Fréttir
29. September 2004 | ÚTVEGURINN
Hækkun á olíukostnaði fiskiskipa nálægt 2,5 milljörðum á ársgrundvelli
Þróun á hráolíumarkaði hefur verið uggvænleg undanfarin tvö
ár. Verð á hráolíu er nú komið í 50 dollara tunnan. Af fréttum að
dæma virðast meiri líkur en minni á að verð á hráolíu geti stigið
enn frekar.
28. September 2004 | ÚTVEGURINN
Óskað eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna LÍÚ
Landssamband íslenskra útvegsmanna óskar eftir tilnefningum til
umhverfisverðlauna LÍÚ fyrir árið 2004. Öll félög í sjávarútvegi
koma til greina sem handhafar verðlaunanna sem eiga skip og eru
félagar í LÍÚ.
21. September 2004 | ÚTVEGURINN
Fréttatilkynning frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna og Samtökum atvinnulífsins
Vegna frétta af samningum milli Útgerðarfélagsins Sólbaks ehf.
og áhafnar Sólbaks EA-7 vilja Landssamband íslenskra útvegsmanna og
Samtök atvinnulífsins taka eftirfarandi fram:
Útvegsmenn hafa í kjaraviðræðum við stéttarfélög sjómanna m.a.
farið þess á leit að gerðar verði breytingar á ákvæðum um hafnarfrí
á skuttogurum. Þegar skuttogararnir komu fyrir rúmum 30 árum
var algengt að hver veiðiferð stæði í um og yfir 10 daga á minni
togurunum en í um 14 daga á stærri togurum. Þá var samið um
að eftir hverja veiðiferð væru skipin stöðvuð í a.m.k. 30
klukkustundir.
16. September 2004 | ÚTVEGURINN
Ekki kemur til mála að aðrir en Íslendingar fari með forræði fiskistofnanna
Sjávarútvegur er mikilvægasti útflutningsatvinnuvegur Íslendinga. Af þessum ástæðum telja íslensk stjórnvöld að ekki komi til mála að aðrir en Íslendingar sjálfir fari með forræði fiskistofnanna og samninga um veiðar úr þeim við önnur ríki enda hefur nýting fiskveiðiauðlindarinnar verið og er einn mikilvægasti þátturinn í efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar.
Þetta segir m.a. í nýrri áfangaskýrslu starfshóps á vegum
utanríkisráðuneytis, sjávarútvegsráðuneytis og hagsmunasamtaka í
íslenskum sjávarútvegi sem utanríkisráðherra kynnti nýlega í
ríkisstjórn, en heiti skýrslunnar er Fiskveiðiauðlindin, Ísland og
Evrópusambandið.
8. September 2004 | ÚTVEGURINN
Útvegsmenn gáfu Háskólanum á Akureyri fullkomna neðansjávarmyndavél
Landssamband íslenskra útvegmanna hefur gefið Háskólanum á
Akureyri fullkomna neðansjávarmyndavél sem afhent var við hátíðlega
athöfn í skólanum í dag. Það var Björgólfur Jóhannsson, formaður
LÍÚ sem afhenti Þorsteini Gunnarssyni, rektor Háskólans gjöfina, en
í máli hans kom fram að hér er um að ræða afar fullkomið tæki sem
skapar byltingarkenndar umbætur á tæknilegri rannsóknagetu
neðansjávar.
6. September 2004 | ÚTVEGURINN
Útvegsmenn hagnast ekki á Veiðigjaldi
Í fréttum Bylgjunnar í dag var því haldið fram að útvegsmenn hagnist við álagningu Veiðigjalds, vegna þess að um leið falli niður Þróunarsjóðsgjald og Veiðieftirlitsgjald, en bæði þessi gjöld nemi samtals hærri fjárhæð en Veiðigjaldið.
5. September 2004 | ÚTVEGURINN
Breytt fyrirkomulag stofnmælingar úthafsrækju eykur á óvissu um túlkun
Lokið er árlegri stofnmælingu Hafrannsóknastofnunarinnar á úthafsrækju fyrir norðan og austan land. Helstu niðurstöður stofnmælingarinnar, skv. fréttatilkynningu frá Hafrannsóknastofnuninni, eru eftirfarandi:
Vísitala stofnstærðar samkvæmt fyrstu útreikningum er um 35%
lægri í ár miðað við árið 2003 ef litið er á svæðið í heild og 30%
lægri en árið 1999 sem var lakasta árið á tíunda áratugnum.
Vísitala lækkaði á öllum miðunum fyrir norðan land og við Austfirði
var algjör ördeyða nema á Rauða torgi. Sé litið á aðalrækjusvæðið,
Norðurkantur - Grímsey, er lækkun vísitölu 26% miðað við árið
2003.
1. September 2004 | ÚTVEGURINN
HB Grandi með mesta aflahlutdeild
HB Grandi er sú útgerð sem er með mesta aflahlutdeild mælt í
þorskígildistonnum á nýbyrjuðu fiskveiðiári, en aflamark fyrir
fiskveiðiárið 2004/2005 hefur verið gefið út. Í öðru sæti er
Samherji á Akureyri og Brim á Akureyri er í því þriðja.













