Fréttir
5. Júlí 2005 | ÚTVEGURINN
39 hrefnur verða veiddar í vísindaskyni á þessu ári
Gefin verða út leyfi til að
veiða allt að 39 hrefnur í hvalarannsóknaáætlun
Hafrannsóknastofnunarinnar á þessu ári, en áætlunin gerir ráð fyrir
veiðum á 200 hrefnum, 200 langreyðum og 100 sandreyðum. Ekki verður
farið í veiðar á langreyði og sandreyði að þessu sinni, að því fram
kemur í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu.













