Fréttir
7. Júlí 2004 | ÚTVEGURINN
Íslenskum skipum heimilt að veiða 224.138 lestir af loðnu
Íslenskum skipum er heimilt að veiða 224.138 lestir af loðnu á
loðnuvertíðinni 2004/2005, samkvæmt reglugerð sem
sjávarútvegaráðuneytisins hefur sett um loðnuveiðar íslenskra
skipa. Jafnframt hefur ráðuneytið gefið út reglugerð varðandi
loðnuveiðar erlendra skipa.
6. Júlí 2004 | ÚTVEGURINN
Vísindaveiðum á hrefnu lokið í ár
Lokið er veiðum á þeim 25 hrefnum sem ákveðið var að veiða árið
2004 í samræmi við áætlun Hafrannsóknastofnunarinnar um
hrefnurannsóknir. Í fyrra voru veidd 36 dýr og því hafa alls hafa
verið tekin sýni úr 61 hrefnu og margvíslegar mælingar gerðar.
Greint verður frá gangi rannsóknanna á ársfundi vísindanefndar
Alþjóðahvalveiðiráðsins sem nú stendur yfir á Ítalíu.
1. Júlí 2004 | ÚTVEGURINN
Útvegurinn kominn út
Útvegurinn, 1. tbl. 2004 er kominn út og mun blaðið berast
áskrifendum í pósti á næstu dögum. Vefútgáfu blaðsins er hægt að
nálgast hér á heimasíðunni, en það er gert með því að smella á mynd
af forsíðu blaðsins sem sést efst til hægri á forsíðu vefsins.













