Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

30. Desember 2005 | ÚTVEGURINN

Nýr kjarasamningur við vélstjóra undirritaður í dag

Vélstjórafélag Íslands, Landssamband íslenskra útvegsmanna og Samtök atvinnulífsins gerðu í dag nýjan kjarasamning um kjör vélstjóra á fiskiskipum. Kjarasamningurinn kemur í stað samnings aðilanna frá 2001 sem rennur út þann 31. desember 2005. Gildistími er til 31. maí 2008.

22. Desember 2005 | ÚTVEGURINN

Fjöltækniskóli Íslands útskrifar fyrstu nemendur sína

Fjöltækniskóli Íslands útskrifaði sína fyrstu nemendur undir nýju nafni skólans og sameinuðum skóla 20. desember 2005, en sl. vor var Vélskóla Íslands og Stýrimannaskólanum í Reykjavík formlega slitið í síðasta sinn. Nemendur Fjöltækniskólans útskrifuðust með skipstjórnarpróf og vélstjórnarpróf og vélstjórar einnig með stúdentspróf. Nemendur sem luku námi frá Fjöltækniskólanum að þessu sinni voru 14, þar af 5 á vélstjórnarsviði og 9 á skipstjórnarsviði.

22. Desember 2005 | ÚTVEGURINN

Viðmiðunarverð á karfa hækkar

Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna ákvað á fundi sínum þann 21. desember 2005 að hækka viðmiðunarverð á karfa um 7%.

16. Desember 2005 | ÚTVEGURINN

Samningur um kolmunnann í höfn

Samningur strandríkjanna um stjórn veiða úr kolmunnastofninum var undirritaður í Osló í dag og lýkur þar með stjórnlausum veiðum úr stofninum sem staðið hafa yfir undanfarin ár. Að samkomulaginu standa auk Íslands, Evrópusambandið, Noregur og Færeyjar. Samningurinn byggir á samkomulagi hagsmunaaðila landanna; Landssambands íslenskra útvegsmanna, Samtaka norskra fiskiskipaeigenda og Northern Pelagic Working Group (ESB), sem náðist í september á þessu ári.

15. Desember 2005 | ÚTVEGURINN

Norðmenn ofveiða norsk-íslensku síldina

Norðmenn og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafa komist að tvíhliða samkomulagi um veiðar þjóðanna úr norskíslenska síldarstofninum á næsta ári. Samkvæmt samkomulaginu munu Norðmenn veiða 564.200 tonn af norsk-íslenskri síld 2006 og skip aðildaríkja ESB 62.000 tonn. Þá fá ESB skip að veiða síld í norskri lögsögu og einnig verður banni við löndun þeirra á síld í Noregi aflétt.

12. Desember 2005 | ÚTVEGURINN

Úrvinnslugjald innheimt af umbúðum úr pappír, pappa og plasti

Alþingi hefur samþykkt breytingar á lögum um úrvinnslugjald sem fela í sér að frá áramótum verður lagt úrvinnslugjald á allar umbúðir úr pappa, pappír og plasti sem fara á markað. Innflytjendur verða því að gefa upp magn flutnings- og söluumbúða utan um vöru sem flutt er til landsins. Jafnframt verða innlendir umbúðaframleiðendur að gefa upp magn seldra umbúða. Álagning úrvinnslugjalds á pappa, pappír og plast er liður í að uppfylla skyldur sem Íslendingar hafa gengist undir með þátttöku í Evrópska efnahagssvæðinu og felast í að ná ákveðnum árangri í endurvinnslu. Álagningin er í samræmi við mengunarbótaregluna, þ.e. að sá sem mengar ber kostnaðinn af menguninni. Úrvinnslugjald á að virka sem hvati til að minnka umbúðanotkun.

12. Desember 2005 | ÚTVEGURINN

Þorskárgangurinn 2005 talinn lélegur – ýsuárgangurinn talinn stór

Vísbendingar eru um að þorskárgangurinn 2005 sé lélegur, að því er fram kemur í tilkynningu Hafrannsóknastofnunarinnar sem birti í dag fyrstu niðurstöður úr stofnmælingu botnfiska að haustlagi. Rannsóknasvæðið miðast við landgrunn Íslands allt niður á 1500 m dýpi. Samkvæmt niðurstöðum stofnunarinnar fannst lítið æti í þorskmögum og lítið af loðnu en þó meira en í fyrra. Hlutur síldar og kolmunna í æti þorsks hefur aukist undanfarin ár.

5. Desember 2005 | ÚTVEGURINN

Vélstjórar fá eingreiðslu í desember

Landssamband íslenskra útvegsmanna, Samtök atvinnulífsins og Vélstjórafélag Íslands gerðu í dag með sér samkomulag um breytingar á kjarasamningum aðilanna. Samkvæmt samkomulaginu greiðist sérstök eingreiðsla, kr. 26.000, til vélstjóra sem hafa verið í fullu starfi allt árið hjá sömu útgerð og eru í starfi síðustu viku í nóvember eða fyrstu viku desember. Vélstjórar sem ekki ná fullu starfsári fá greitt hlufallslega.

2. Desember 2005 | ÚTVEGURINN

Afar fáir erlendir sjómenn á íslenskum fiskiskipum

Undanfarið hafa birst í fjölmiðlum fréttir af áhyggjum manna um að fjöldi útlendinga á íslenskum fiskiskipum fari vaxandi. Birti Morgunblaðið fyrir skemmstu frétt um málið á forsíðu og tók það einnig upp í leiðara blaðsins. Í þeim fréttum sem fluttar hafa verið af þessu máli hefur hvergi verið leitast við að kanna fjölda erlendra sjómanna á íslenskum fiskiskipum.

1. Desember 2005 | ÚTVEGURINN

Sjómenn í fullu starfi fá 26 þúsund króna eingreiðslu

Landssamband íslenskra útvegsmanna, Samtök atvinnulífsins, Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Sjómannasamband Íslands og Alþýðusamband Vestfjarða gerðu í dag með sér samkomulag um breytingar á kjarasamningum aðilanna með vísan til endurskoðunarákvæða þeirra. Samkvæmt samkomulaginu greiðist sérstök eingreiðsla kr. 26.000 til sjómanna sem hafa verið í fullu starfi allt árið hjá sömu útgerð og eru í starfi síðustu viku í nóvember eða fyrstu viku desember. Sjómenn sem ekki ná fullu starfsári fá greitt hlufallslega

30. Nóvember 2005 | ÚTVEGURINN

Veruleg þorskveiði ESB-skipa í skjóli veiðiheimilda í karfa

Fiskiskip ríkja Evrópusambandsins sem hafa leyfi til að veiða 3.000 tonn af karfa á afmörkuðum svæðum í íslenskri fiskveiðilögsögu á þessu ári, hafa veitt verulegt magn af öðrum tegundum, einkum þorski og ufsa. Skipin hafa veitt 1.150 tonn af karfa það sem af er þessu ári, en samanlagður afli þeirra í þorski og ufsa er tæp 650 tonn sem er tæplega 40% heildaraflans, sem er um 1.900 tonn. Þar af er þorskaflinn 314 tonn og ufsaaflinn 334 tonn.

29. Nóvember 2005 | ÚTVEGURINN

AVS sjóðurinn styrkti 64 verkefni um 217 milljónir króna í ár

AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi veitti 217 milljónum króna á þessu ári í styrki til 64 verkefna, en alls var sótt um styrk til sjóðsins vegna 112 verkefna í ár. Alls hefur verið úthlutað 405 milljónum króna í styrki á þeim þremur árum sem sjóðurinn hefur verið starfræktur. Þetta kom fram á blaðamannafundi Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra í dag, en fundurinn var haldinn í húsakynnum HB Granda í Reykjavík.

24. Nóvember 2005 | ÚTVEGURINN

Frumvarp um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða

Sjávarútvegsráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. Frumvarpið felur í sér að rétti til úthlutunar úr svokölluðum 3.000 tonna potti, sem kveðið er á um í 9. gr. a, verður breytt þannig að þeir sem eiga þennan rétt fái úthlutað aflahlutdeild eins og lýst er í frumvarpinu.

23. Nóvember 2005 | ÚTVEGURINN

Sjálfstæðismenn í borgarstjórn heimsóttu útvegsmenn í Reykjavík

Fulltrúar borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna í Reykjavík heimsóttu útvegsmenn í Reykjavík í dag og kynntu sér starfsemi nokkurra útgerðarfyrirtækja í borginni. Við það tækifæri kom m.a. fram hjá Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, leiðtoga borgarstjórnarflokksins, að sjálfstæðismenn væru tilbúnir til að endurskoða fyrirhugaðan flutning slippsins frá Reykjavík.

10. Nóvember 2005 | ÚTVEGURINN

Hafrannsónastofnunin með kynningarfundi víða um land næstu daga

Hafrannsóknastofnunin mun á næstu dögum halda opna kynningar- og umræðufundi víða um land, en umræðuefnið er haf- og fiskirannsóknir og ráðgjöf stofnunarinnar.

2. Nóvember 2005 | ÚTVEGURINN

Ísland með 17,63% kolmunnans samkvæmt samningi strandríkjanna

Samkomulag um stjórn veiða úr kolmunnastofninum náðist í strandríkjaviðræðum Íslands, Færeyja, Noregs og Evrópusambandsins í Kaupmannahöfn í gær. Koma 17,63% leyfilegs heildarafla í hlut Íslands, Evrópusambandið fær 30,5%, Færeyjar 26,125% og Noregur 25,745%. Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ segir að um tímamótasamning sé að ræða.

30. Október 2005 | ÚTVEGURINN

LÍÚ styrkir Slysavarnarfélagið Landsbjörgu

Formaður LÍÚ, Björgólfur Jóhannsson, greindi frá því á aðalfundi LÍÚ að stjórn samtakanna hefði ákveðið að styrkja Slysavarnarfélagið Landsbjörgu um 15 milljónir króna og var styrktarsamningur þessa efnis undirritaður á aðalfundinum.

29. Október 2005 | ÚTVEGURINN

Aðalfundur LÍÚ á vefnum

Hægt er að nálgast þær ræður og erindi sem flutt voru á aðalfundi LÍÚ hér á síðunni. Farið er í vinstri spalta á síðunni og veljið "Aðalfundir". Veljið síðan "Aðalfundur 2005".

29. Október 2005 | ÚTVEGURINN

Of mikil áhersla Seðlabankans á stýrivexti við að halda niðri verðbólgu, -sagði bankastjóri Landsbankans á aðalfundi LÍÚ

Íslendingar eru í óþolandi stöðu í gengismálum, með of sterka krónu og of háa vexti sem erlendir aðilar nýta sér og styrkja krónuna enn meira. Nauðsynlegt er að komast sem fyrst úr þessari stöðu. Stöðugleiki í gengismálum er ekki síður mikilvægur en lág verðbólga til að tryggja jafnvægi í efnahagslífinu.
Þetta kom m.a. fram í ræðu sem Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri Landsbankans flutti á aðalfundi LÍÚ í gær, þar sem sterk staða krónunnar umræðuefnið.

28. Október 2005 | ÚTVEGURINN

Aflaheimildir eru eign í skilningi eignarréttarákvæðis 72. gr. stjórnarskrárinnar

Aflaheimildir eru eign í skilningi eignarréttarákvæðis 72. gr. stjórnarskrárinnar, enda óumdeilt meðal fræðimanna að þær beri öll megineinkenni eignarréttinda. Þetta er meginniðurstaða dr. juris Guðrúnar Gauksdóttur, dósents við Háskólann í Reykjavík og formanns Rannsóknastofnunar í auðlindarétti, í erindi sem hún flutti á aðalfundi LÍÚ.

28. Október 2005 | ÚTVEGURINN

Samfylkingin vill ná sátt um sjávarútvegsmálin, sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir á aðalfundi LÍÚ

Mikilvægt er að sátt náist um sjávarútvegsmálin og vill Samfylkingin leggja sitt af mörkum til þess að svo geti orðið. Til þess að slík sátt náist verði menn að ræða saman og allir að gefa eitthvað eftir af sínum ýtrustu kröfum og skoðunum. Deila um greiðslu fyrir afnotarétt af auðlindinni verði ekki leystar nema í tengslum við greiðslur fyrir afnot annarra auðlinda sem skilgreindar eru sem þjóðareign, ríkiseign eða í þjóðarumsjá. Þetta kom fram í ræðu sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar flutti á aðalfundi LÍÚ í dag.

28. Október 2005 | ÚTVEGURINN

Ályktanir aðalfundar LÍÚ 2005

Mikilvægt er að ákvörðun verði tekin nú þegar um aukin kaup á gjaldeyri og söluandvirði Símans nýtt til þess m.a. Einnig er brýnt að breyta  strax reglum Íbúðalánasjóðs varðandi vexti og lánshlutföll. Slíkar aðgerðir munu draga úr þenslu. Þetta kemur fram í efnahagsályktun 66. aðalfundar LÍÚ sem lauk í dag. Aðalfundurinn útvegsmanna samþykkti einnig ályktanir um greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins, ályktun um hvalveiðar, ályktun um loðnurannsóknir, ályktun um eftirlit vegna skipaskoðunar og ályktun um ráðgefandi stjórn Fiskistofu.
Ályktanir fundarins fara hér á eftir. 

28. Október 2005 | ÚTVEGURINN

Björgólfur endurkjörinn formaður LÍÚ

Björgólfur Jóhannsson var endurkjörinn formaður LÍÚ aðalfundinum sem lauk í dag. Þá voru fimm menn kjörnir í stjórnina til næstu þriggja ára.

27. Október 2005 | ÚTVEGURINN

Ræða Björgólfs Jóhannssonar, formanns LÍÚ á aðalfundi í dag

"Ég tel mikilvægt að viðurkenna þá staðreynd að undirliggjandi verðbólga stafar að mestu leyti af heimatilbúnum ástæðum. Þetta er einfaldlega staðreynd. Seðlabankinn mun ekki ná verðbólgumarkmiðum í tæka tíð með hækkun stýrivaxta. Hin svokölluðu ruðningsáhrif verða alltof dýrkeypt. Ruðningsáhrif þýðir á mannamáli að fyrirtæki heltast úr lestinni, fólk missir vinnuna og samfélagið allt tapar þegar upp er staðið. Undirliggjandi verðubólgu verður einfaldlega að tappa af," sagði Björgólfur Jóhannsson, formaður LÍÚ í ræðu sinni við upphaf aðalfundar semtakanna sem hófst í dag.

27. Október 2005 | ÚTVEGURINN

Aðalbjörg sf. hlaut Umhverfisverðlaun LÍÚ árið 2005

Aðalbjörg sf. hlaut umhverfisverðlaun  LÍÚ árið 2005, en þau voru veitt á aðalfundi samtakanna í dag. Sjávarútvegsráðherra, Einar K. Guðfinnsson, afhenti Aðalbjargarbræðrum, þeim Sigurði, Guðbjarti og Stefáni Einarssonum, verðlaunin í dag.
 

27. Október 2005 | ÚTVEGURINN

Ræða Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegsráðherra á aðalfundi LÍÚ

Dreifing veiðiréttarins í sjávarútvegi er miklu meiri heldur en svarar dreifingu eignaraðildar í langflestum stóru atvinnuvegunum okkar. Og það er furðulegt að menn halda áfram að tala um samþjöppun í sjávarútvegi og vá af henni en ljá því ekki máls að setja skorður við eignarhaldi einokunar og fákeppnisfyrirtækja á viðkvæmasta sviði lýðræðis okkar, fjölmiðlamarkaðnum, þar sem þó er eitt skýrasta dæmið um samþjappað eignarhald. Sjávarútvegur er einmitt eitt gleggsta dæmið í íslensku atvinnulífi um tiltölulega dreift eignarhald. Eða hvað ætli yrði sagt um okkar ágætu atvinnugrein ef einstök fyrirtæki réðu 50 til 60 prósent aflaheimilda, eða skiptu kvótanum í tvennt eða þrennt. Viðlíka aðstæður eru til staðar í ýmsum öðrum atvinnugreinum hér á landi, sagði Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra á aðalfundi LÍÚ í dag.. Ræða ráðherra fer í heild hér á eftir.

20. Október 2005 | ÚTVEGURINN

Dagskrá aðalfundar LÍÚ

Aðalfundur Landssambands íslenskra útvegsmanna verður haldinn dagana 27. og 28. október nk. á Grand Hótel í Reykjavík.

Dagskrá fundarins fer hér á eftir.

10. Október 2005 | ÚTVEGURINN

Af hverjum veiðum við ekki meira?

19. September 2005 | ÚTVEGURINN

Aðalfundur LÍÚ 27. og 28. október

Aðalfundur Landssambands íslenskra útvegsmanna verður haldinn dagana 27. og 28. október nk. Fundurinn verður á Grand hótel í Reykjavík og hefst kl. 13:00 fimmtudaginn 27. október.

15. Ágúst 2005 | ÚTVEGURINN

Hlynur Ármannsson hlýtur námsstyrk LÍÚ

Landssamband íslenskra útvegsmanna hefur veitt Hlyni Ármannssyni líffræðingi styrk að upphæð kr. 500.000,- til framhaldsnáms í fiskifræði.

5. Júlí 2005 | ÚTVEGURINN

39 hrefnur verða veiddar í vísindaskyni á þessu ári

Gefin verða út leyfi til að veiða allt að 39 hrefnur í hvalarannsóknaáætlun Hafrannsóknastofnunarinnar á þessu ári, en áætlunin gerir ráð fyrir veiðum á 200 hrefnum, 200 langreyðum og 100 sandreyðum. Ekki verður farið í veiðar á langreyði og sandreyði að þessu sinni, að því fram kemur í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu.

22. Júní 2005 | ÚTVEGURINN

Ákvörðun um heildarafla að mestu í samræmi við ráðgjöf Hafró

Sjávarútvegsráðherra gaf í dag út reglugerð um leyfilegan heildarafla á fiskveiðiárinu 2005/2006 sem hefst 1. september nk sem verður að mestu í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar. Þannig verður heildarafli í þorski 198 þúsund tonn, í ýsu 105 þúsund tonn,  í ufsa 80 þúsund tonn, í karfa 57 þúsund tonn, í grálúðu 15 þúsund tonn, í steinbít 13 þúsund tonn, í keilu 3.500 tonn, í íslenskri sumargotssíld 110 þúsund tonn, í úthafsrækju 10 þúsund tonn og 300 tonn í Arnarfjarðarrækju.

16. Júní 2005 | ÚTVEGURINN

Enn setja Norðmenn einhliða reglur um veiðar á Svalbarðasvæðinu

Norðmenn hafa gefið út reglugerð um síldveiðar á hafsvæðinu við Svalbarða. Í reglugerðinni er kveðið á um að sameiginlegur hámarksafli fiskiskipa frá Íslandi, Evrópusambandinu, Færeyjum og annarra sem leyfi hafa til veiða á svæðinu sé 90.000 tonn. Er heimilt að stunda síldveiðar á svæðinu á tímabilinu 4. júní til 15. október á þessu ári. Norðmenn gáfu út sambærilega reglugerð í fyrra þar sem hámarksafli á svæðinu var ákveðinn 80.000 tonn.

6. Júní 2005 | ÚTVEGURINN

Ástand þorskstofnsins vonbrigði

Samkvæmt skýrslu Hafrannsóknastofnunar um ástand nytjastofna sjávar sem kynnt var í dag, munu veiðiheimildir í þorski minnka um 7.000 tonn á næsta fiskveiðiári verði farið að aflareglu. Þá gerir stofnunin tillögu um aukningu leyfilegs hámarksafla í ýsu og ufsa.

31. Maí 2005 | ÚTVEGURINN

Ekki fleiri álver án mótvægisaðgerða

Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna hvetur til þess að stóðiðju- og virkjanaframkvæmdir verði skipulagðar þannig að áhrif þeirra verði ekki slík sem nú má sjá í þjóðfélaginu. Hann segir til lítils að fjölga álverum verði það til þess að meiri verðmæti tapist í í sjávarútvegi, ferðaþjónustu og iðnaði og efnahags- og atvinnulífið standi veikara á eftir. Nauðsynlegt sé að stjórnvöld beiti aðhaldi í fjármálunum á framkvæmdatímum. Ekki gangi að Seðlabankinn hafi aðeins möguleika á vaxtabreytingum til að hamla gegn verðbólgu sem síðan leiðir til mikillar styrkingar íslensku krónunnar með tilheyrandi neikvæðum áhrifum fyrir útflutningsatvinnuvegina. Þetta kom m.a. fram í viðtali sem Morgunblaðið átti við Friðrik nýlega, en viðtalið birtist í heild hér á eftir.

24. Maí 2005 | ÚTVEGURINN

Fjöltækniskólinn útskrifar frá Stýrimannaskóla og Vélskóla

Stýrimannaskólanum í Reykjavík og Vélskóla Íslands var formlega slitið í síðasta sinn sem sjálfstæðum skólum 20. og 21. maí  sl.. Framvegis munu útskriftir fara fram sameiginlega undir nafni Fjöltækniskóla Íslands. Sextán nemendur luku námi frá Stýrimannaskólanum á þessu skólaári, þar af tveir af 2. stigi og fjórtán af 3. stigi. Frá Vélskóla Íslands luku 34 nemendur námi á þessu ári, þar af fimm af 2. stigi og 29 af 4. stigi. Nemendur Vélskólans útskrifuðust með stúdentspróf samfara Vélstjórnarprófi 4. stigs.

23. Maí 2005 | ÚTVEGURINN

Engey RE 1, stærsta fiskiskip flotans, kom til heimahafnar í gær

Stærsta fiskiskip íslenska fiskiskipaflotans, Engey RE 1, kom til heimahafnar í Reykjavík í gær. Skipið var smíðað á Spáni árið 1994, en HB Grandi hf. keypti skipið á síðasta ári.

4. Maí 2005 | ÚTVEGURINN

Nýr kjarasamningur við vélstjóra undirritaður

Skrifað var undir nýjan kjarasamning Landssambands íslenskra útvegsmanna og Samtaka atvinnulífsins við Vélstjórafélag Íslands í dag.

27. Apríl 2005 | ÚTVEGURINN

Fiskveiðistjórnunarkerfi búa ekki til fisk

Á vefnum skip.is gerir Magnús Þór Hafsteinsson athugasemd við ábendingu okkar hér á vefnum þar sem glannalegar ályktanir um aflamarkskerfið út frá stofnvísitölu þorsks úr nýafstöðnu togararalli voru gagnrýndar. Í því samhengi var bent á uppgang ýsunnar undanfarið, en ýsuveiðum er einnig stjórnað í hinu sama aflamarkskerfi. Ljóst er að það er hvorki aflamarkskerfinu að kenna að síðustu seiðaárgangar þorsksins eru lélegir, né heldur er það því að þakka að ýsustofninn er á uppleið. Fiskveiðistjórnunarkerfi búa nefnilega ekki til fisk.

25. Apríl 2005 | ÚTVEGURINN

Hvað með ýsuna? -Undarlegar ályktanir um fiskveiðistjórnunarkerfið

Mikil umræða hefur átt sér stað í kjölfar fréttatilkynningar Hafrannsóknastofnunarinnar um fyrstu niðurstöður togararalls nú nýverið og hafa sumir þátttakendur verið all glannalegir í ályktunum sínum.

22. Apríl 2005 | ÚTVEGURINN

Stofnvísitala þorsks í togararalli gefur ekki tilefni til mikilla ályktana, segir Kristján Þórarinsson, stofnvistfræðingur LÍÚ

Reynslan hefur sýnt að ekki er ráðlegt að draga miklar ályktanir af nýjustu stofnvísitölu þorsks úr togararalli, bæði hvað varðar breytingar í stofnstærðarmati og væntanlegan hámarksafla næsta fiskveiðiárs, segir Kristján Þórarinsson, stofnvistfræðingur LÍÚ. Einungis er um að ræða bráðabirgðaniðurstöðu, eins konar samlagningu aflans án þess að aldursgreining fiskanna liggi fyrir, segir Kristján.

21. Apríl 2005 | ÚTVEGURINN

Gleðilegt sumar !

Landssamband íslenskra útvegsmanna óskar landsmönnum gleðilegs sumars.

20. Apríl 2005 | ÚTVEGURINN

Togararall bendir til að þorskárgangur ársins 2004 sé mjög lélegur

Stofnvísitala þorsks lækkaði um 16% frá mælingu Hafrannsóknarstofnunarinnar í fyrra 2004 en stofnvísitala ýsu hækkaði um 20%. Þá var stofnvísitala gullkarfa mun lægri en árin 2003 og 2004, en vísitalan var óvenju há þau ár. Vísitala steinbíts var óbreytt frá fyrra ári þegar hún var með lægsta móti, ufsa svipuð og árið áður, en vísitala skarkola lækkaði. Þetta eru helstu niðurstöður stofnmælingar botnfiska á Íslandsmiðum í ár, svonefndu togararalli.

18. Apríl 2005 | ÚTVEGURINN

Heimilt að veiða 157.700 lestir af norsk-íslenskri síld í ár

Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að íslenskum skipum verði heimilt að veiða 157.700 lestir af norsk-íslenskri síld á þessu ári.

11. Apríl 2005 | ÚTVEGURINN

Umhverfismerkingar á faglegum forsendum eru jákvæðar fyrir sjávarútveginn, -segir Kristján Þórarinsson, stofnvistfræðingur LÍÚ

Umhverfismerkingar fiskafurða  á faglegum forsendum eru jákvæðar fyrir sjávarútveginn og geta stuðlað að öflugri upplýsingagjöf. Alþjóðlegar reglur stuðla að samræmi í kröfum og koma í veg fyrir misbeitingu og ringulreið á markaði. Reglur stuðla einnig að jákvæðri ímyndarsköpun, því að þeir sem ekki fylgja reglum skaða ímynd sína á markaði. Þetta kom m.a. fram í ræðu dr. Kristjáns Þórarinssonar, stofnvistfræðings LÍÚ á Fiskiþingi sem haldið var sl. föstudag, en þar ræddi hann um umhverfismerkingar sjávarafurða.

5. Apríl 2005 | ÚTVEGURINN

Veruleg minnkun veiðiheimilda í úthafskarfa

Veiðiheimildir íslenskra skipa í úthafskarfa minnka verulega í ár miðað við heimilildir síðasta árs og verða 34.470 lestir í ár, samanborið við 55.000 lestir í fyrra. Alls er heimilt að veiða 28.200 lestir á svæði sem er að hluta til innan íslensku lögsögunnar, en 6.270 lestir á svæði utan lögsögunnar. Sjávarútvegsráðherra gaf út reglugerð þessa efnis í dag.

21. Mars 2005 | ÚTVEGURINN

Styrkur til náms í fiskifræði og skyldum greinum

Landssamband íslenskra útvegsmanna auglýsir styrk til framhaldsnáms í fiskifræði, sjávarvistfræði eða sjávarlíffræði.  Styrkurinn er ætlaður náttúrufræðingum sem hafa lokið eða eru að ljúka grunnnámi í háskóla (B.S. prófi) og hyggjast hefja framhaldsnám erlendis á næsta skólaári.  Styrkupphæð er kr. 500.000,-.

11. Mars 2005 | ÚTVEGURINN

Fiskveiðistjórnun á grundvelli aflamarkskerfis lykilatriði

Sjálfbærir fiskistofnar og ábyrg fiskveiðistjórnun eins og Íslendingar stunda eru þau atriði sem tveir erlendir fyrirlesarar lögðu mikla áherslu á í ræðum sínum á ráðstefnu sjávarútvegsráðuneytisins, Fiskurinn og framtríðin, sem haldin var í Reykjavík föstudaginn 4. mars sl. Þetta voru þeir Quentin Clark, innkaupastjóri bresku stórmarkaðskeðjunnar Waitrose og Johann Lindenberg stjórnarformaður Unilever í Þýskalandi, en Unilever er eitt stærsta fyrirtæki heims.

10. Mars 2005 | ÚTVEGURINN

Alþjóðlegar leiðbeinandi reglur um umhverfismerkingar samþykktar

Fundur Fiskimálanefndar Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO),  samþykkti í dag leiðbeinandi reglur um umhverfismerkingar sjávarafurða. Þar með er mikilvægum áfanga náð eftir nær áratugar starf að þessum málum innan FAO, segir í frétt frá sjávarútvegsráðuneytinu í dag.

4. Mars 2005 | ÚTVEGURINN

Rannsóknaskip verður sent á loðnumiðin

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu sjávarútvegsráðherra þess efnis að fjárveiting til loðnurannsókna verði aukin um 3 milljónir króna, en það fé verður m.a. nýtt til rannsókna á loðnugöngu sem fundist hefur undan Vestfjörðum.

2. Mars 2005 | ÚTVEGURINN

Nauðsynlegt að auka kvótann í norsk íslenska síldarstofninum

Nauðsynlegt er að stjórnvöld auki kvóta íslenskra skipa í norsk íslenska síldarstofninum í samræmi við þá kvótaaukningu sem Norðmenn hafa einhliða tekið sér.

28. Febrúar 2005 | ÚTVEGURINN

Standast stjórnvöld þolraunina? - grein eftir Friðrik J. Arngrímsson

"Á einu ári er tekjuskerðing sjávarútvegsins miðað við gengið í dag og það sem telja má jafnvægisgengi um 25 milljarðar króna. Í stað þess að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki og starfsfólk þeirra ættu að vera að upplifa einhverja bestu tíma í sögunni blasir við mikill samdráttur og erfiðleikar með tilheyrandi áhrifum á þjónustuaðila og sveitarfélög víða um land," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ m.a. í grein sem birtist í nýjasta tölublaði Fiskifrétta, en greinin ber yfirskriftina "Standast stjórnvöld þolraunina?"

25. Febrúar 2005 | ÚTVEGURINN

Kynningardagur Fjöltækniskóla Íslands á morgun, laugardag

Fjöltækniskóli Íslands kynnir almenningi starfsemi sína á morgun, laugardag, en Fjöltækniskólinn er nýr skóli sem varð til við sameiningu Stýrimannaskólans og Vélskólans og er til húsa í Sjómannaskólahúsinu við Háteigsveg. Skólinn verður opinn frá kl. 13:00 til 16:30.

24. Febrúar 2005 | ÚTVEGURINN

Fjöltækniskóli Íslands býður upp á nám á tækni-, skipstjórnar-, vélstjórnar- og sjávarútvegssviði

Fjöltækniskóli Íslands er nýr einkarekinn skóli sem byggður er á traustum grunni Stýrimannaskólans í Reykjavík og Vélskóla Íslands. Markmið skólans er að bjóða fjölþætta og öfluga menntun sem gefur verðmæt starfsréttindi samhliða stúdentsprófi. Fjögur námssvið verða við skólann, en það eru Tæknisvið, Vélstjórnarsvið, Skipstjórnarsvið og  Sjávarútvegssvið. Nú fer fram kennsla á skipstjórnar- og vélstjórnarsviði, en næsta haust hefst kennsla á tveimur nýjum sviðum, tæknisviði og sjávarútvegssviði.

23. Febrúar 2005 | ÚTVEGURINN

Aflaverðmæti jókst um 0,3% fyrstu 11 mánuði ársins

Á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2004 var aflaverðmæti íslenskra skipa af öllum miðum 63 milljarðar króna samanborið við 62,9 milljarða króna á sama tímabili 2003. Aflaverðmæti hefur því aukist um 0,3% á milli ára eða um 184 milljónir króna, á verðlagi hvors árs fyrir sig. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofu Íslands um verðmæti sjávarafla fyrsti 11 mánuði ársins 2004.

22. Febrúar 2005 | ÚTVEGURINN

Tíu tillögur frá nefnd sem skoðar starfsumhverfi sjávarútvegsins

Meginniðurstaða nefndar sem sjávarútvegsráðherra setti á fót til að gera úttekt á starfsumhverfi sjávarútvegsins er sú að áfram eigi að byggja á því skoðunarstofukerfi sem nú er við lýði. Það eigi hins vegar að þróa það frekar og bæta og skoða hvernig skoðunarstofur geti tekið við auknum verkefnum við framkvæmd eftirlits. Bent er á að auk frekara samstarfs, samvinnu og trausts á milli Fiskistofu og skoðunarstofa þurfi þessir aðilar að skerpa á hlutverki sínu, framkvæmd og ábyrgð við eftirlitið. Þetta kemur fram í áfangaskýrslu nefndarinnar.

21. Febrúar 2005 | ÚTVEGURINN

Hrygna dauðir þorskar?

Sjávarútvegsráðuneytið hefur synjað ósk LÍÚ, útvegsmannafélags Snæfellsness, Akraness, Reykjavíkur, Suðurnesja, Þorlákshafnar, Hornafjarðar og Útvegsbændafélags Vestmannaeyja um að breyta tímasetningu á friðun hrygningarþorsks á vetrarvertíðinni. Þannig háttar til að í ár eru páskar óvenju snemma og er skírdagur 24. mars. Páskarnir hafa yfirleitt fallið inn í hrygningarstoppið en svo er ekki nú, þar sem hrygningarfriðunin hefst 1. apríl. Hætt er við að synjun ráðuneytisins verði til þess að útgerðir neta- og dragnótabáta veiði aflamark sitt í þorski fyrr en verið hefði sem síðan leiðir til þess að færri fiskar hrygna en ella. Enda eru dauðir þorskar ekki þekktir fyrir að hrygna.

18. Febrúar 2005 | ÚTVEGURINN

Hvað hefur fjármálaráðuneytið að fela?

Nýleg þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins um afkomu sjávarútvegsins vekur upp ýmsar spurningar. Ráðuneytið miðar í útreikningum sínum við að gengisvísitalan verði 119,4 stig á þessu ári, þrátt fyrir að vísitalan hafi verið 111 stig þegar spáin var gerð. Í þessu felst að ráðuneytið gerir ráð fyrir verulegri veikingu krónunnar á árinu.

17. Febrúar 2005 | ÚTVEGURINN

Röng spá frá ráðuneytinu

Fjármálaráðuneytið sendi nýverið frá sér endurskoðaða þjóðhagsspá og hefur mat ráðuneytisins á afkomuhorfum í sjávarútvegi vakið athygli fjölmiðla. Hafa þeir greint frá því að vergur hagnaður sjávarútvegsins á þessu ári sem hlutfall af tekjum (EBITDA) sé áætlaður 16,9%. Þessi spá ráðuneytisins er undarleg enda gerir það ráð fyrir mun lægra gengi krónunnar á þessu ári en nú er. Fullyrðir ráðuneytið að greinin geti vel við þennan hagnað unað, í sögulegu ljósi séð, en sú fullyrðing ráðuneytisins er röng eins og fram kemur hér á eftir.

16. Febrúar 2005 | ÚTVEGURINN

Ný viðmðiðunarverð í þorski og karfa.

Þorskur lækkar um 5% og karfi hækkar um 8%.

11. Febrúar 2005 | ÚTVEGURINN

Úthafsrækjustofninn í sögulegu lágmarki

Útgefið aflamark úthafsrækju fyrir yfirstandandi fiskveiðiár er 20 þúsund tonn, en úthafsrækjustofninn náði sögulegu lágmarki árið 2004. Minnkaði úthafsrækjuaflinn úr 22 þúsund tonnum árið 2003 í tæp 16 þúsund tonn árið 2004. Rækjustofninn er nú metinn minni en hann var árin 2001 til 2003 og fer minnkandi, samkvæmt nýlegri úttekt Hafrannsóknastofnunarinnar á ástandi úthafsrækjustofnsins. Vísitala í stofnmælingu úthafsrækju 2004 lækkaði frá árinu 2003 samfara auknum göngum þorsks fyrir norðan og austan land. Rétt er að rifja það upp, að breytingar sem gerðar voru á  fyrirkomulagi stofnmælingar úthafsrækju á síðasta ári auka á óvissu í stofnmati og ráðgjöf . Bæði var að rannsóknadögum var fækkað og eins að stofnmæling fór fram mánuði fyrr en áður. Er því mælingin nú ekki fyllilega sambærileg við mælingar fyrri ára.

2. Febrúar 2005 | ÚTVEGURINN

Ráðstefna um framtíð sjávarútvegsins

Í tilefni af 100 ára sögu togaraútgerðar á Íslandi mun sjávarútvegsráðuneytið efna til ráðstefnu um framtíð sjávarútvegsins þann 4. mars nk. á Hótel Nordica. Nú eru 100 ár frá því Coot, fyrsti togarinn í eigu Íslendinga, kom til hafnar í Hafnarfirði. Jafnframt hafa sjávarútvegsráðuneytið og menntamálaráðuneytið ákveðið að efna til samkeppni meðal grunnskóla landsins um verkefni sem ber yfirskriftina Sjávarútvegur í fortíð, nútíð og framtíð. Fer hún fram á þessu skólaári og er tilefnið 100 ára saga togaraútgerðar í landinu.

31. Janúar 2005 | ÚTVEGURINN

Verulegar tollalækkanir til Rússlands

Tollar á mikilvægustu útflutningsvörum Íslendinga til Rússlands lækka verulega eftir að samkomulag hefur náðst í beinum viðræðum við Rússa vegna fyrirhugaðrar aðildar þeirra að Alþjóðaviðskiptastofnuninni, WTO.

12. Janúar 2005 | ÚTVEGURINN

Friðun hrygningarsvæða þorsks og skarkola á vetrarvertíð

Sjávarútvegsráðuneyið hefur gefið út reglugerð um bann við veiðum vegna hrygningar þorsks og skarkola, en reglurnar eru óbreyttar frá síðasta ári.

12. Janúar 2005 | ÚTVEGURINN

Lagt til að loðnukvótinn verði stóraukinn

Loðnukvóti íslensku skipanna verður aukinn um 556 þúsund tonn ef sjávarútvegsráðherra fer að tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar um aukningu kvótans, en rannsóknaskipið Árni Friðriksson hefur lokið mælingu á loðnugöngunni norður og austur af landinu.

10. Janúar 2005 | ÚTVEGURINN

Reglugerð um búnað til að vara við leka í fiskiskipum væntanleg

Samgönguráðherra mun á næstunni gefa út reglugerð sem miðar að því að draga úr hættu á að fiskiskip sökkvi vegna óvænts leka, en sjóslysum af þeim ástæðum hefur farið fjölgandi undanfarin misseri. Reglugerðin er í samræmi við tillögur Landssambands íslenskra útvegsmanna, sem lagðar voru fram í Siglingaráði 15. október sl.

6. Janúar 2005 | ÚTVEGURINN

Sjómannasamningarnir samþykktir

Félagar í Sjómannasambandi Íslands, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands Alþýðusambandi Austurlands og Alþýðusambandi Vestfjarða samþykktu kjarasamning þessara aðila við Landssamband íslenskra útvegsmanna sem undirritaður var þann 30. október sl. Samningurinn var samþykktur með 57,6% atkvæða.

5. Janúar 2005 | ÚTVEGURINN

Loðnuveiðar hafnar

Loðnuveiðarnar eru hafnar og er Börkur NK á landleið með 1.200 tonn sem fara til frystingar í Fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað. Þá er Ásgrímur Halldórsson SF á leið til Hornafjarðar með 700 tonn af loðnu.


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta