamaður, en Sigurður Bjarnason gekk úr stjórn.

20. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Dala-Rafn fékk Umhverfisverðlaun LÍÚ 2006

Dala-Rafn í Vestmannaeyjum hlaut Umhverfisverðlaun LÍÚ 2006, en verðlaunin voru nú veitt í áttunda sinn. Þau eru veitt aðilum innan samtakanna sem þykja hafa skarað fram úr á sviði umhverfismála. 

17. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Hvalveiðar í atvinnuskyni heimilaðar

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra hefur í dag tekið ákvörðun í samráði við ríkisstjórnina um veiðiheimildir vegna hvalveiða á fiskveiðiárinu 2006/2007. Er þessi ákvörðun tekin á grunni stefnu stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu lifandi auðlinda hafsins og með hliðsjón af ályktun Alþingis um hvalveiðar frá 10. mars 1999.´

LÍÚ hefur lengi hvatt til þess að hvalveiðar í atvinnuskyni verði hafnar hér við land vegna þeirra áhrifa sem hvalastofnar hafa á nytjastofna og vegna þeirrar stefnu að nýta beri allar auðlindir hafsins á sjálfbæran hátt.  Af hálfu samtakanna er því litið á þetta sem mikil tímamót.   

16. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Aukning í afla af norsk-íslenskri síld og minnkun kolmunnaafla

Haustráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins

Haustráðgjöf fiskveiðiráðgjafarnefndar (ACFM) Alþjóðahafrannsóknaráðsins hefur nú verið birt. Ráðlagt er að veiða 1 280 000 tonn af norsk-íslenskri síld á næsta ári, en samsvarandi ráðgjöf fyrir yfirstandandi ár var 732 000 tonn.  Hrygningarstofnstærð er áætluð 10 milljónir tonna og veiðarnar eru taldar sjálfbærar

13. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Vistkerfisnálgun við stjórn fiskveiða

Dagana 26.-28. sept. 2006 var haldin alþjóðleg ráðstefna um vistkerfisnálgun við stjórn fiskveiða í Bergen í Noregi.  Ráðstefnan var haldin á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, Noregs og Íslands með tæknilegum stuðningi frá Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO). Ráðstefnan var liður í stefnumörkun Norðurlandanna fyrir fund fiskveiðinefndar FAO í mars á næsta ári, en þar verður fjallað sérstaklega um skuldbindingar ríkja á þessu sviði.

13. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Misskilningur að Bandaríkaforseti vilji banna botnvörpuveiðar

" Það er misskilningur að Bandaríkaforseti vilji banna botnvörpuveiðar og það er einnig ólíklegt að ályktað verði um stöðvun botnvörpuveiða á úthafinu" segir Kristján Þórarinsson, stofnvistfræðingur LÍÚ, en hann sat samráðsfund um málið hjá Sameinuðu þjóðunum í New York nýlega. Að sögn Kristjáns er markmið viðræðnanna að vernda viðkvæm vistkerfi í hafinu.  "Einkum er um að ræða kóralsvæði, neðansjávartinda og hverastrýtur, fyrir skaðlegum áhrifum veiða.  Um þetta markmið eru öll þátttökuríkin einhuga en þau greinir á um leiðir. 

6. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Aðalfundur LÍÚ 2006

Aðalfundur Landssambands íslenskra útvegsmanna verður haldinn dagana 19. og 20. október nk. á Nordica Hótel í Reykjavík.

Dagskrá fundarins fer hér á eftir.

4. Október 2006 | ÚTVEGURINN

Aðalframkvæmdstjóri EFTA fundar með fulltrúum LÍÚ

Staða EFTA og samskiptin við Evrópusambandið var meðal þess sem rætt var um á fundi fulltrúa LÍÚ og Kåre Bryn aðalframkvæmdastjóra EFTA.  Hann er nú staddur hér á landi og hefur átt fundi með ráðmönnum og helstu hagsmunaaðilum. 

Kåre Bryn tók við stöðu framkvæmdastjóra EFTA fyrir rúmum mánuði, en hann hefur um margra ára skeið starfað innan norsku utanríkisþjónustunnar og var meðal annars fulltrúi Noregs á fundum Alþjóðahvalveiðiráðsins.  

30. September 2006 | ÚTVEGURINN

Nýr formaður hjá Útvegsmannafélagi Norðurlands

Á fundi í Útvegsmannafélagi Norðurlands sem fór fram í vikunni var Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, kjörinn nýr formaður Útvegsmannafélags Norðurlands. Kristján tekur við af Bjarna Aðalgeirssyni útgerðarmanni á Húsavík. 

14. September 2006 | ÚTVEGURINN

Fisksöluþjóð verður að vera fiskneysluþjóð

13. September 2006 | ÚTVEGURINN

Mikill meirihluti landsmanna með hvalveiðum einungis 11% á móti

Mikill meirihluti íslensku þjóðarinnar, eða rúmlega 73% landsmanna, er fylgjandi því að hvalveiðar í atvinnuskyni verði stundaðar og einungis 11% er því andvígur, samkvæmt könnun Capacent Gallup sem kynnt var á blaðamannafundi um hvalveiðar í atvinnuskyni sem fram fór í dag. 

Að fundinum stóðu Sjávarnytjar, LÍÚ, Landssamband smábátaeigenda, Sjómannasamband Íslands, Farmanna og fiskimannasamband Íslands, Vélstjórafélag Íslands, Félag hrefnuveiðimanna og Hvalur hf., en hann fór fram á veitingastaðnum Tveir Fiskar.  

13. September 2006 | ÚTVEGURINN

Vöxtur hvalastofna hefur mikil áhrif á afrakstur þorskstofnsins.

Áætlað er að fjöldi stórra og smárra hvala við Ísland sé rúm 300.000 dýr og er stærð nokkurra stofna nú í sögulegu hámarki.  Talið er að að hvalir éti rúmlega 6 milljónir tonna af fæðu á ári.  Af þessari fæðu eru um 3 milljónir tonna krabbadýr af ýmsum toga, fiskmeti nemur 2 milljónum tonna og smokkfiskur um einni milljón tonna. 

Hrefnan er atkvæðamesti afræninginn bæði hvað varðar heildarmagn (2 millj. tonna) og fiskát (1 millj.tonn). Talið er að hvalir éti á aðra milljón tonna af loðnu á ári og frumathuganir sérfræðinga Hafrannsóknastofnunarinnar benda til að frekari vöxtur hvalastofna gæti haft veruleg áhrif á langtíma afrakstur þorskstofnsins. 

8. September 2006 | ÚTVEGURINN

Magnús hættir Sigurgeir Brynjar tekur við

Á aðalfundi Útvegsbændafélags Vestmannaeyja sem haldinn var í gær tilkynnti Magnús Kristinsson að hann hygðist ekki gefa kost á sér til áframhaldandi formennsku í félaginu, en Magnús hefur verið formaður s.l. 12 ár.  Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, forstjóri Vinnslustöðvarinnar, tekur við af Magnúsi.  

1. September 2006 | ÚTVEGURINN

Fjöltækniskóli Íslands kaupir Flugskóla Íslands

Fjöltækniskóli Íslands ehf og eigendur Flugskóli Íslands hf undirrituðu í dag samningu um kaup Fjöltækniskólans á Flugskóla Íslands.

Fjöltækniskólinn fyrirhugar að reka Flugskóla Íslands áfram sem sjálfstæða rekstrareiningu en flytja starfsemi skólans í núverandi húsnæði Fjöltækniskólans og samnýta rekstrarúrræði eftir því sem kostur er.

24. Ágúst 2006 | ÚTVEGURINN

Sjávarútvegsráðherra Noregs sækir LÍÚ heim

Sjávarútvegsráðherra Noregs, Helga Pedersen, sótti heim skrifstofur LÍÚ nú í vikunni.  Þetta er í fyrsta sinn sem norskur ráðherra kemur í heimsókn í höfuðstöðvar LÍÚ.

17. Ágúst 2006 | ÚTVEGURINN

Anna Heiða Ólafsdóttir fær námsstyrk LÍÚ

Anna Heiða Ólafsdóttir sem stundar doktorsnám í fiskifræði við Memorial University of Newfoundland, Kanada hlaut að þessu sinni námsstyrk LÍÚ til framhaldsnáms í fiskifræði. Doktorsverkefni Önnu felst í að rannsaka hvernig umhverfisþættir hafa áhrif á dreifingu og útbreiðslu loðnu.

15. Ágúst 2006 | ÚTVEGURINN

Óskað eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna LÍÚ

Landssamband íslenskra útvegsmanna óskar eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna LÍÚ fyrir árið 2006. Öll félög í sjávarútvegi koma til greina sem handhafar verðlaunanna sem eiga skip og eru félagar í LÍÚ.

14. Ágúst 2006 | ÚTVEGURINN

Þorskurinn og fæðan

8. Ágúst 2006 | ÚTVEGURINN

Loðnuleit skilar kolmunna

Rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson fann nokkuð magn af kolmunna vestur af Bjargtöngum í loðnuleitarleiðangri sem er nýlokið.  Í framhaldi af því fékk Ásgrímur Halldórsson SF-250 leyfi til að veiða á svæðinu og að sögn Gunnþórs B. Ingvasonar, útgerðarstjóra Síldarvinnslunnar hf. sem gerir skipið út, fékk Ásgrímur um 1000 tonn af kolmunna í 4 holum. Uppistaðan í aflanum voru tvö 400 tonna hol af stórum og góðum kolmunna. Veiðar á kolmuna á þessum slóðum hafa ekki verið stundaðar í um 30 ár.  

24. Júlí 2006 | ÚTVEGURINN

Að færast fram á við.

Skoðun Friðriks J. Arngrímssonar í Fiskifréttum 21.07.2006 

Ekki dettur útgerðinni í hug að fara í Fréttablaðið og biðja um að birt verði frétt um að Afl hafi reynt að svíkja nokkrar krónur út úr útgerðinni.  Þetta mál er einfaldlega til umfjöllunar og nú er beðið eftir nýrri útlistun á meintum kröfum frá Afli.  Í framhaldi af því verður leitað leiða til að leysa málið og sem betur fer eru flest mál milli sjómanna og útvegsmanna leyst með samningum. 

14. Júlí 2006 | ÚTVEGURINN

Sumarlokun skrifstofu LÍÚ 24. júlí til 7. ágúst

Skrifstofu LÍÚ verður lokað í tvær vikur frá mánudeginum 24. júlí til þriðjudagsins 8. ágúst nk. vegna sumarleyfa starfsfólks.  Hægt er að ná í starfsmenn í farsíma (sjá nánar) meðan á sumarlokun stendur.

10. Júlí 2006 | ÚTVEGURINN

Ráðstefna um vistkerfisnálgun við stjórn fiskveiða

Dagana 26.-28. september verður haldin ráðstefna um vistkerfisnálgun við stjórn fiskveiða í Bergen í Noregi. Að ráðstefnunni standa Noregur, Ísland, Norræna ráðherranefndin og Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO). 

Kristján Þórarinsson stofnvistfræðingur LÍÚ á sæti í dagskrárnefnd ráðstefnunnar sem lagði lokahönd á dagskrá ráðstefnunnar á fundi í Bergen 6. júlí s.l.  

4. Júlí 2006 | ÚTVEGURINN

Ýsuafli 101% meiri en við upptöku kvótakerfisins

Grein eftir Vilhjálm Jens Árnason, aðstoðarframkvæmdastjóra LÍÚ, sem birtist í Morgunblaðinu 4. júlí 2006 

Það er afar mikilvægt að gera skýran greinarmun á aflamarkskerfinu, sem er aðferð til að hámarka afrakstur þess sem ákveðið er að veiða, og vísindunum sem að ákvörðun um hámarksafla byggist á.

28. Júní 2006 | ÚTVEGURINN

Leyfilegur heildarafli á næsta fiskveiðiári

Fréttatilkynning frá sjávarútvegsráðuneyti  

Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla á næsta fiskveiðiári 2006-2007. Jafnframt hefur hann falið Hagfræðistofnun Háskóla Íslands að gera úttekt á þjóðhagslegum áhrifum af breyttu veiðihlutfalli á þorski samkvæmt aflareglu.

22. Júní 2006 | ÚTVEGURINN

Yfir 50 milljarðar á ári í styrki til sjávarútvegs ESB

Evrópusambandið mun setja á stofn nýjan þróunarsjóð sem starfa mun í sjö ár og velta um 3,8 milljörðum EVRA samkvæmt samkomulagi sem sjávarútvegsráðherrar sambandsins gerðu nýlega.  Sjóðurinn tekur við af öðrum sjóð sem starfaði á árunum 2000-2006 og hafði til umráða 5,6 milljarða Evra.   Á sama tíma og sjávarútvegur í Evrópusambandinu er styrktur með opinberum fjármunum er íslenskur sjávarútvegur að greiða milljarða í skatta og álögur umfram aðrar atvinnugreinar í landinu.

21. Júní 2006 | ÚTVEGURINN

Klippum á togvíra sjóræningjaskipa á Reykjaneshrygg

Friðrik J. Arngrímsson í viðtali við Fiskifréttir

,,Ég tel að kominn sé tími til að fara út í harðar aðgerðir gagnvart þeim skipum sem stunda ólöglegar úthafskarfaveiðar á Reykjaneshrygg. Annað hvort þarf að taka skipin eða draga upp gamla góða vopnið úr þorskastríðunum og klippa á togvíra þeirra, segir Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ í samtali við Fiskifréttir.

20. Júní 2006 | ÚTVEGURINN

Þorskur og karfi hækka um 5% þann 21. júní og ýsa hækkar um 10% frá sama tíma.

 Þorskur og karfi hækka um 5% þann 21. júní og ýsa hækkar um 10% frá sama  tíma.

Á fundi í  Úrskuðarnefndar sjómanna og útvegsmanna þann 19. júní síðastliðinn ákvað nefndin að hækka viðmiðunarverð á þorski og karfa um 5% og verð á ýsu um 10%. Hækkunin tekur gildi frá 21. júní.

13. Júní 2006 | ÚTVEGURINN

Hafið, veiðistjórnunin, fyrirtækið og vörurnar mynda órofa heild

Ræða Eggerts Benedikts Guðmundssonar, forstjóra HB Granda hf. Sjómannadaginn, 11. júní 2006

"Ég er stoltur af því að vinna hjá fyrirtæki, sem hefur á meðal starfsmanna sinna á fjórða hundrað vaskra sjómanna, sem uppfylla þær margvíslegu kröfur, sem við og okkar kaupendur gerum til þeirra.  Ég er stoltur af því að hafa fengið að kynnast mörgum þessara manna og fengið að læra af þeirra fjölþættu reynslu.  Ég er stoltur af því að hafa fengið að vinna með þeim og kaupendum okkar að því að gera sem allra mest verðmæti úr þeirri auðlind, sem fiskimiðin við landið okkar eru." 

8. Júní 2006 | ÚTVEGURINN

Fjöltækniskólinn bryddar upp á nýjungum í námi. Nám í rekstri og stjórnun meðal nýjunga

42 nemendur luku námi frá Fjöltækniskólanum nú í vor, en innritaðir nemendur á haustönn voru samtals 317. Stöðugt er verið að leita leiða til þess að bæta námið og auka námsframboð.  Meðal nýjunga er hagnýtt framhaldsnám í rekstri og stjórnun. Námið á að henta öllum faglærðum sem hafa reynslu úr atvinnulífinu, svo sem í sjávarútvegi, matvælaiðnaði, ferðaþjónustu og öðrum atvinnugreinum.   

3. Júní 2006 | ÚTVEGURINN

Veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar fyrir næsta fiskveiðiár birt

Veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar fyrir næsta fiskveiðiár var birt í dag.  Í ljósi niðurstaðna stofnunarinnar á síðasta ári er fátt sem kemur á óvart. Stóru vonbrigðin eru að draga á úr veiði á þorski. Stofnar ýsu og ufsa eru í góðu ástandi, þó að mælt sé með að ýsuafli minnki miðað við yfirstandandi fiskveiðiár.  Gert er ráð fyrir að síldveiði verði aukin. 

3. Júní 2006 | ÚTVEGURINN

Minni verðmæti, engir sértækir skattar

Friðrik J. Arngrímsson um stöðuna í ljósi tillagna Hafrannsóknastofnunarinnar um hámarksafla.

Það eru bæði jákvæðir og neikvæðir punktar í þessari ráðgjöf. Ég hafði vonast til að aflamark í þorski yrði ekki skert en það er ljóst að stofninn þarf að stækka og nýliðun hefur verið of slök undanfarin ár.  Það er þó jákvætt að hrygningastofninn er að stækka.  Ýsustofninn er mjög stór, síldarstofninn í góðu ástandi sem og ufsinn.   

2. Júní 2006 | ÚTVEGURINN

Veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar.

Grein í Fiskifréttum 2 júní 2006 eftir Friðrik J. Arngrímsson

Birting Hafrannsóknastofnunarinnar á gögnum úr togararalli hefur árum saman gert lítið annað en að rugla þá sem málið varðar.  Því vil ég beina því til stofnunarinnar að hún breyti vinnubrögðum sínum þannig að í stað þess að birta hluta þeirra upplýsinga sem aflast í togararallinu verði beðið þar til úrvinnslu gagna lýkur.

1. Júní 2006 | ÚTVEGURINN

Samningarnir forsenda þess að ná tökum á stjórn fiskveiða

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, um tímamótin 1. júní 1976

Þessa dagana er þess minnst að 30 ár eru liðin frá því að samningar tókust um útfærslu 200 mílna fiskveiðilögsögu við Ísland, en þann 1. júní 1976 var samningur milli Breta og Íslendinga undirritaður í Osló  Það er óumdeilt að útfærsla fiskveiðilögsögunnar úr 12 í 50 og síðar í 200 sjómílur sem lauk með samningunum við Breta og Þjóðverja í 200 mílna deilunni er forsenda þess að Íslendingar náðu  tökum á stjórn fiskveiða innan lögsögunnar.

19. Maí 2006 | ÚTVEGURINN

Norsk-íslenska síldin í íslenska lögsögu

Samkvæmt niðurstöðum úr rannsóknarleiðangri færeyska hafrannsóknaskipsins Magnúsar Heinason er nú töluvert af síld úr norsk-íslenska síldarstofninum innan íslensku lögsögunnar.

18. Maí 2006 | ÚTVEGURINN

Rannsóknarsetur um lífríki sjávar.

Stofnfundur rannsóknarseturs um lífríki sjávar var nýlega haldinn í Snæfellsbæ, en LÍÚ er einn af 22 stofnaðilum.  Um er að ræða fyrstu sjálfseignarstofnunun á sviði hafrannsókna hérlendis.   Markmið rannsóknarsetursins er að efla rannsóknir á lífríki sjávar með sérstakri áherslu á hið einstaka lífríki sjávar í Breiðafirði til að auka þekkingu á vistkerfinu í þeim tilgangi að auka nýtingu sjávarfangs og bæta arðsemi.  

2. Maí 2006 | ÚTVEGURINN

Ný ákvörðun um fiskverð

Á fundi í Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna í dag 2. maí  ákvað nefndin að hækka viðmiðunarverð á þorski og karfa um 7% og ýsu um 10%. Þessi hækkun tekur gildi þann 5. maí og eru vegna áframhaldandi lækkunar á gengi íslensku krónunnar undanfarnar vikur.

26. Apríl 2006 | ÚTVEGURINN

Veiðarfæraúrgangur fluttur út í fyrsta sinn

Fyrsti skammturinn af veiðarfæraúrgangi sem safnað hefur verið á vegum LÍÚ hefur nú verði sendur til endurvinnslu, en þann 12. apríl sl. var fluttur gámur frá Höfn í Hornafirði áleiðis til Litháen með 12,5 tonn af veiðarfæraúrgangi.

25. Apríl 2006 | ÚTVEGURINN

Málþing um uppsjávarstofna

Málþing um uppsjávarstofna í samvinnu FíF, LÍÚ, FFSÍ og Hafrannsóknastofnunarinnar var haldið á Grand Hótel í Reykjavík föstudaginn 21. apríl sl.  Sjávarútvegsráðherra ávarpaði málþingið og síðan fluttu forstjóri og sérfræðingar Hafrannsóknastofnunarinnar erindi auk fulltrúa atvinnugreinarinnar.

10. Apríl 2006 | ÚTVEGURINN

Af slægingarstuðlum - Friðrik J. Arngrímsson svarar grein Gunnlaugs Ármanns Finnbogasonar

Gunnlaugur Ármann Finnbogason formaður félags eigenda svokallaðra smábáta á norðanverðum Vestfjörðum ritar einstaklega rætna grein í garð Hjartar Gíslasonar blaðamanns vegna breytinga á svokölluðum slægingarstuðli í Morgunblaðið laugardaginn 8. apríl 2006.  Greinin er ekki einungis áhugaverð fyrir það að vera full af rangfærslum heldur ekki síður fyrir það hvernig hún opinberar vinnubrögð fyrirsvarsmanna hinna svokölluðu smábátamanna í garð þeirra sem fjalla á málefnalegan hátt um efni sem þeim eru ekki að skapi.

Þetta segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ í grein í Morgunblaðinu 10. apríl, en greinin er svar við grein sem Gunnlaugur Ármann Finnbogason skrifaði í blaðið 8.apríl.

10. Apríl 2006 | ÚTVEGURINN

Fiskverð: Þorskur, ýsa og karfi hækka um 5% 18. apríl - karfi hefur hækkað um 32% frá áramótum

Verð á þorski, ýsu og karfa hækkar um 5% þann 18. apríl nk., en ákvörðun þess efnis var tekin í Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna á fundi í dag, en nefndin ákveður verð á þessum tegundum þegar útgerð ráðstafar afla til eigin vinnslu. Þetta er í annað sinn sem fiskverð á þessum tegundum hækkar á skömmum tíma, en síðast hækkaði verðið þann 22. mars sl. Frá áramótum hefur verð á karfa hækkað mest eða um 32%.

6. Apríl 2006 | ÚTVEGURINN

Háskóli Íslands rannsakar sérstöðu íslenska fiskveiðistjórnunarkerfisins

6. Apríl 2006 | ÚTVEGURINN

Brottkast hefur minnkað verulega samkvæmt niðurstöðum könnunar

Verulega hefur dregið úr brottkasti fisks á Íslandsmiðum samkvæmt nýrri könnun sem IMG Gallup hefur gert fyrir sjávarútvegsráðuneytið. Niðurstöður benda til að brottkast hafi minnkað um helming á síðustu fimm árum. Rúmlega 10% sjómanna urðu varir við brottkast í síðustu veiðiferð sinni, en hlutfallið var ríflega 20% fyrir fimm árum og rúm 18% fyrir tveimur árum.

5. Apríl 2006 | ÚTVEGURINN

Togararallið 2006: Lægri stofnvísitala þorsks -- þýðir ekki samsvarandi minnkun kvóta

Hafrannsóknastofnunin hefur sent frá sér fréttatilkynningu um helstu niðurstöður stofnmælingar botnfiska á Íslandsmiðum 2006 - togararalls. Niðurstöður benda til þess að þorskárgangur ársins 2005 sé nærri meðallagi og eru það jákvæðar fréttir.

3. Apríl 2006 | ÚTVEGURINN

Óstöðvandi framkvæmdagleði - hvað gerir ríkisvaldið til þess að ná stöðugleika?

"Mikil þensla einkennir nú íslenskt efnahagslíf. Ástæða þess er öðru fremur mikil bjartsýni í þjóðfélaginu sem birtist í kaupgleði og  gríðarlegum framkvæmdum. Við nánast hvern einasta blett á höfuðborgarsvæðinu má sjá heilan skóg af byggingakrönum til marks um þá gríðarlegu fjárfestingu sem er í húsnæði. Svo eru stóriðjuframkvæmdir og álversbyggingar í áður óþekktum stærðarskala sem enn auka á þensluna. Á síðasta ári voru fluttar inn um 25 þúsund bifreiðar til að nefna annað dæmi meira og minna fyrir erlent lánsfé."
Þetta segir m.a. í grein Sveins Hjartar Hjartarsonar, hagfræðings LÍÚ, en greinin birtist í Morgunblaðinu þann 1. apríl. sl.

29. Mars 2006 | ÚTVEGURINN

Styrkur til náms í fiskifræði og skyldum greinum

Landssamband íslenskra útvegsmanna auglýsir styrk til framhaldsnáms í fiskifræði, sjávarvistfræði eða sjávarlíffræði.  Styrkurinn er ætlaður náttúrufræðingum sem hafa lokið eða eru að ljúka grunnnámi í háskóla (B.S. prófi) og hyggjast hefja framhaldsnám erlendis á næsta skólaári.  Styrkupphæð er kr. 700.000,-.

17. Mars 2006 | ÚTVEGURINN

17% minni veiðiheimildir í úthafskarfa í ár

Íslenskum skipum verður heimilt að veiða 28.610 lestir af úthafskarfa á þessu ári, samkvæmt reglugerð sem sjávarútvegsráðherra hefur gefið út. Eru veiðiheimildirnar í ár um 17% minni en í fyrra. Þetta magn skiptist á tvö svæði og verður heimilt að veiða 23.406 lestir á deilisvæði sem að hluta liggur innan lögsögunnar, en sá karfi er veiddur á fyrri helmingi ársins, en 5.204 lestir á deilisvæði utan lögsögunnar en sá karfi er veiddur á síðari helmingi ársins.

16. Mars 2006 | ÚTVEGURINN

Vilhjálmur Jens Árnason aðstoðarframkvæmdastjóri LÍÚ

Vilhjálmur Jens Árnason hefur verið ráðinn í starf aðstoðarframkvæmdastjóra LÍÚ. Vilhjálmur mun bera ábyrgð á kynningar-, stefnumótunar- og samskiptamálum.

16. Mars 2006 | ÚTVEGURINN

“Hún snýst nú samt” - Friðrik J. Arngrímsson skrifar um einhliða upptöku evru

"Hin frægu orð Galileo Galilei Hún snýst nú samt komu í huga mér þegar ég las Staksteina Morgunblaðsins 11. mars sl.  Þar veittist blaðið að Valgerði Sverrisdóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra á afar smekklausan hátt."

Þetta segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ í grein sem birtist í Fréttablaðinu í dag. 

10. Mars 2006 | ÚTVEGURINN

Fyrirtækjum verði heimilað að verja helmingi auðlindagjalds til rannsókna og þróunarverkefna

Jón Eðvald Friðriksson, framkvæmdastjóri FISK Seafood á Sauðárkróki leggur til að helmingi þess fjár sem útgerðarfyrirtækin greiða í auðlindagjald megi þau leggja til rannsókna og þróunarverkefna. Í tilviki FISK Seafood gæti sú fjárhæð numið 20 til 40 milljónum króna á ári. Að mati Jóns Eðvalds myndi slíkt fyrirkomulag laða ýmsar rannsókna- og menntastofnanir til samstarfs við fyrirtækin og treysta árangur þróunar og rannsóknarstarfsins.

9. Mars 2006 | ÚTVEGURINN

Iceprotein, próteinverksmiðja Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins flutt til Sauðárkróks

Próteinverksmiðja Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, Iceprotein ehf, verður flutt á Sauðárkrók og tekið upp samstarf um reksturinn við FISK Seafood, en samningur þess efnis var undirritaður á Sauðárkróki sl. þriðjudag, við opnun Versins, þróunarseturs Hólaskóla.

8. Mars 2006 | ÚTVEGURINN

Verið, þróunarsetur Háskólans á Hólum opnað í húsnæði FISK Seafood á Sauðárkróki

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra opnaði Verið, Þróunarsetur Háskólans á Hólum með formlegum hætti í gær, en Verið hefur aðstöðu í húsnæði sem FISK Seafood á Sauðárkróki lætur í té. Við þetta tækifæri skrifuðu Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra og Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra undir samninga um 6 milljóna króna fjárveitingu til Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins með það að markmiði að efla og styrkja samstarf Rf, Hólaskóla, FISK-Seafood, Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri.

2. Mars 2006 | ÚTVEGURINN

Þörf er á víðtækari beitingu skilgreinds nýtingarréttar til verndar fiskveiðiauðlindum

Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna, FAO, leggur áherslu á nauðsyn þess að ríkisstjórnir setji skýrar og sanngjarnar reglur um stjórnun aðgangs að sjávarauðlindum og nýtingu þeirra. Þetta kom fram á stórri alþjóðlegri ráðstefnu um fiskveiðistjórnun sem nú er haldin í Fremantle í Ástralíu, en frá þessu er greint í frétt á heimasíðu FAO, www.fao.org. Ráðstefnan stóð yfir dagana 26. febrúar til 2. mars.

21. Febrúar 2006 | ÚTVEGURINN

Hagur fiskveiða og fiskvinnslu 2004

Hagstofa Íslands hefur nú birt afkomu fiskveiða og fiskvinnslu fyrir árið 2004. Það markverðasta í þessu yfirliti er að afkoma sjávarútvegsins versnaði mikið frá árinu 2003. Í fiskveiðum og fiskvinnslu lækkaði verg hlutdeild/EBITDA úr 20% í 15,5%. Í fiskveiðum fór hlutfallið úr 21,5%  árið 2003 í 17% af tekjum árið 2004 en í fiskvinnslu fór það úr 8,5% árið 2003 í 7% árið 2004.

3. Febrúar 2006 | ÚTVEGURINN

Loðnukvóti íslensku skipanna aukinn í 150 þúsund tonn

Sjávarútvegsráðuneytið ákvað í dag að auka loðnukvótann um 110 þúsund lestir og koma 103 þúsund lestir í hlut íslenskra skipa. Loðnukvóti íslensku skipanna á vertíðinni er því um 150 þúsund tonn.

3. Febrúar 2006 | ÚTVEGURINN

Veiðarfæraúrgangur farinn að berast til móttökustöðvarinnar

Móttaka á vegum LÍÚ á endurnýtanlegum veiðarfæraúrgangi úr gerviefnunum hófst um sl. áramót, en tekið er á móti úrganginum án endurgjalds í móttökustöð á Grandagarði í Reykjavík. Nú er úrgangur farinn að berast til móttökustöðvarinnar, en fyrstir til að skila inn úrgangi voru útgerðarmennirnir í Aðalbjörgu, þeir Stefán, Guðbjartur og Sigurður Einarssynir, en fyrirtæki þeirra hlaut umhverfisverðlaun LÍÚ árið 2005.

1. Febrúar 2006 | ÚTVEGURINN

Byrjunarkvóti í loðnu rúm 47 þúsund tonn

Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð um byrjunarkvóta í loðnu og verður leyfilegur heildarafli íslenskra skipa á vertíðinni 47.219 lestir. Reglugerðin byggir á tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar um bráðabirgðakvóta.

24. Janúar 2006 | ÚTVEGURINN

Flutningur aflamarks einfaldaður, samkvæmt nýju frumvarpi

5. Janúar 2006 | ÚTVEGURINN

Móttaka hafin á endurnýtanlegum veiðarfæraúrgangi úr gerviefnum

Landssamband íslenskra útvegsmanna hóf um áramótin móttöku á endurnýtanlegum veiðarfæraúrgangi úr gerviefnum í samræmi við samning LÍÚ og Úrvinnslusjóðs sem gerður var á sl. ári. Í samningnum er kveðið á um ráðstafanir til að tryggja úrvinnslu úrgangs vegna veiðarfæra úr gerviefnunum. Tekið er á móti endurnýtanlegum veiðarfæraúrgangi frá úrgangshafa án endurgjalds í móttökustöð á Grandagarði, Reykjavík, alla virka daga frá kl. 08:00 til 16:00.

3. Janúar 2006 | ÚTVEGURINN

Sjávarútvegsráðherra boðar aðgerðir vegna veiða hentifánaskipa á Reykjaneshrygg

Aukið eftirlit Landhelgisgæslunnar á Reykjaneshrygg, ósk um liðsinni stjórnvalda og sjávarútvegsfyrirtækja, aðallega í Evrópu og eftirlit með umskipun afla á hafi úti, eru meðal aðgerða sem gripið verður til í vor, en markmið þeirra er að stemma stigu við ólöglegum úthafskarfaveiðum hentifánaskipa á Reykjaneshrygg. Jafnframt verður leitast við að koma í veg fyrir viðskipti með afla þeirra. Þessar aðgerðir boðaði Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, á fréttamannfundi í dag. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, fagnar áformum stjórnvalda um aðgerðir gegn veiðum hentifánaskipa á Reykjaneshrygg. Segir hann að LÍÚ hafi árum saman barist fyrir því að á þessum veiðum verði tekið.


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta