Fréttir
30. Desember 2005 | ÚTVEGURINN
Nýr kjarasamningur við vélstjóra undirritaður í dag
Vélstjórafélag Íslands,
Landssamband íslenskra útvegsmanna og Samtök atvinnulífsins gerðu í
dag nýjan kjarasamning um kjör vélstjóra á fiskiskipum.
Kjarasamningurinn kemur í stað samnings aðilanna frá 2001 sem
rennur út þann 31. desember 2005. Gildistími er til 31. maí
2008.
22. Desember 2005 | ÚTVEGURINN
Fjöltækniskóli Íslands útskrifar fyrstu nemendur sína
Fjöltækniskóli Íslands
útskrifaði sína fyrstu nemendur undir nýju nafni skólans og
sameinuðum skóla 20. desember 2005, en sl. vor var Vélskóla Íslands
og Stýrimannaskólanum í Reykjavík formlega slitið í síðasta sinn.
Nemendur Fjöltækniskólans útskrifuðust með skipstjórnarpróf og
vélstjórnarpróf og vélstjórar einnig með stúdentspróf. Nemendur sem
luku námi frá Fjöltækniskólanum að þessu sinni voru 14, þar af 5 á
vélstjórnarsviði og 9 á skipstjórnarsviði.
22. Desember 2005 | ÚTVEGURINN
Viðmiðunarverð á karfa hækkar
Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna ákvað á fundi sínum þann
21. desember 2005 að hækka viðmiðunarverð á karfa um 7%.
16. Desember 2005 | ÚTVEGURINN
Samningur um kolmunnann í höfn
Samningur strandríkjanna um
stjórn veiða úr kolmunnastofninum var undirritaður í Osló í dag og
lýkur þar með stjórnlausum veiðum úr stofninum sem staðið hafa yfir
undanfarin ár. Að samkomulaginu standa auk Íslands,
Evrópusambandið, Noregur og Færeyjar. Samningurinn byggir á
samkomulagi hagsmunaaðila landanna; Landssambands íslenskra
útvegsmanna, Samtaka norskra fiskiskipaeigenda og Northern Pelagic
Working Group (ESB), sem náðist í september á þessu ári.
15. Desember 2005 | ÚTVEGURINN
Norðmenn ofveiða norsk-íslensku síldina
Norðmenn og framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins hafa komist að tvíhliða samkomulagi um veiðar
þjóðanna úr norskíslenska síldarstofninum á næsta ári. Samkvæmt
samkomulaginu munu Norðmenn veiða 564.200 tonn af norsk-íslenskri
síld 2006 og skip aðildaríkja ESB 62.000 tonn. Þá fá ESB skip að
veiða síld í norskri lögsögu og einnig verður banni við löndun
þeirra á síld í Noregi aflétt.
12. Desember 2005 | ÚTVEGURINN
Úrvinnslugjald innheimt af umbúðum úr pappír, pappa og plasti
Alþingi hefur samþykkt breytingar á lögum um úrvinnslugjald sem
fela í sér að frá áramótum verður lagt úrvinnslugjald á allar
umbúðir úr pappa, pappír og plasti sem fara á markað. Innflytjendur
verða því að gefa upp magn flutnings- og söluumbúða utan um vöru
sem flutt er til landsins. Jafnframt verða innlendir
umbúðaframleiðendur að gefa upp magn seldra umbúða. Álagning
úrvinnslugjalds á pappa, pappír og plast er liður í að uppfylla
skyldur sem Íslendingar hafa gengist undir með þátttöku í Evrópska
efnahagssvæðinu og felast í að ná ákveðnum árangri í endurvinnslu.
Álagningin er í samræmi við mengunarbótaregluna, þ.e. að sá sem
mengar ber kostnaðinn af menguninni. Úrvinnslugjald á að virka sem
hvati til að minnka umbúðanotkun.
12. Desember 2005 | ÚTVEGURINN
Þorskárgangurinn 2005 talinn lélegur – ýsuárgangurinn talinn stór
Vísbendingar eru um að
þorskárgangurinn 2005 sé lélegur, að því er fram kemur í
tilkynningu Hafrannsóknastofnunarinnar sem birti í dag fyrstu
niðurstöður úr stofnmælingu botnfiska að haustlagi. Rannsóknasvæðið
miðast við landgrunn Íslands allt niður á 1500 m dýpi. Samkvæmt
niðurstöðum stofnunarinnar fannst lítið æti í þorskmögum og lítið
af loðnu en þó meira en í fyrra. Hlutur síldar og kolmunna í æti
þorsks hefur aukist undanfarin ár.
5. Desember 2005 | ÚTVEGURINN
Vélstjórar fá eingreiðslu í desember
Landssamband íslenskra útvegsmanna, Samtök atvinnulífsins og
Vélstjórafélag Íslands gerðu í dag með sér samkomulag um breytingar
á kjarasamningum aðilanna. Samkvæmt samkomulaginu greiðist sérstök
eingreiðsla, kr. 26.000, til vélstjóra sem hafa verið í fullu
starfi allt árið hjá sömu útgerð og eru í starfi síðustu viku í
nóvember eða fyrstu viku desember. Vélstjórar sem ekki ná fullu
starfsári fá greitt hlufallslega.
2. Desember 2005 | ÚTVEGURINN
Afar fáir erlendir sjómenn á íslenskum fiskiskipum
Undanfarið hafa birst í
fjölmiðlum fréttir af áhyggjum manna um að fjöldi útlendinga á
íslenskum fiskiskipum fari vaxandi. Birti Morgunblaðið fyrir
skemmstu frétt um málið á forsíðu og tók það einnig upp í leiðara
blaðsins. Í þeim fréttum sem fluttar hafa verið af þessu máli hefur
hvergi verið leitast við að kanna fjölda erlendra sjómanna á
íslenskum fiskiskipum.
1. Desember 2005 | ÚTVEGURINN
Sjómenn í fullu starfi fá 26 þúsund króna eingreiðslu
Landssamband íslenskra útvegsmanna, Samtök atvinnulífsins, Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Sjómannasamband Íslands og Alþýðusamband Vestfjarða gerðu í dag með sér samkomulag um breytingar á kjarasamningum aðilanna með vísan til endurskoðunarákvæða þeirra. Samkvæmt samkomulaginu greiðist sérstök eingreiðsla kr. 26.000 til sjómanna sem hafa verið í fullu starfi allt árið hjá sömu útgerð og eru í starfi síðustu viku í nóvember eða fyrstu viku desember. Sjómenn sem ekki ná fullu starfsári fá greitt hlufallslega













