Fréttir
29. Janúar 2004 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmæti fyrstu 10 mánuði ársins 2003 var 57,1 milljarður króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa fyrstu 10 mánuði síðasta árs nam 57,1 milljarði króna, sem er 9,5 milljörðum króna minna en á sama tímabili árið 2002, en þá nam verðmæti aflans 66,7 milljörðum króna. Hér er um að ræða afla af öllum miðum. Samdráttur aflaverðmætis á milli áranna nemur 14,3%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofu Íslands. Megin ástæður þess að aflaverðmætið minnkar á milli ára má rekja til verðlækkana á erlendum mörkuðum, samhliða hækkandi gengi krónunnar.
21. Janúar 2004 | ÚTVEGURINN
Loðnan veiðist norðaustur úr Langanesi
Loðna er farin að veiðast á svæðinu norðaustur úr Langanesi, en þar fundu loðnuskip mikið af loðnu sl. föstudag og laugardag. Samkvæmt mælingum hafrannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar RE í gær virðist vera um hálf milljón tonna af loðnu á svæðinu. Búast má við að meira sé af loðnu á miðunum, þar sem eftir er að mæla víðar.
20. Janúar 2004 | ÚTVEGURINN
Loðnuveiðibanni aflétt
Sjávarútvegsráðuneytið hefur aflétt banni við loðnuveiðum að tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar. Fyrr í dag sendi stofnunin frá sér tilkynningu um þá tillögu sína og varð hún til þess að ráðuneytið heimilaði loðnuveiðar á ný.
16. Janúar 2004 | ÚTVEGURINN
Fiskiðjan Skagfirðingur kaupir Skagstrending
Fiskiðjan Skagfirðingur hf. hefur keypt Skagstrending hf. af Eimskipafélagi Íslands hf., en gengið var frá samningum vegna kaupanna í gærkveldi. Kaupverð fyrirtækisins er 2,7 milljarðar króna, að því er fram kemur á vef Kauphallar Íslands.
14. Janúar 2004 | ÚTVEGURINN
Eimskip selur Harald Böðvarsson og Útgerðarfélag Akureyringa
Eimskipafélagið hefur gengið frá samningum um sölu Haraldar Böðvarssonar hf. og Útgerðarfélags Akureyringa hf. Samningarnir hafa þegar verið samþykktir í stjórn Eimskipafélagsins. Það er Grandi hf. sem kaupir Harald Böðvarsson, en kaupendur ÚA eru feðgarnir Kristján Guðmundsson, Hjálmar Kristjánsson og Guðmundur Kristjánsson. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Kauphallar Íslands.
14. Janúar 2004 | ÚTVEGURINN
Loðnuveiðibann til 29. janúar nk.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið að banna allar loðnuveiðar í hálfan mánuð, eða til 29. janúar nk. Þetta er gert að tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar, en á meðan á banninu stendur mun stofnunin mæla loðnustofninn á ný. Hafi stofnunin lokið endurmati sínu á stærð stofnsins fyrir 29. janúar, mun ákvörðun ráðuneytisins um veiðibann verða endurskoðuð. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem sjávarútvegsráðuneytið sendi frá sér í dag.
13. Janúar 2004 | ÚTVEGURINN
Reglugerð um línuívilnun
Þann 12. janúar gaf Sjávarútvegsráðuneytið út reglugerð um línuívilnun og kemur hún til framkvæmda 1. febrúar nk.
10. Janúar 2004 | ÚTVEGURINN
Úthafsrækjukvótinn minnkar úr 30 þúsund tonnum í 20 þúsund tonn samkvæmt tillögu Hafró
Hafrannsóknastofnunin leggur til að ekki verði veitt meira en 20 þúsund tonn af úthafsrækju á yfirstandandi fiskveiðiári, en heildarkvóti síðasta fiskveiðiárs var 30 þúsund tonn. Á síðasta ári veiddust þó ekki nema rúm 23 þúsund tonn og vantaði því nokkuð upp á að kvótinn næðist.
9. Janúar 2004 | ÚTVEGURINN
Metár hjá Björgúlfi EA
Ísfiskskipið Björgúlfur EA 312 veiddi alls 5.000 tonn á árinu 2003 og nam aflaverðmætið rúmum 526 milljónum króna (FOB-verðmæti). Þetta er mesti afli sem skipið hefur komið með að landi á einu ári og er hugsanlegt að hér sé um að ræða mesta aflaverðmæti sem íslenskur ísfisktogari hefur skapað á einu og sama árinu, að því er fram kemur á fréttavef Samherja hf.
7. Janúar 2004 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmæti Vilhelms Þorsteinssonar EA 1.135 milljónir króna
Fjölveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson EA-11 veiddi alls tæp 54.000 tonn á árinu 2003 og nam framleiðsluverðmæti afurðanna 1.135 milljónum króna (CIF-verðmæti). Afli skipsins var aðallega síld, loðna, kolmunni og úthafskarfi. Skipið veiddi alls 23.000 tonn af síld, 22.000 tonn af loðnu, 8.000 tonn af kolmunna og um 1.400 tonn af úthafskarfa. Er hér um meiri verðmætasköpun í síldveiðum að ræða en hjá öðrum skipum íslenska síldveiðiflotans, að því er segir í frétt á heimasíðu Samherja.













