Fréttir
30. Október 2005 | ÚTVEGURINN
LÍÚ styrkir Slysavarnarfélagið Landsbjörgu
Formaður LÍÚ, Björgólfur
Jóhannsson, greindi frá því á aðalfundi LÍÚ að stjórn samtakanna
hefði ákveðið að styrkja Slysavarnarfélagið Landsbjörgu um 15
milljónir króna og var styrktarsamningur þessa efnis undirritaður á
aðalfundinum.
29. Október 2005 | ÚTVEGURINN
Aðalfundur LÍÚ á vefnum
Hægt er að nálgast þær ræður og erindi sem flutt voru á
aðalfundi LÍÚ hér á síðunni. Farið er í vinstri spalta á síðunni og
veljið "Aðalfundir". Veljið síðan "Aðalfundur
2005".
29. Október 2005 | ÚTVEGURINN
Of mikil áhersla Seðlabankans á stýrivexti við að halda niðri verðbólgu, -sagði bankastjóri Landsbankans á aðalfundi LÍÚ
Íslendingar eru í óþolandi
stöðu í gengismálum, með of sterka krónu og of háa vexti sem
erlendir aðilar nýta sér og styrkja krónuna enn meira. Nauðsynlegt
er að komast sem fyrst úr þessari stöðu. Stöðugleiki í gengismálum
er ekki síður mikilvægur en lág verðbólga til að tryggja jafnvægi í
efnahagslífinu.
Þetta kom m.a. fram í ræðu sem Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri
Landsbankans flutti á aðalfundi LÍÚ í gær, þar sem sterk staða
krónunnar umræðuefnið.
28. Október 2005 | ÚTVEGURINN
Aflaheimildir eru eign í skilningi eignarréttarákvæðis 72. gr. stjórnarskrárinnar
Aflaheimildir eru eign í
skilningi eignarréttarákvæðis 72. gr. stjórnarskrárinnar, enda
óumdeilt meðal fræðimanna að þær beri öll megineinkenni
eignarréttinda. Þetta er meginniðurstaða dr. juris Guðrúnar
Gauksdóttur, dósents við Háskólann í Reykjavík og formanns
Rannsóknastofnunar í auðlindarétti, í erindi sem hún flutti á
aðalfundi LÍÚ.
28. Október 2005 | ÚTVEGURINN
Samfylkingin vill ná sátt um sjávarútvegsmálin, sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir á aðalfundi LÍÚ
Mikilvægt er að sátt náist um
sjávarútvegsmálin og vill Samfylkingin leggja sitt af mörkum til
þess að svo geti orðið. Til þess að slík sátt náist verði menn að
ræða saman og allir að gefa eitthvað eftir af sínum ýtrustu kröfum
og skoðunum. Deila um greiðslu fyrir afnotarétt af auðlindinni
verði ekki leystar nema í tengslum við greiðslur fyrir afnot
annarra auðlinda sem skilgreindar eru sem þjóðareign, ríkiseign eða
í þjóðarumsjá. Þetta kom fram í ræðu sem Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar flutti á aðalfundi LÍÚ í
dag.
28. Október 2005 | ÚTVEGURINN
Ályktanir aðalfundar LÍÚ 2005
Mikilvægt er að ákvörðun verði tekin nú þegar um aukin kaup á
gjaldeyri og söluandvirði Símans nýtt til þess m.a. Einnig er brýnt
að breyta strax reglum Íbúðalánasjóðs varðandi vexti og
lánshlutföll. Slíkar aðgerðir munu draga úr þenslu. Þetta kemur
fram í efnahagsályktun 66. aðalfundar LÍÚ sem lauk í dag.
Aðalfundurinn útvegsmanna samþykkti einnig ályktanir um
greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins, ályktun um hvalveiðar,
ályktun um loðnurannsóknir, ályktun um eftirlit vegna
skipaskoðunar og ályktun um ráðgefandi stjórn Fiskistofu.
Ályktanir fundarins fara hér á eftir.
28. Október 2005 | ÚTVEGURINN
Björgólfur endurkjörinn formaður LÍÚ
Björgólfur Jóhannsson var
endurkjörinn formaður LÍÚ aðalfundinum sem lauk í dag. Þá voru fimm
menn kjörnir í stjórnina til næstu þriggja ára.
27. Október 2005 | ÚTVEGURINN
Ræða Björgólfs Jóhannssonar, formanns LÍÚ á aðalfundi í dag
"Ég tel mikilvægt að viðurkenna þá staðreynd að
undirliggjandi verðbólga stafar að mestu leyti af heimatilbúnum
ástæðum. Þetta er einfaldlega staðreynd. Seðlabankinn mun ekki ná
verðbólgumarkmiðum í tæka tíð með hækkun stýrivaxta. Hin svokölluðu
ruðningsáhrif verða alltof dýrkeypt. Ruðningsáhrif þýðir á
mannamáli að fyrirtæki heltast úr lestinni, fólk missir vinnuna og
samfélagið allt tapar þegar upp er staðið. Undirliggjandi
verðubólgu verður einfaldlega að tappa af," sagði Björgólfur
Jóhannsson, formaður LÍÚ í ræðu sinni við upphaf aðalfundar
semtakanna sem hófst í dag.
27. Október 2005 | ÚTVEGURINN
Aðalbjörg sf. hlaut Umhverfisverðlaun LÍÚ árið 2005
Aðalbjörg sf. hlaut
umhverfisverðlaun LÍÚ árið 2005, en þau voru veitt á
aðalfundi samtakanna í dag. Sjávarútvegsráðherra, Einar K.
Guðfinnsson, afhenti Aðalbjargarbræðrum, þeim Sigurði, Guðbjarti og
Stefáni Einarssonum, verðlaunin í dag.
27. Október 2005 | ÚTVEGURINN
Ræða Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegsráðherra á aðalfundi LÍÚ
Dreifing veiðiréttarins í sjávarútvegi er miklu meiri heldur en
svarar dreifingu eignaraðildar í langflestum stóru atvinnuvegunum
okkar. Og það er furðulegt að menn halda áfram að tala um
samþjöppun í sjávarútvegi og vá af henni en ljá því ekki máls að
setja skorður við eignarhaldi einokunar og fákeppnisfyrirtækja á
viðkvæmasta sviði lýðræðis okkar, fjölmiðlamarkaðnum, þar sem
þó er eitt skýrasta dæmið um samþjappað eignarhald. Sjávarútvegur
er einmitt eitt gleggsta dæmið í íslensku atvinnulífi um
tiltölulega dreift eignarhald. Eða hvað ætli yrði sagt um okkar
ágætu atvinnugrein ef einstök fyrirtæki réðu 50 til 60 prósent
aflaheimilda, eða skiptu kvótanum í tvennt eða þrennt. Viðlíka
aðstæður eru til staðar í ýmsum öðrum atvinnugreinum hér á landi,
sagði Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra á aðalfundi LÍÚ í
dag.. Ræða ráðherra fer í heild hér á eftir.
20. Október 2005 | ÚTVEGURINN
Dagskrá aðalfundar LÍÚ
Aðalfundur Landssambands íslenskra útvegsmanna verður haldinn
dagana 27. og 28. október nk. á Grand Hótel í Reykjavík.
Dagskrá fundarins fer hér á eftir.













