Fréttir
21. Mars 2005 | ÚTVEGURINN
Styrkur til náms í fiskifræði og skyldum greinum
Landssamband íslenskra útvegsmanna auglýsir styrk til
framhaldsnáms í fiskifræði, sjávarvistfræði eða
sjávarlíffræði. Styrkurinn er ætlaður náttúrufræðingum sem
hafa lokið eða eru að ljúka grunnnámi í háskóla (B.S. prófi) og
hyggjast hefja framhaldsnám erlendis á næsta skólaári.
Styrkupphæð er kr. 500.000,-.
11. Mars 2005 | ÚTVEGURINN
Fiskveiðistjórnun á grundvelli aflamarkskerfis lykilatriði
Sjálfbærir fiskistofnar og
ábyrg fiskveiðistjórnun eins og Íslendingar stunda eru þau atriði
sem tveir erlendir fyrirlesarar lögðu mikla áherslu á í ræðum sínum
á ráðstefnu sjávarútvegsráðuneytisins, Fiskurinn og framtríðin, sem
haldin var í Reykjavík föstudaginn 4. mars sl. Þetta voru þeir
Quentin Clark, innkaupastjóri bresku stórmarkaðskeðjunnar Waitrose
og Johann Lindenberg stjórnarformaður Unilever í Þýskalandi, en
Unilever er eitt stærsta fyrirtæki heims.
10. Mars 2005 | ÚTVEGURINN
Alþjóðlegar leiðbeinandi reglur um umhverfismerkingar samþykktar
Fundur Fiskimálanefndar Matvæla- og landbúnaðarstofnunar
Sameinuðu þjóðanna (FAO), samþykkti í dag leiðbeinandi reglur
um umhverfismerkingar sjávarafurða. Þar með er mikilvægum áfanga
náð eftir nær áratugar starf að þessum málum innan FAO, segir í
frétt frá sjávarútvegsráðuneytinu í dag.
4. Mars 2005 | ÚTVEGURINN
Rannsóknaskip verður sent á loðnumiðin
Ríkisstjórnin samþykkti á
fundi sínum í morgun tillögu sjávarútvegsráðherra þess efnis að
fjárveiting til loðnurannsókna verði aukin um 3 milljónir króna, en
það fé verður m.a. nýtt til rannsókna á loðnugöngu sem fundist
hefur undan Vestfjörðum.
2. Mars 2005 | ÚTVEGURINN
Nauðsynlegt að auka kvótann í norsk íslenska síldarstofninum
Nauðsynlegt er að stjórnvöld
auki kvóta íslenskra skipa í norsk íslenska síldarstofninum í
samræmi við þá kvótaaukningu sem Norðmenn hafa einhliða tekið
sér.













