Fréttir
24. Júní 2004 | ÚTVEGURINN
Loðna fundin – Gullbergið með tæp 500 tonn í morgun
Gullberg VE 292 fann loðnu í gærkveldi um 80 sjómílur norður og
norðaustur af Hornbjargi, en Gullbergið er eitt fimm íslenskra
loðnuskipa sem er nú við loðnuleit norður af landinu. Gullbergið
var komið með um 500 tonn í morgun.
23. Júní 2004 | ÚTVEGURINN
Þrengir að loðnustofninum?
Eins og alkunna er gengur bæði mönnum og þorskum erfiðlega að
finna loðnu um þessar mundir og hafa a.m.k. mennirnir af þessu
nokkrar áhyggjur. Loðnan hefur ekki haldið sig á hefðbundinni slóð
fyrir landinu norðanverðu undanfarin 2 ár eða svo og er það talið
stafa af auknu streymi hlýsjávar norður á bóginn. Viðbrögð
loðnunnar hafa verið að færa sig norðar og vestar í kaldari sjó.
Afleiðingarnar eru minnkað aðgengi þorsks að loðnu til átu og
óvissa um veiðimöguleika á komandi loðnuvertíð.
21. Júní 2004 | ÚTVEGURINN
Mikilvægt að almennar reglur gildi við stjórn fiskveiða - ræða formanns LÍÚ á fundi SUS
"Ég á þá ósk eina fyrir íslenskan sjávarútveg að hann fái
að vaxa og dafna í eðlilegu og réttlátu starfsumhverfi. Ég vona að
sá stöðugleiki sem orðinn er í efnahagslífinu og er afar mikilvægur
fái að haldast og ef svo verður óttast ég ekki um sjávarútveginn,
svo lengi sem hann fær að vera í friði fyrir sértækum aðgerðum
stjórnmálanna. Það er mikilvægt að almennar reglur gildi við stjórn
fiskveiða og að allir sem starfa í greininni séu meðvitaðir um
reglurnar," sagði Björgólfur Jóhannsson, formaður LÍÚ,
m.a. á fundi með fulltrúum frá Sambandi ungra sjálfstæðismanna
á Eskifiðri í gær.
Ræðuna í heild er að finna hér.
21. Júní 2004 | ÚTVEGURINN
Sex skip hefja loðnuleit á morgun
Rannsóknaskipið Árni Friðriksson mun halda til loðnuleitar og
mælingar dagana 25. júní til 5. júlí. Rannsóknaskipinu til aðstoðar
við leitina verða 6 fiskiskip og fara þau út á morgun og á
miðvikudag.
20. Júní 2004 | ÚTVEGURINN
Lagt til að aflaregla í þorski verði 22%
Nefnd á vegum sjávarútvegsráðherra sem falið var að meta árangur
í nýtingu nytjastofna sjávar leggur til að aflareglu þeirri sem
gilt hefur við þorskveiðar verði breytt á þann veg að veidd verði
22% af veiðistofni þorsks í stað 35% eins og mælt er fyrir í
núgildandi aflareglu. Nefndin gerir þessa tillögu í ljósi þess að
undanfarna tvo áratugi hefur gætt tilnheygingar til ofmats á
þorskstofninum og hafi ofmatið leitt til þess að til jafnaðar hafi
verið veitt 27,5% veiðistofnsins í stað 25%, eins og gildandi
aflaregla kveður á um.
18. Júní 2004 | ÚTVEGURINN
Hvalveiðar og hagsmunir þjóðarinnar, -grein eftir Friðrik J. Arngrímsson
"Málflutningur talsmanna ferðaþjónustunnar að undanförnu
vegna vísindaveiða á hrefnu er óábyrgur og rangur," segir
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra
útvegsmanna í grein þar sem hann gagnrýnir ferðaþjónustuna fyrir
afstöðu atvinnugreinarinnar til hvalveiða.
15. Júní 2004 | ÚTVEGURINN
Aflamark næsta fiskveiðiárs að mestu í samræmi við ráðgjöf Hafró
Ákvörðun sjávarútvegaráðherra um heildarafla sem var kynnt í dag
er að mestu í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar, en
ráðgjöfin olli vonbrigðum hvað þorskinn varðar. Heildarafli í
þorski á næsta fiskveiðiári verður 205 þúsund lestir en var 209
lestir á því síðasta.
4. Júní 2004 | ÚTVEGURINN
Hákon með 50 milljóna verðmæti af norsk-íslenskri síld veiddri innan íslenskrar lögsögu
Hákon EA 148 kemur til hafnar á Neskaupstað í kvöld með 700 tonn
af síldarflökum, en síldin sem er úr norsk-íslenska síldarstofninum
er öll veidd innan íslenskrar lögsögu. Verðmæti aflans er um 50
milljónir króna. Þetta eru mikil tíðindi, því með hækkandi
hitastigi sjávar hafa vonir staðið til að göngumynstur síldarinnar
breyttist og að hún gengi í ríkari mæli inn í íslenska lögsögu en
verið hefur.
1. Júní 2004 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegsráðherra heimilar veiðar á 25 hrefnum í vísindaskyni í sumar
Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að 25 hrefnur verði veiddar í vísindaskyni í sumar. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær hafin verður veiði á þeim 200 langreyðum og 100 sandreyðum sem áætlun Hafrannsóknastofnunarinnar um vísindaveiðar kveður á um. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu.













