Fréttir
27. Nóvember 2003 | ÚTVEGURINN
Hagur fiskveiða og fiskvinnslu 2002
24. Nóvember 2003 | ÚTVEGURINN
Vel heppnuð ráðstefna Útvegsmannafélags Norðurlands
Yfir 170 manns sátu ráðstefnu Útvegsmannafélags Norðurlands sl. föstudag, en ráðstefnan bar yfirskriftina "Sjávarútvegur á Norðurlandi, staða, ógnanir og tækifæri". Á ráðstefnunni fluttu forystumenn í sjávarútvegi á Norðurlandi erindi, en einnig fluttu ávörp fulltrúar sveitarstjórna og verkalýðshreyfingar. Í lok ráðstefnunnar fóru fram pallborðsumræður og svöruðu þátttakendur spurningum ráðstefnugesta.
18. Nóvember 2003 | ÚTVEGURINN
Ekkert samkomulag á ársfundi NEAFC
Ekki náðist samkomulag um veiðar á kolmunna og norsk-íslenskri síld á ársfundi Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar, NEAFC, en fundinum lauk sl. föstudag. Tillögur Íslands á fundinum um breytingar á veiðum á úthafskarfa voru ekki samþykktar, en þær voru í samræmi við ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins, ICES. Sjávarútvegsráðuneytið sendi frá sér meðfylgjandi fréttatilkynningu eftir fundinn.
10. Nóvember 2003 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegur á Norðurlandi- staða, ógnir og tækifæri
5. Nóvember 2003 | ÚTVEGURINN
Viðmiðunarverð þorsks hækkar um 5% en verð á karfa og ýsu lækkar um 10%
Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna komst að samkomulagi í dag um að frá og með 12. nóvember næstkomandi hækki viðmiðunarverð á þorski um 5%, en viðmiðunarverð á karfa og ýsu lækki um 10%.
2. Nóvember 2003 | ÚTVEGURINN
Ræða Kristjáns Ragnarssonar á aðalfundi LÍÚ 2003
Sá ágreiningur og deilur sem sífellt er viðhaldið af stjórnarandstöðunni hafa valdið því að fjöldi einstaklinga í útgerð hefur gefist upp og selt veiðirétt sinn. Aðgerðir sem stjórnvöld hafa gripið til með byggðakvótum; undanþágu frá raunverulegri stjórnun fiskveiða -þar sem smábátum hefur leyfst að margfalda afla sem þeim er ætlaður; kvótum til áframeldis og nú ; hugmyndum um línuívilnun, hafa valdið óvissu um framtíðina og orðið til þess að menn hafa kosið að yfirgefa atvinnugreinina. Þeir sem hæst tala um óæskilega samþjöppun veiðiheimilda á færri hendur hafa öðrum fremur stuðlað að þessari hröðu þróun, sagði Kristján Ragnarsson, fráfarandi formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna m.a. í ræðu sinni á aðalfundi LÍÚ.
Ræða Kristjáns er birt í heild hér.













