Fréttir
23. Febrúar 2004 | ÚTVEGURINN
Auka þarf loðnurannsóknir og gera þær markvissari
Nauðsynlegt er að auka rannsóknir á loðnustofninum og gera þær um leið markvissari, að mati Landssambands íslenskra útvegsmanna. Samtökin hafa lagt til að haldin verði ráðstefna sem hafi það að markmiði að upplýsa um það hvernig staðið er að mælingum á loðnustofninum og jafnframt leitað eftir því hvaða leiðir séu færar til að bæta aðferðir við loðnurannsóknir og auka þekkingu.
20. Febrúar 2004 | ÚTVEGURINN
Óaðgengilegar kröfur Norðmanna í norsk-íslensku síldinni
Litlar líkur eru á að samningar náist um skiptingu norsk-íslenska síldarstofnsins. Árangurslaus fundur var haldinn í Kaupmannahöfn dagana 16. og 17. nóvember sl.
19. Febrúar 2004 | ÚTVEGURINN
Hafró leggur til 240 þúsund tonna aukningu loðnukvótans
Sjávarútvegsráðherra hefur fallist á tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar um aukningu loðnukvótans úr 635 þúsund tonnum í 875 þúsund tonn. Stofnunin lagði til að kvótinn yrði aukinn eftir nýjar stofnstærðarmælingar.
18. Febrúar 2004 | ÚTVEGURINN
FAO vinnur að leiðbeinandi reglum um umhverfismerki á sjávarafurðir
Næsta haust verður haldinn fundur aðildarríkja Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) um umhverfismarkingar á sjávarafurðum. Þetta var samþykkt á fundi undirnefndar fiskveiðinefndar stofnunarinnar nýlega. Frá þessu er sagt á vefsíðu sjávarútvegsráðuneytisins.
17. Febrúar 2004 | ÚTVEGURINN
Sjómenn styðja aðferð við verðmyndun á þorski, ýsu og ufsa
Núverandi verðákvörðun á þorski, ýsu og harfa nýtur stuðnings mikils meirihluta sjómanna. Þetta kemur fram í könnun sem Gallup gerði fyrir Verðlagsstofu skiptaverðs.
17. Febrúar 2004 | ÚTVEGURINN
Hvalaskoðun á horriminni
Starfsemi helstu hvalaskoðunarfyrirækjanna í landinu gengur illa og tap er á greininni í heild. Kristján Loftsson framkvæmdastjóri Hvals hf. greindi frá þessu á fundi í Háskólanum á Akureyri.
16. Febrúar 2004 | ÚTVEGURINN
Mikil umframveiði sóknardagabátanna
Sóknardagabátarnir veiða sem fyrr langt umfram það sem þeim er ætlað og nam aflinn síðasta fiskveiðiár sexföldum viðmiðunarafla þessara báta.
13. Febrúar 2004 | ÚTVEGURINN
Málstofa Hafrannsóknarstofnunar
Útvegsmenn urðu þess áskynja fyrir skemmstu að Hafrannsóknastofnunin hefði tekið upp það nýmæli að gangast fyrir málstofu um margvísleg málefni sem varða hafrannsóknir o.fl.
4. Febrúar 2004 | ÚTVEGURINN
Loðnukvótinn aukinn
Loðnukvótinn á þessari vertíð hefur verði aukinn úr 555 þúsund lestum í 635 þúsund lestir, að því er fram kemur í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu í dag.













