Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

20. Desember 2004 | ÚTVEGURINN

Tíu nemendur útskrifuðust frá Vélskólanum og Stýrimannaskólanum

Menntafélagið ehf. útskrifaði tíu nemendur frá Vélskóla Íslands og Stýrimannaskólanum í Reykjavík þann 17. desember sl. við hátíðlega athöfn í hátíðarsal skólans. Átta nemendur luku skipstjórnarnámi 3. stigs við skipstjórnarsvið á haustönn, en það er svipaður fjöldi og undanfarin ár. Tveir nemendur luku námi við vélstjóra 4. stigs við vélstjórnarsvið, en þeir voru jafnframt útskrfaðir með stúdentspróf frá skólanum.

13. Desember 2004 | ÚTVEGURINN

Ólíkt hafast þeir að, grein eftir Friðrik J. Arngrímsson

Framkvæmdastjóri LÍÚ gagnrýnir sjávarútvegsráðherra í grein í Fiskifréttum fyrir að sinna í engu ósk samtakanna um að ákvæði um veiðigjald í lögum um stjórn fiskveiða verði breytt þannig að veiðigjald verði ekki lagt á aflaheimildir í veiðigreinum þar sem afkomu- eða aflabrestur verður. Í greininni bendir Friðrik J. Arngrímsson á að helsta röksemdin fyrir álagningu gjaldsins hafi verið að veita almenningi hlutdeild í hagnaði af nýtingu fiskveiðauðlindarinnar og að tryggja þjóðinni í heild hlutdeild í þeim umframarði sem nýting hennar skapar. Segir Friðrik að tap sé á rækjuútgerð og því ekki til staðar neinn umframarður, þ.e. arður umfram það sem almennt gerist í öðrum atvinnugreinum. Þótt erindi þetta hafi verið ítrekað hefur sjávarútvegsráðherra ekki svarað því.

Sjá grein Friðriks J. Arngrímssonar

1. Desember 2004 | ÚTVEGURINN

Nýtt uppsjávarveiðiskip Samherja, Háberg GK 299, komið til Grindavíkur

Nýtt uppsjávarveiðiskip Samherja hf., Háberg GK 299, kom til Grindavíkur, upp úr miðnætti sl. nótt, eftir sex daga siglingu frá Póllandi. Mikil stemmning hefur verið í bænum vegna komu skipsins, að því er fram kemur í frétt á heimasíðu Samherja. Háberg er eina uppsjávarskipið sem gert verður út frá Grindavík.

25. Nóvember 2004 | ÚTVEGURINN

Glæsilegt fjölveiðiskip, Björg Jónsdóttir ÞH-321, kom til heimahafnar í dag

Nýtt og glæsilegt fjölveiðiskip, Björg Jónsdóttir ÞH-321, sem Langanes á og gerir út, kom til heimahafnar á Húsavík í dag eftir fimm daga siglingu frá Gdynia í Póllandi þar sem fram fóru endurbætur á skipinu. Heimsiglingin gekk vel.

22. Nóvember 2004 | ÚTVEGURINN

Rétt að hugleiða að hefja veiðar á hnúfubak, að mati hvalasérfræðings Hafró

Stofnstærð hnúfubaks er orðin meiri en hún var áður en hvalveiðar hófust hér við land, að mati Gísla Víkingssonar, hvalasérfræðings hjá Hafrannsóknarstofnuninni. Telur Gísli því að rétt sé að hugleiða að hefja veiðar á hnúfubak, enda hafi hnúfubak fjölgað mikið á undanförnum áratugum.

11. Nóvember 2004 | ÚTVEGURINN

Undirbúningur málaferla vegna Svalbarða á góðri leið

Undirbúningur málssóknar á hendur Norðmönnum vegna Svalbarða er á góðri leið og hafa verið haldnir samráðsfundir um málið með ýmsum aðildarríkjum Svalbarðasamningsins, sem sýnt hafa málinu áhuga. Einnig hefur erlendur sérfræðingur verið ráðinn til að til að rita ítarlega greinargerð um málið fyrir stjórnvöld. Þetta kom m.a. fram í ræðu Davíðs Oddssonar, utanríkisráðherra, um utanríkismál á Alþingi í dag.

6. Nóvember 2004 | ÚTVEGURINN

Framlag sjávarútvegs til landsframleiðslunnar nær 30% en 10%

Sjávarútvegurinn er grundvallaratvinnuvegur þjóðarinnar og er framlag hans til landsframleiðslunnar stórlega vanmetið í þjóðhagsreikningum. Það er nær því að vera 30% en 10%, eins og töluleg gögn gefa til kynna. Þetta kom fram í erindi sem Ragnar Árnason, prófessor við Háskóla Íslands, flutti á aðalfundi LÍÚ.

5. Nóvember 2004 | ÚTVEGURINN

Athugun á mögulegum skaðabótakröfum

Landssamband íslenskra útvegsmanna hyggst láta fara fram frumathugun á mögulegum skaðabótakröfum útgerða á hendur olíufélugunum vegna ólögmæts samráðs þeirra, sbr. ákvörðun Samkeppnisráðs nr. 21/2004.

30. Október 2004 | ÚTVEGURINN

Nýr kjarasamningur sjómanna og útvegsmanna undirritaður í dag

Nýr kjarasamningur sjómanna og útvegsmanna var undirritaður í dag. Samningurinn tekur til Sjómannasambands Íslands, Alþýðusambands Austurlands, Alþýðusambands Vestfjarða og Farmanna- og fiskimannasambands Íslands.

29. Október 2004 | ÚTVEGURINN

Ályktanir aðalfundar LÍÚ

Ályktun þar sem skorað er á sjávarútvegsráðherra um að beita sér fyrir afnámi línuívilnunar var samþykkt á aðalfundi LÍÚ sem lauk í dag. Þá samþykkti fundurinn einnig ályktun þar sem skorað er á sjávarútvegsráðherra að beita sér fyrir niðurfellingu veiðigjalds.
Þá samþykkti fundurinn ályktanir sem taka til loðnurannsókna, framsals aflaheimilda, meðafla við kolmunnaveiðar, eftirlitsiðnaðar og hvalveiða.

 

29. Október 2004 | ÚTVEGURINN

Aðalfundurinn á vefnum

Allar upplýsingar um aðalfund LÍÚ sem lauk í dag má finna hér á vefnum undir liðnum Aðalfundir. Þar má nálgast þær ræður sem fluttar voru, glærur og ályktanir sem fundurinn samþykkti.Einnig má komast inn á þann hluta vefsins með því að smella hér.

29. Október 2004 | ÚTVEGURINN

Björgólfur Jóhannsson endurkjörinn formaður LÍÚ

Björgólfur Jóhannsson var endurkjörinn formaður LÍÚ á aðalfundi samtakanna sem lauk í dag.

28. Október 2004 | ÚTVEGURINN

Ræða formanns á aðalfundi LÍÚ 2004

"Landssamband íslenskra útvegsmanna vill sjá stöðugleika í fiskveiðistjórnuninni. Sífelldar breytingar með sértækum aðgerðum grafa undan henni. Að mínu viti er það hagur þjóðarinnar að núverandi fyrirkomulag verði fest í sessi og það sé skylda allra aðila sem að málum koma að vinna að því," sagði Björgólfur Jóhannsson, formaður LÍÚ m.a. í ræðu sinni á aðalfundi samtakanna í dag.

28. Október 2004 | ÚTVEGURINN

Ræða sjávarútvegsráðherra á aðalfundi LÍÚ

"Það verður reyndar að teljast nokkuð einkennilegt hversu margir telja kvótakerfinu það til lasts að það hefur ýtt undir hagræðingu og arðsemi í greininni, þegar það er í raun einn helsti styrkur kerfisins. Þetta er ekki síst skrýtin umræða þegar horft er til þess að engin önnur grein þarf að lúta samskonar takmörkunum og sjávarútvegsfyrirtæki hvað varðar stærð fyrirtækjanna," sagði Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra m.a. í ræðu sinni á aðalfundi LÍÚ í dag.

28. Október 2004 | ÚTVEGURINN

Eskja hf. hlaut umhverfisverðlaun LÍÚ 2004

Eskja hf. hlaut umhverfisverðlaun LÍÚ í ár, en Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra afhenti Elfari Aðalsteinssyni, stjórnarformanni fyrirtækisins, verðlaunin á aðalfundi LÍÚ. Verðlaunagripurinn bef nafnið  Brimandi, en höfundur þess er  listamaðurinn Jónas Bragi Jónasson.

22. Október 2004 | ÚTVEGURINN

Aðalfundur LÍÚ - dagskrá

65. aðalfundur LÍÚ verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík dagana 28. og 29. október nk. Fundurinn hefst kl. 13:00 fimmtudaginn 28. október.

Dagskrá fundarins er þessi:

21. Október 2004 | ÚTVEGURINN

Ný viðmiðunarverð frá Verðlagsstofu

Á fundi úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna, sem haldinn var 18. október 2004, var ákveðið að hækka viðmiðunarverð á karfa útgefnu af Verðlagsstofu um 5%.

20. Október 2004 | ÚTVEGURINN

Hafrannsóknastofnunin leggur til rækjuveiðibann í Ísafjarðardjúpi og Arnarfirði

Nýlokið er haustkönnun Hafrannsóknastofnunarinnar á rækjumiðunum á Vestfjörðum, en í tilkynningu frá stofnuninni segir að könnunin leiði í ljós að mikil fiskigegnd hefur að líkindum orðið til þess að rækjustofninn í Ísafjarðardjúpi sé hruninn. Þá er stofnvísitala rækju í Arnarfirði langt undir meðaltali. Leggur því stofnunin til rækjuveiðibann á báðum stöðum.

14. Október 2004 | ÚTVEGURINN

Launahlutfall á íslenska uppsjávarflotanum mun hærra en í Færeyjum, Noregi og Danmörku

Vegna yfirlýsingar áhafna nokkurra skipa í uppsjávarveiðiflotanum vill formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna taka fram eftirfarandi:
Munurinn á heildarlaunakostnaði útgerða íslenskra og erlendra uppsjávarveiðiskipa, sést best með því að bera saman það hlutfall af aflaverðmæti sem fer í laun til sjómanna. Fyrir liggur að launahlutfall á íslenska uppsjávarflotanum er mun hærra en í þeim löndum sem sjómenn nefna í yfirlýsingu sinni, þ.e. í Færeyjum, Noregi og Danmörku.

14. Október 2004 | ÚTVEGURINN

Aðalfundur LÍÚ 2004

Aðalfundur LÍÚ verður haldinn dagana 28. og 29. október nk. á Grand Hótel í Reykjavík. Fundurinn hefst kl 13:00 fimmtudaginn 28. október.

8. Október 2004 | ÚTVEGURINN

Yfirlýsing frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna

Síðustu daga hefur mikið verið fjallað um Sólbaksdeiluna svonefndu. Forysta LÍÚ hefur fram að þessu ekki tjáð sig um málið - enda málið samtökunum alls óskylt. Undanfarið hefur borið á villandi ummælum þess efnis að aðgerðir eða aðgerðarleysi samtakanna geri þau aðila að Sólbaksmálinu og hefur Vélstjórafélag Íslands nú gengið svo langt að draga LÍÚ ásamt SA fyrir dómstóla vegna þessa máls. Sú ákvörðun er hörmuð, og í ljósi undangenginnar umræðu, vill formaður LÍÚ taka fram eftirfarandi:

29. September 2004 | ÚTVEGURINN

Hækkun á olíukostnaði fiskiskipa nálægt 2,5 milljörðum á ársgrundvelli

Þróun á hráolíumarkaði hefur verið uggvænleg undanfarin tvö ár. Verð á hráolíu er nú komið í 50 dollara tunnan. Af fréttum að dæma virðast meiri líkur en minni á að verð á hráolíu geti stigið enn frekar.

28. September 2004 | ÚTVEGURINN

Óskað eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna LÍÚ

Landssamband íslenskra útvegsmanna óskar eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna LÍÚ fyrir árið 2004. Öll félög í sjávarútvegi koma til greina sem handhafar verðlaunanna sem eiga skip og eru félagar í LÍÚ.

21. September 2004 | ÚTVEGURINN

Fréttatilkynning frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna og Samtökum atvinnulífsins

Vegna frétta af samningum milli Útgerðarfélagsins Sólbaks ehf. og áhafnar Sólbaks EA-7 vilja Landssamband íslenskra útvegsmanna og Samtök atvinnulífsins taka eftirfarandi fram:
Útvegsmenn hafa í kjaraviðræðum við stéttarfélög sjómanna m.a. farið þess á leit að gerðar verði breytingar á ákvæðum um hafnarfrí á skuttogurum.  Þegar skuttogararnir komu fyrir rúmum 30 árum var algengt að hver veiðiferð stæði í um og yfir 10 daga á minni togurunum en í um 14 daga á stærri togurum.  Þá var samið um að eftir hverja veiðiferð væru skipin stöðvuð í a.m.k. 30 klukkustundir.

16. September 2004 | ÚTVEGURINN

Ekki kemur til mála að aðrir en Íslendingar fari með forræði fiskistofnanna

Sjávarútvegur er mikilvægasti útflutningsatvinnuvegur Íslendinga. Af þessum ástæðum telja íslensk stjórnvöld að ekki komi til mála að aðrir en Íslendingar sjálfir fari með forræði fiskistofnanna og samninga um veiðar úr þeim við önnur ríki enda hefur nýting fiskveiðiauðlindarinnar verið og er einn mikilvægasti þátturinn í efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar.

Þetta segir m.a. í nýrri áfangaskýrslu starfshóps á vegum utanríkisráðuneytis, sjávarútvegsráðuneytis og hagsmunasamtaka í íslenskum sjávarútvegi sem utanríkisráðherra kynnti nýlega í ríkisstjórn, en heiti skýrslunnar er Fiskveiðiauðlindin, Ísland og Evrópusambandið.

8. September 2004 | ÚTVEGURINN

Útvegsmenn gáfu Háskólanum á Akureyri fullkomna neðansjávarmyndavél

Landssamband íslenskra útvegmanna hefur gefið Háskólanum á Akureyri fullkomna neðansjávarmyndavél sem afhent var við hátíðlega athöfn í skólanum í dag. Það var Björgólfur Jóhannsson, formaður LÍÚ sem afhenti Þorsteini Gunnarssyni, rektor Háskólans gjöfina, en í máli hans kom fram að hér er um að ræða afar fullkomið tæki sem skapar byltingarkenndar  umbætur á tæknilegri rannsóknagetu neðansjávar.

6. September 2004 | ÚTVEGURINN

Útvegsmenn hagnast ekki á Veiðigjaldi

Í fréttum Bylgjunnar í dag var því haldið fram að útvegsmenn hagnist við álagningu Veiðigjalds, vegna þess að um leið falli niður Þróunarsjóðsgjald og Veiðieftirlitsgjald, en bæði þessi gjöld nemi samtals hærri fjárhæð en Veiðigjaldið.

5. September 2004 | ÚTVEGURINN

Breytt fyrirkomulag stofnmælingar úthafsrækju eykur á óvissu um túlkun

Lokið er árlegri stofnmælingu Hafrannsóknastofnunarinnar á úthafsrækju fyrir norðan og austan land. Helstu niðurstöður stofnmælingarinnar, skv. fréttatilkynningu frá Hafrannsóknastofnuninni, eru eftirfarandi:

Vísitala stofnstærðar samkvæmt fyrstu útreikningum er um 35% lægri í ár miðað við árið 2003 ef litið er á svæðið í heild og 30% lægri en árið 1999 sem var lakasta árið á tíunda áratugnum. Vísitala lækkaði á öllum miðunum fyrir norðan land og við Austfirði var algjör ördeyða nema á Rauða torgi. Sé litið á aðalrækjusvæðið, Norðurkantur - Grímsey, er lækkun vísitölu 26% miðað við árið 2003.

1. September 2004 | ÚTVEGURINN

HB Grandi með mesta aflahlutdeild

HB Grandi er sú útgerð sem er með mesta aflahlutdeild mælt í þorskígildistonnum á nýbyrjuðu fiskveiðiári, en aflamark fyrir fiskveiðiárið 2004/2005 hefur verið gefið út. Í öðru sæti er Samherji á Akureyri og Brim á Akureyri er í því þriðja.

27. Ágúst 2004 | ÚTVEGURINN

Vélskólinn og Stýrimannaskólinn taka fullkomna véla- og siglingaherma í notkun

Menntafélagið ehf., fyrir hönd Vélskóla Íslands og Stýrimannaskólans í Reykjavík, tók í dag í notkun nýja og fullkomna herma sem notaðir verða við kennslu og þjálfun. Annars vegar er um að ræða nýjan vélhermi fyrir Vélskólann og hins vegar uppfærslu siglingahermis fyrir Stýrimannaskólann. Það var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sem tók hermana formlega í notkun með því að ræsa vélar skips í vélherminum og stýra því inn í höfnina í Halifax í siglingaherminum.

26. Ágúst 2004 | ÚTVEGURINN

Mótmæla rangfærslum umhverfisverndarsamtaka um íslenska þorskinn

Utanríkisráðuneytið hefur sent bandarísku samtökunum Monteray Bay Aquarium bréf, þar sem brugðist er við áróðursherferð samtakanna gegn neyslu íslenska þorsksins í Bandaríkjunum og í Kanada og fullyrðingar samtakanna hraktar. Jafnframt er krafist leiðréttingar eða afturköllunar bæklingsins. Þetta kemur fram í tikynningu frá utanríkisráðuneytinu.

19. Ágúst 2004 | ÚTVEGURINN

Mikill órói á olíumarkaði

Þróun  á hráolíumarkaði hefur verið uggvænleg undanfarin tvö ár. Verð á hráolíu er nú komið í hæstu hæðir og er yfir 47 dollurum tunnan. Af fréttum að dæma virðast meiri líkur en minni að verð á hráolíu geti stigið enn frekar.

16. Ágúst 2004 | ÚTVEGURINN

LÍÚ fagnar ákvörðun íslenskra stjórnvalda um Svalbarðasvæðið

Landssamband íslenskra útvegsmanna fagnar þeirri ákvörðun íslenskra stjórnvalda, sem Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra greindi frá í dag, að hefja undirbúning að því látið verði reyna á rétt okkar til að stunda veiðar á Svalbarðasvæðinu fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag.

13. Ágúst 2004 | ÚTVEGURINN

Miklar þorskveiðiheimildir teknar frá aflamarksskipunum vegna dagabáta og línuívilnunar

Samkvæmt reglugerð sem sjávarútvegsráðherra hefur gefið út nemur skerðing aflamarksskipanna í þorski á komandi fiskveiðiári um 11.000 tonnum, m.v. slægðan fisk, vegna línuívilnunar og veiðiheimilda sem færðar verða dagabátum, samkvæmt lögum frá sl. vori.

12. Ágúst 2004 | ÚTVEGURINN

Vaðandi íslensk sumargotssíld

Vaðandi síld hefur sést út fyrir Norðurlandi upp á síðkastið og einnig varð síldar vart inni á Siglufirði fyrir skemmstu. Nú hafa sýni sem tekin voru af síld sem veiddist í fjöruborðinu við Siglufjörð nýlega verið greind og er ljóst að hér er um íslenska sumargotssíld að ræða.

7. Júlí 2004 | ÚTVEGURINN

Íslenskum skipum heimilt að veiða 224.138 lestir af loðnu

Íslenskum skipum er heimilt að veiða 224.138 lestir af loðnu á loðnuvertíðinni 2004/2005, samkvæmt reglugerð sem sjávarútvegaráðuneytisins hefur sett um loðnuveiðar íslenskra skipa. Jafnframt hefur ráðuneytið gefið út reglugerð varðandi loðnuveiðar erlendra skipa.

6. Júlí 2004 | ÚTVEGURINN

Vísindaveiðum á hrefnu lokið í ár

Lokið er veiðum á þeim 25 hrefnum sem ákveðið var að veiða árið 2004 í samræmi við áætlun Hafrannsóknastofnunarinnar um hrefnurannsóknir. Í fyrra voru veidd 36 dýr og því hafa alls hafa verið tekin sýni úr 61 hrefnu og margvíslegar mælingar gerðar. Greint verður frá gangi rannsóknanna á ársfundi vísindanefndar Alþjóðahvalveiðiráðsins sem nú stendur yfir á Ítalíu.

1. Júlí 2004 | ÚTVEGURINN

Útvegurinn kominn út

Útvegurinn, 1. tbl. 2004 er kominn út og mun blaðið berast áskrifendum í pósti á næstu dögum. Vefútgáfu blaðsins er hægt að nálgast hér á heimasíðunni, en það er gert með því að smella á mynd af forsíðu blaðsins sem sést efst til hægri á forsíðu vefsins.

24. Júní 2004 | ÚTVEGURINN

Loðna fundin – Gullbergið með tæp 500 tonn í morgun

Gullberg VE 292 fann loðnu í gærkveldi um 80 sjómílur norður og norðaustur af Hornbjargi, en Gullbergið er eitt fimm íslenskra loðnuskipa sem er nú við loðnuleit norður af landinu. Gullbergið var komið með um 500 tonn í morgun.

23. Júní 2004 | ÚTVEGURINN

Þrengir að loðnustofninum?

Eins og alkunna er gengur bæði mönnum og þorskum erfiðlega að finna loðnu um þessar mundir og hafa a.m.k. mennirnir af þessu nokkrar áhyggjur. Loðnan hefur ekki haldið sig á hefðbundinni slóð fyrir landinu norðanverðu undanfarin 2 ár eða svo og er það talið stafa af auknu streymi hlýsjávar norður á bóginn. Viðbrögð loðnunnar hafa verið að færa sig norðar og vestar í kaldari sjó. Afleiðingarnar eru minnkað aðgengi þorsks að loðnu til átu og óvissa um veiðimöguleika á komandi loðnuvertíð.

21. Júní 2004 | ÚTVEGURINN

Mikilvægt að almennar reglur gildi við stjórn fiskveiða - ræða formanns LÍÚ á fundi SUS

"Ég á þá ósk eina fyrir íslenskan sjávarútveg að hann fái að vaxa og dafna í eðlilegu og réttlátu starfsumhverfi. Ég vona að sá stöðugleiki sem orðinn er í efnahagslífinu og er afar mikilvægur fái að haldast og ef svo verður óttast ég ekki um sjávarútveginn, svo lengi sem hann fær að vera í friði fyrir sértækum aðgerðum stjórnmálanna. Það er mikilvægt að almennar reglur gildi við stjórn fiskveiða og að allir sem starfa í greininni séu meðvitaðir um reglurnar," sagði Björgólfur Jóhannsson, formaður LÍÚ, m.a. á fundi með fulltrúum frá Sambandi ungra sjálfstæðismanna á Eskifiðri í gær.
Ræðuna í heild er að finna hér.

21. Júní 2004 | ÚTVEGURINN

Sex skip hefja loðnuleit á morgun

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson mun halda til loðnuleitar og mælingar dagana 25. júní til 5. júlí. Rannsóknaskipinu til aðstoðar við leitina verða 6 fiskiskip og fara þau út á morgun og á miðvikudag. 

20. Júní 2004 | ÚTVEGURINN

Lagt til að aflaregla í þorski verði 22%

Nefnd á vegum sjávarútvegsráðherra sem falið var að meta árangur í nýtingu nytjastofna sjávar leggur til að aflareglu þeirri sem gilt hefur við þorskveiðar verði breytt á þann veg að veidd verði 22% af veiðistofni þorsks í stað 35% eins og mælt er fyrir í núgildandi aflareglu. Nefndin gerir þessa tillögu í ljósi þess að undanfarna tvo áratugi hefur gætt tilnheygingar til ofmats á þorskstofninum og hafi ofmatið leitt til þess að til jafnaðar hafi verið veitt 27,5% veiðistofnsins í stað 25%, eins og gildandi aflaregla kveður á um.

18. Júní 2004 | ÚTVEGURINN

Hvalveiðar og hagsmunir þjóðarinnar, -grein eftir Friðrik J. Arngrímsson

"Málflutningur talsmanna ferðaþjónustunnar að undanförnu vegna vísindaveiða á hrefnu er óábyrgur og rangur," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna í grein þar sem hann gagnrýnir ferðaþjónustuna fyrir afstöðu atvinnugreinarinnar til hvalveiða.

15. Júní 2004 | ÚTVEGURINN

Aflamark næsta fiskveiðiárs að mestu í samræmi við ráðgjöf Hafró

Ákvörðun sjávarútvegaráðherra um heildarafla sem var kynnt í dag er að mestu í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar, en ráðgjöfin olli vonbrigðum hvað þorskinn varðar. Heildarafli í þorski á næsta fiskveiðiári verður 205 þúsund lestir en var 209 lestir á því síðasta.

4. Júní 2004 | ÚTVEGURINN

Hákon með 50 milljóna verðmæti af norsk-íslenskri síld veiddri innan íslenskrar lögsögu

Hákon EA 148 kemur til hafnar á Neskaupstað í kvöld með 700 tonn af síldarflökum, en síldin sem er úr norsk-íslenska síldarstofninum er öll veidd innan íslenskrar lögsögu. Verðmæti aflans er um 50 milljónir króna. Þetta eru mikil tíðindi, því með hækkandi hitastigi sjávar hafa vonir staðið til að göngumynstur síldarinnar breyttist og að hún gengi í ríkari mæli inn í íslenska lögsögu en verið hefur.

1. Júní 2004 | ÚTVEGURINN

Sjávarútvegsráðherra heimilar veiðar á 25 hrefnum í vísindaskyni í sumar

Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að 25 hrefnur verði veiddar í vísindaskyni í sumar. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær hafin verður veiði á þeim 200 langreyðum og 100 sandreyðum sem áætlun Hafrannsóknastofnunarinnar um vísindaveiðar kveður á um. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu.

28. Maí 2004 | ÚTVEGURINN

Afleiðingar smábátafrumvarpsins: Tæp 8 þúsund tonn af þorski tekin af aflamarksskipunum og færð smábátum -ásamt verulegum aflaheimildum í ýsu, ufsa og karfa

Frumvarp um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða sem varðar svonefnda sóknardagabáta sem nú er að verða að lögum, hefur það í för með sér að miklar veiðiheimildir eru fluttar frá aflamarksskipunum yfir til smábáta. Er þar um að ræða um 7.700 lestir af þorski sem jafngilda um 4% af heildarþorskveiðiheimildum á Íslandsmiðum. Þá er og um að ræða tilflutning á ýsu, ufsa og karfa frá aflamarksskipunum til smábátanna.

26. Maí 2004 | ÚTVEGURINN

Fjölsóttur fundur um hvalveiðar

Hátt í eitt hundrað manns sátu fund Sjávarnytja, Landssambands íslenskra útvegsmanna, Farmanna- og fiskimannasambands Íslands og Sjómannasambands Íslands, en hvalveiðar voru umræðuefnið á fundinum. Boðað hafði verið að sjávarútvegsráðherra kæmi til fundarins og tilkynnti um fyrirhugaðar vísindaveiðar á hval á komandi sumri, en ráðherra tilkynnti um forföll. Verður því að bíða enn um sinn eftir fréttum af ákvörðun ráðherra í því máli.

24. Maí 2004 | ÚTVEGURINN

Opinn fundur um hvalveiðar

Opinn morgunverðarfundur um hvalveiðar verður haldinn á Grand Hótel í Reykjavík á miðvikudagsmorgun og hefst hann kl. 8. Á fundinum mun sjávarútvegsráðherra m.a. ræða um framhald hvalveiða í sumar. Fundurinn er öllum opinn.

17. Maí 2004 | ÚTVEGURINN

Heimild til tegundatilfærslu í langlúru og skarkola hækkuð í 5%

Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð þar sem kveðið er á um hækkun á heimild til tegundatilfærslu í langlúru og skarkola. Ástæðan fyrir setningu þessarar reglugerðar er sú að mjög góð aflabrögð hafa verið í veiðum á framangreindum tegundum. Áður hafði heimild til tegundatilfærslu verið hækkuð samsvarandi í löngu og keilu.

14. Maí 2004 | ÚTVEGURINN

LÍÚ leggst gegn frumvarpi um sóknardagabáta

Landssamband íslenskra útvegsmanna leggst eindregið gegn því að frumvarp sjávarútvegsráðherra um sóknardagabáta verði samþykkt, enda myndi það leiða til þess að miklar aflaheimildir yrðu teknar frá aflamarksskipunum og fluttar til sóknardagabátanna.

13. Maí 2004 | ÚTVEGURINN

Grænfriðungar beita gróðaröksemdum

Grænfriðungar virðast hafa horfið frá því að halda fram að hrefnuveiðar séu ógn við viðkvæman stofn eða stofn í útrýmingarhættu. Þess í stað kjósi samtökin að beita fyrir sig gróðaröksemdum í áróðri gegn vísindaveiðum Íslendinga á hval. Þetta kemur m.a. fram í tilkynningu sem utanríkisráðuneytið hefur sent frá sér í tilefni af bréfaskriftum Grænfriðunga til Íslendinga.

7. Maí 2004 | ÚTVEGURINN

Íslendingum ber siðferðileg skylda til vísindaveiða á hrefnu

Sú krafa er gerð á alþjóðavettvangi að fiskveiðar séu stundaðar á ábyrgan hátt.  Krafan byggir bæði á nýtingarsjónarmiðum og sjónarmiðum umhverfisverndar. 

Við Íslendingar leggjum áherslu á að stunda ábyrgar fiskveiðar og teljum það siðferðilega skyldu okkar. Áreiðanlegt mat á stofnstærð, afföllum og afrakstursgetu er forsenda ábyrgrar nýtingar þorskstofnsins. Þetta er meðal þess sem kom fram í erindi Kristján Þórarinssonar stofnvistfræðings á fundi um hvalveiðar sem haldinn var í Etnografiska safninu í Stokkhólmi þann 4. maí síðastliðinn.

23. Apríl 2004 | ÚTVEGURINN

Hægt að minnka losun á teknetíni frá Sellafieldstöðinni um 90%

Hægt er að draga stórlega úr losun þrávirka efnisins teknetíns frá kjarnorkuendurvinnslustöðinni í Sellafield, samkvæmt niðurstöðum tilrauna sem bresk stjórnvöld hafa birt. Unhverfisráðherra, Siv Friðleifsdóttir, fagnar þessum mikilvæga áfanga í baráttunni gegn losun mengandi efna í hafið. Hér er um mikið hagsmunamál að ræða fyrir Íslendinga, því mengun frá endurvinnslustöðinni hefur ógnað hreinleika lífríkisins í Norður Atlantshafi. Ber að þakka umhverfisráðherra skelegga framgöngu í þessu mikilvæga hagsmunamáli.

6. Apríl 2004 | ÚTVEGURINN

Stofnvísitala þorsks hækkaði samkvæmt fyrstu niðurstöðum togararalls Hafrannsóknastofnunarinnar

Stofnvítitala þorsks hækkaði um 25% frá árinu 2003 samkvæmt fyrstu niðurstöðum stofnmælingar Hafrannsóknastofnunarinnar á Íslandsmiðum sem fram fór fyrstu þrjár vikurnar í mars sl. Þetta kemur fram í frétt sem stofnunin hefur sent frá sér.

31. Mars 2004 | ÚTVEGURINN

Útrásarráðstefna - Tækifæri sjávarútvegsins

Sjávarútvegsráðuneytið og Útflutningsráð Íslands munu standa fyrir ráðstefnu í Salnum í Kópavogi fimmtudaginn 29. apríl nk. frá kl. 13:15 - 17:00. Ráðstefnan ber vinnuheitið "Tækifæri sjávarútvegsins" og mun fjalla um útrásartækifæri greinarinnar.

26. Mars 2004 | ÚTVEGURINN

Stjórn LÍÚ gerir tillögu um skiptingu aflaheimilda í karfa

Stjórn LÍÚ hefur lagt til við sjávarútvegsráðherra að hann beiti sér fyrir því að lögum um úthlutun aflaheimilda í karfa verði breytt, þar sem í ljós hefur komið að djúpkarfi sem veiddur hefur verið sem úthafskarfi utan úthafskarfalínu undanfarin ár, er sami stofn og sá djúpkarfi sem veiddur hefur verið í djúpköntunum innan lögsögu.

26. Mars 2004 | ÚTVEGURINN

Styrkur til náms í fiskifræði og skyldum greinum

Landssamband íslenskra útvegsmanna auglýsir styrk til framhaldsnáms í fiskifræði, sjávarvistfræði eða sjávarlíffræði.   

18. Mars 2004 | ÚTVEGURINN

Gaf Velferðarsjóði barna 10 milljónir króna

Formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna færði Velferðarsjóði barna 10 milljónir króna að gjöf í gær fyrir hönd íslensks sjávarútvegs. Peningarnir verða nýttir til kaupa á tækjum og búnaði fyrir Rjóður, nýtt hjúkrunarheimili fyrir langveik börn.

17. Mars 2004 | ÚTVEGURINN

Hamingjuóskir vegna björgunar Baldvins Þorsteinssonar

Stjórn LÍÚ, sem kom saman til fundar í dag, fagnar giftursamlegri björgun fjölveiðiskipsins Baldvins Þorsteinssonar EA 10 af strandstað í Skarðsfjöru sl. nótt. Jafnframt óskar stjórnin eigendum skipsins, áhöfn þess, Landhelgisgæslunni og öðrum björgunaraðilum innilega til hamingju með það afrek sem unnið var með björgun skipsins.

4. Mars 2004 | ÚTVEGURINN

Stofnstærð langreyðar og hrefnu hin sama og við upphaf hvalveiða

Stofnar langreyðar og hrefnu við Ísland hafa náð þeirri stærð sem þeir voru í áður en veiðar á þessum tegundum hófust hér við land. Þetta er álit vísindanefndar NAMMCO, en fundi nefndarinnar lauk í Færeyjum í dag.

4. Mars 2004 | ÚTVEGURINN

Hafró vill banna rækjuveiðar í Ísafjarðardjúpi: Áfall fyrir útgerðarmenn og sjómenn við Djúp, segir Einar Valur Kristjánsson

Niðurstaða könnunar Hafrannsóknastofnunarinnar á innfjarðarrækju á Vestfjörðum og við Norðurland leiðir í ljós slæmt ástand stofnsins. Leggur stofnunin til að rækjuveiðar verði bannaðar í Ísafjarðardjúpi sem er einsdæmi. Þetta er áfall fyrir okkur, útgerðarmenn og sjómenn hér við Djúp, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf.

Jafnframt leggur stofnunin til að rækjuveiðar verði áfram bannaðar í Húnaflóa, í Skagafirði, í Skjálfanda og í Öxarfirði. Ef farið verður að tillögu stofnunarinnar verða rækjuveiðar aðeins heimilaðar í Arnarfirði í vetur.

3. Mars 2004 | ÚTVEGURINN

Hrygningarstopp hefst í apríl

Í reglugerð sjávarútvegsráðuneytisins um friðun hrygningarþorsks og skarkola á vetrarvertíðinni, sem gefin var út í fyrra kemur fram að veiðibannið sem reglugerðin kveður á um nái til níu svæða fyrir suðurlandi, suðausturlandi, suðvesturlandi, á Breiðafirði, í Ísafjarðardjúpi, fyrir norðvesturlandi og við Grímsey.

23. Febrúar 2004 | ÚTVEGURINN

Auka þarf loðnurannsóknir og gera þær markvissari

Nauðsynlegt er að auka rannsóknir á loðnustofninum og gera þær um leið markvissari, að mati Landssambands íslenskra útvegsmanna. Samtökin hafa lagt til að haldin verði ráðstefna sem hafi það að markmiði að upplýsa um það hvernig staðið er að mælingum á loðnustofninum og jafnframt leitað eftir því hvaða leiðir séu færar til að bæta aðferðir við loðnurannsóknir og auka þekkingu.

20. Febrúar 2004 | ÚTVEGURINN

Óaðgengilegar kröfur Norðmanna í norsk-íslensku síldinni

Litlar líkur eru á að samningar náist um skiptingu norsk-íslenska síldarstofnsins. Árangurslaus fundur var haldinn í Kaupmannahöfn dagana 16. og 17. nóvember sl.

19. Febrúar 2004 | ÚTVEGURINN

Hafró leggur til 240 þúsund tonna aukningu loðnukvótans

Sjávarútvegsráðherra hefur fallist á tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar um aukningu loðnukvótans úr 635 þúsund tonnum í 875 þúsund tonn. Stofnunin lagði til að kvótinn yrði aukinn eftir nýjar stofnstærðarmælingar.

18. Febrúar 2004 | ÚTVEGURINN

FAO vinnur að leiðbeinandi reglum um umhverfismerki á sjávarafurðir

Næsta haust verður haldinn fundur aðildarríkja Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) um umhverfismarkingar á sjávarafurðum. Þetta var samþykkt á  fundi undirnefndar fiskveiðinefndar stofnunarinnar nýlega.  Frá þessu er sagt á vefsíðu sjávarútvegsráðuneytisins.

17. Febrúar 2004 | ÚTVEGURINN

Hvalaskoðun á horriminni

Starfsemi helstu hvalaskoðunarfyrirækjanna í landinu gengur illa og tap er á greininni í heild. Kristján Loftsson framkvæmdastjóri Hvals hf. greindi frá þessu á fundi í Háskólanum á Akureyri.

 

17. Febrúar 2004 | ÚTVEGURINN

Sjómenn styðja aðferð við verðmyndun á þorski, ýsu og ufsa

Núverandi verðákvörðun á þorski, ýsu og harfa nýtur stuðnings mikils meirihluta sjómanna. Þetta kemur fram í könnun sem Gallup gerði fyrir Verðlagsstofu skiptaverðs.

16. Febrúar 2004 | ÚTVEGURINN

Mikil umframveiði sóknardagabátanna

Sóknardagabátarnir veiða sem fyrr langt umfram það sem þeim er ætlað og nam aflinn síðasta fiskveiðiár sexföldum viðmiðunarafla þessara báta.

13. Febrúar 2004 | ÚTVEGURINN

Málstofa Hafrannsóknarstofnunar

Útvegsmenn urðu þess áskynja fyrir skemmstu að Hafrannsóknastofnunin hefði tekið upp það nýmæli að gangast fyrir málstofu um margvísleg málefni sem varða hafrannsóknir o.fl. 

4. Febrúar 2004 | ÚTVEGURINN

Loðnukvótinn aukinn

Loðnukvótinn á þessari vertíð hefur verði aukinn úr 555 þúsund lestum í 635 þúsund lestir, að því er fram kemur í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu í dag.

29. Janúar 2004 | ÚTVEGURINN

Aflaverðmæti fyrstu 10 mánuði ársins 2003 var 57,1 milljarður króna

Aflaverðmæti íslenskra skipa fyrstu 10 mánuði síðasta árs nam 57,1 milljarði króna,  sem er 9,5 milljörðum króna minna en á sama tímabili árið 2002, en þá nam verðmæti aflans 66,7 milljörðum króna. Hér er um að ræða afla af öllum miðum. Samdráttur aflaverðmætis á milli áranna nemur 14,3%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofu Íslands. Megin ástæður þess að aflaverðmætið minnkar á milli ára má rekja til verðlækkana á erlendum mörkuðum, samhliða hækkandi gengi krónunnar.

21. Janúar 2004 | ÚTVEGURINN

Loðnan veiðist norðaustur úr Langanesi

Loðna er farin að veiðast á svæðinu norðaustur úr Langanesi, en þar fundu loðnuskip mikið af loðnu sl. föstudag og laugardag. Samkvæmt mælingum hafrannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar RE í gær virðist vera um hálf milljón tonna af loðnu á svæðinu. Búast má við að meira sé af loðnu á miðunum, þar sem eftir er að mæla víðar.

20. Janúar 2004 | ÚTVEGURINN

Loðnuveiðibanni aflétt

Sjávarútvegsráðuneytið hefur aflétt banni við loðnuveiðum að tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar. Fyrr í dag sendi stofnunin frá sér tilkynningu um þá tillögu sína og varð hún til þess að ráðuneytið heimilaði loðnuveiðar á ný.

16. Janúar 2004 | ÚTVEGURINN

Fiskiðjan Skagfirðingur kaupir Skagstrending

Fiskiðjan Skagfirðingur hf. hefur keypt Skagstrending hf. af Eimskipafélagi Íslands hf., en gengið var frá samningum vegna kaupanna í gærkveldi. Kaupverð fyrirtækisins er 2,7 milljarðar króna, að því er fram kemur á vef Kauphallar Íslands.

14. Janúar 2004 | ÚTVEGURINN

Eimskip selur Harald Böðvarsson og Útgerðarfélag Akureyringa

Eimskipafélagið hefur gengið frá samningum um sölu Haraldar Böðvarssonar hf. og Útgerðarfélags Akureyringa hf.  Samningarnir hafa þegar verið samþykktir í stjórn Eimskipafélagsins. Það er Grandi hf. sem kaupir Harald Böðvarsson, en kaupendur ÚA eru feðgarnir Kristján Guðmundsson, Hjálmar Kristjánsson og Guðmundur Kristjánsson. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Kauphallar Íslands.

14. Janúar 2004 | ÚTVEGURINN

Loðnuveiðibann til 29. janúar nk.

Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið að banna allar loðnuveiðar í hálfan mánuð, eða til 29. janúar nk. Þetta er gert að tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar, en á meðan á banninu stendur mun stofnunin mæla loðnustofninn á ný. Hafi stofnunin lokið endurmati sínu á stærð stofnsins fyrir 29. janúar, mun ákvörðun ráðuneytisins um veiðibann verða endurskoðuð. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem sjávarútvegsráðuneytið sendi frá sér í dag.

13. Janúar 2004 | ÚTVEGURINN

Reglugerð um línuívilnun

Þann 12. janúar gaf Sjávarútvegsráðuneytið út reglugerð um línuívilnun og kemur hún til framkvæmda 1. febrúar nk.

10. Janúar 2004 | ÚTVEGURINN

Úthafsrækjukvótinn minnkar úr 30 þúsund tonnum í 20 þúsund tonn samkvæmt tillögu Hafró

Hafrannsóknastofnunin leggur til að ekki verði veitt meira en 20 þúsund tonn af úthafsrækju á yfirstandandi fiskveiðiári, en heildarkvóti síðasta fiskveiðiárs var 30 þúsund tonn. Á síðasta ári veiddust þó ekki nema rúm 23 þúsund tonn og vantaði því nokkuð upp á að kvótinn næðist.

9. Janúar 2004 | ÚTVEGURINN

Metár hjá Björgúlfi EA

Ísfiskskipið Björgúlfur EA 312 veiddi alls 5.000 tonn á árinu 2003 og nam aflaverðmætið rúmum 526 milljónum króna (FOB-verðmæti). Þetta er mesti afli sem skipið hefur komið með að landi á einu ári og er hugsanlegt að hér sé um að ræða mesta aflaverðmæti sem íslenskur ísfisktogari hefur skapað á einu og sama árinu, að því er fram kemur á fréttavef Samherja hf.

7. Janúar 2004 | ÚTVEGURINN

Aflaverðmæti Vilhelms Þorsteinssonar EA 1.135 milljónir króna

Fjölveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson EA-11 veiddi alls tæp 54.000 tonn á árinu 2003 og nam framleiðsluverðmæti afurðanna 1.135 milljónum króna (CIF-verðmæti). Afli skipsins var aðallega síld, loðna, kolmunni og úthafskarfi. Skipið veiddi alls 23.000 tonn af síld, 22.000 tonn af loðnu, 8.000 tonn af kolmunna og um 1.400 tonn af úthafskarfa. Er hér um meiri verðmætasköpun í síldveiðum að ræða en hjá öðrum skipum íslenska síldveiðiflotans, að því er segir í frétt á heimasíðu Samherja.


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta