Fréttir
23. Janúar 2003 | ÚTVEGURINN
LÍÚ sýknað af kröfu SSÍ í Héraðsdómi Reykjavíkur
LÍÚ var í dag, 23. janúar 2003 sýknað í Héraðsdómi
Reykjavíkur af kröfu Sjómannasambands Íslands af því að félagsmenn
þess væru óbundnir af 2. og 3. grein úrskurðar gerðardóms skv. 2.
gr. laga nr. 34/2001. Umrædd ákvæði varða áhrif á breytingu á
fjölda í áhöfn og skiptakjör.
23. Janúar 2003 | ÚTVEGURINN
Kröfur ESB um um aukið fjárframlag óaðgengilegar
Stjórn LÍÚ telur kröfur ESB um stórhækkað framlag Íslendinga til
þróunarsjóðs þess vegna stækkunar sambandsins óaðgengilegar.
Stjórnin telur þá fjárhæð sem krafist er í engu samræmi við
ávinning Íslendinga af tollfrelsinu í dag.
21. Janúar 2003 | ÚTVEGURINN
90% norskra útvegsmanna eða allir sem afsöðu tóku telja aðild að ESB sé ekki á dagskrá án sérsamnings um fiskveiðar.
Það hefur minna farið fyrir því í þessari umfjöllun að í sömu
könnun töldu 90% norskra útvegsmanna eða allir sem
afstöðu tóku að aðild væri ekki á dagskrá ef ekki fengist
sérstakt samkomulag um fiskveiðar Norðmanna.
6. Janúar 2003 | ÚTVEGURINN
Viðhald björgunarbúnaðar og þjálfunarhandbók
Í reglugerð nr. 26/2000 um öryggi fiskiskipa sem eru 24 metrar að
lengd og lengri er gerða krafa (sbr. 16. reglu (2) a) um að í
sérhverju skipi skuli vera fyrirmæli, sem samþykkt eru af
stjórnvöldum, um viðhald björgunarbúnaðar.
6. Janúar 2003 | ÚTVEGURINN
Umhverfisráðuneytið setur reglugerð til verndar ósonlaginu
Umhverfisráðuneytið hefur sett nýja reglugerð um efni sem eyða
ósonlaginu (rgj. nr. 586/2002). Markmið reglugerðarinnar er að
vernda ósonlagið í heiðhvolfinu með því draga með reglubundnum
hætti úr notkun tiltekinna efna sem innihalda ósoneyðandi efni.
3. Janúar 2003 | ÚTVEGURINN
Vátryggingafélag sýknað af kröfu bóta vegna smábáts sem sökk af ókunnri ástæðu
Ágreiningur málsaðila átti rætur að rekja til þess að fiskibátur
sökk við Snæfellsnes. Einn skipverji var um borð og var honum
bjargað yfir í annan fiskibát. Skýrði skipverjinn svo frá að bráður
leki hafi komið að bátnum. Í kjölfarið krafði útgerð bátsins
tryggingafélagið um greiðslu vátryggingarbóta með stoð í samningi
þeirra um húftryggingu bátsins en tryggingafélagið neitaði
greiðsluskyldu.













