Fréttir
31. Mars 2004 | ÚTVEGURINN
Útrásarráðstefna - Tækifæri sjávarútvegsins
Sjávarútvegsráðuneytið og Útflutningsráð Íslands munu standa fyrir ráðstefnu í Salnum í Kópavogi fimmtudaginn 29. apríl nk. frá kl. 13:15 - 17:00. Ráðstefnan ber vinnuheitið "Tækifæri sjávarútvegsins" og mun fjalla um útrásartækifæri greinarinnar.
26. Mars 2004 | ÚTVEGURINN
Stjórn LÍÚ gerir tillögu um skiptingu aflaheimilda í karfa
Stjórn LÍÚ hefur lagt til við sjávarútvegsráðherra að hann beiti sér fyrir því að lögum um úthlutun aflaheimilda í karfa verði breytt, þar sem í ljós hefur komið að djúpkarfi sem veiddur hefur verið sem úthafskarfi utan úthafskarfalínu undanfarin ár, er sami stofn og sá djúpkarfi sem veiddur hefur verið í djúpköntunum innan lögsögu.
26. Mars 2004 | ÚTVEGURINN
Styrkur til náms í fiskifræði og skyldum greinum
Landssamband íslenskra útvegsmanna auglýsir styrk til framhaldsnáms í fiskifræði, sjávarvistfræði eða sjávarlíffræði.
18. Mars 2004 | ÚTVEGURINN
Gaf Velferðarsjóði barna 10 milljónir króna
Formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna færði Velferðarsjóði barna 10 milljónir króna að gjöf í gær fyrir hönd íslensks sjávarútvegs. Peningarnir verða nýttir til kaupa á tækjum og búnaði fyrir Rjóður, nýtt hjúkrunarheimili fyrir langveik börn.
17. Mars 2004 | ÚTVEGURINN
Hamingjuóskir vegna björgunar Baldvins Þorsteinssonar
Stjórn LÍÚ, sem kom saman til fundar í dag, fagnar giftursamlegri björgun fjölveiðiskipsins Baldvins Þorsteinssonar EA 10 af strandstað í Skarðsfjöru sl. nótt. Jafnframt óskar stjórnin eigendum skipsins, áhöfn þess, Landhelgisgæslunni og öðrum björgunaraðilum innilega til hamingju með það afrek sem unnið var með björgun skipsins.
4. Mars 2004 | ÚTVEGURINN
Stofnstærð langreyðar og hrefnu hin sama og við upphaf hvalveiða
Stofnar langreyðar og hrefnu við Ísland hafa náð þeirri stærð sem þeir voru í áður en veiðar á þessum tegundum hófust hér við land. Þetta er álit vísindanefndar NAMMCO, en fundi nefndarinnar lauk í Færeyjum í dag.
4. Mars 2004 | ÚTVEGURINN
Hafró vill banna rækjuveiðar í Ísafjarðardjúpi: Áfall fyrir útgerðarmenn og sjómenn við Djúp, segir Einar Valur Kristjánsson
Niðurstaða könnunar Hafrannsóknastofnunarinnar á innfjarðarrækju á Vestfjörðum og við Norðurland leiðir í ljós slæmt ástand stofnsins. Leggur stofnunin til að rækjuveiðar verði bannaðar í Ísafjarðardjúpi sem er einsdæmi. Þetta er áfall fyrir okkur, útgerðarmenn og sjómenn hér við Djúp, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf.
Jafnframt leggur stofnunin til að rækjuveiðar verði áfram bannaðar í Húnaflóa, í Skagafirði, í Skjálfanda og í Öxarfirði. Ef farið verður að tillögu stofnunarinnar verða rækjuveiðar aðeins heimilaðar í Arnarfirði í vetur.
3. Mars 2004 | ÚTVEGURINN
Hrygningarstopp hefst í apríl
Í reglugerð sjávarútvegsráðuneytisins um friðun hrygningarþorsks og skarkola á vetrarvertíðinni, sem gefin var út í fyrra kemur fram að veiðibannið sem reglugerðin kveður á um nái til níu svæða fyrir suðurlandi, suðausturlandi, suðvesturlandi, á Breiðafirði, í Ísafjarðardjúpi, fyrir norðvesturlandi og við Grímsey.













