Fréttir
15. Desember 2003 | ÚTVEGURINN
Afkoma í sjávarútvegi fyrir níu mánuði ársins 2003
8. Desember 2003 | ÚTVEGURINN
Samtök sjómanna og útvegsmanna mótmæla frumvarpi um línuívilnun
3. Desember 2003 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegurinn í tölum
27. Nóvember 2003 | ÚTVEGURINN
Hagur fiskveiða og fiskvinnslu 2002
24. Nóvember 2003 | ÚTVEGURINN
Vel heppnuð ráðstefna Útvegsmannafélags Norðurlands
Yfir 170 manns sátu ráðstefnu Útvegsmannafélags Norðurlands sl. föstudag, en ráðstefnan bar yfirskriftina "Sjávarútvegur á Norðurlandi, staða, ógnanir og tækifæri". Á ráðstefnunni fluttu forystumenn í sjávarútvegi á Norðurlandi erindi, en einnig fluttu ávörp fulltrúar sveitarstjórna og verkalýðshreyfingar. Í lok ráðstefnunnar fóru fram pallborðsumræður og svöruðu þátttakendur spurningum ráðstefnugesta.
18. Nóvember 2003 | ÚTVEGURINN
Ekkert samkomulag á ársfundi NEAFC
Ekki náðist samkomulag um veiðar á kolmunna og norsk-íslenskri síld á ársfundi Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar, NEAFC, en fundinum lauk sl. föstudag. Tillögur Íslands á fundinum um breytingar á veiðum á úthafskarfa voru ekki samþykktar, en þær voru í samræmi við ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins, ICES. Sjávarútvegsráðuneytið sendi frá sér meðfylgjandi fréttatilkynningu eftir fundinn.
10. Nóvember 2003 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegur á Norðurlandi- staða, ógnir og tækifæri
5. Nóvember 2003 | ÚTVEGURINN
Viðmiðunarverð þorsks hækkar um 5% en verð á karfa og ýsu lækkar um 10%
Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna komst að samkomulagi í dag um að frá og með 12. nóvember næstkomandi hækki viðmiðunarverð á þorski um 5%, en viðmiðunarverð á karfa og ýsu lækki um 10%.
2. Nóvember 2003 | ÚTVEGURINN
Ræða Kristjáns Ragnarssonar á aðalfundi LÍÚ 2003
Sá ágreiningur og deilur sem sífellt er viðhaldið af stjórnarandstöðunni hafa valdið því að fjöldi einstaklinga í útgerð hefur gefist upp og selt veiðirétt sinn. Aðgerðir sem stjórnvöld hafa gripið til með byggðakvótum; undanþágu frá raunverulegri stjórnun fiskveiða -þar sem smábátum hefur leyfst að margfalda afla sem þeim er ætlaður; kvótum til áframeldis og nú ; hugmyndum um línuívilnun, hafa valdið óvissu um framtíðina og orðið til þess að menn hafa kosið að yfirgefa atvinnugreinina. Þeir sem hæst tala um óæskilega samþjöppun veiðiheimilda á færri hendur hafa öðrum fremur stuðlað að þessari hröðu þróun, sagði Kristján Ragnarsson, fráfarandi formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna m.a. í ræðu sinni á aðalfundi LÍÚ.
Ræða Kristjáns er birt í heild hér.
31. Október 2003 | ÚTVEGURINN
Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar á aðalfundi LÍÚ sem haldinn var þann 30. og 31. október 2003.
31. Október 2003 | ÚTVEGURINN
Nýr formaður LÍÚ
Björgólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf. var kjörinn formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna á aðalfundi samtakanna sem lauk í dag.
24. Október 2003 | ÚTVEGURINN
Aðalfundur LÍÚ 2003
Verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík, fimmtudaginn 30. október og föstudaginn 31. október nk. Fundurinn hefst kl. 14:00 þann 30. október.
10. Október 2003 | ÚTVEGURINN
LÍÚ sýknað af kröfum Sjómannasambands Íslands
Þann 9.10.2003 var kveðinn upp í Hæstarétti Íslands dómur í máli sem Sjómannasamband Íslands höfðaði á hendur LÍÚ. Sjómannasamband Íslands gerði kröfu um hnekkt yrði ákvæði um heimild útgerða og áhafna til að gera samning um að þegar tæknibúnaður er settur um borð í fiskiskip eða hagræðing á sér stað sem leiðir til fækkunar í áhöfn, skiptist ávinningur af því til helminga á milli áhafnar og útgerðar. LÍÚ var sýknað af kröfum Sjómannasambands Íslands.
9. Október 2003 | ÚTVEGURINN
Árangurslaus fundur um norsk-íslensku síldina
9. Október 2003 | ÚTVEGURINN
Málþing Heimsýnar um kosti og galla upptöku evru sem gjaldmiðls
22. September 2003 | ÚTVEGURINN
Óskað eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna LÍÚ 2003
Landssamband íslenskra útvegsmanna óskar eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna LÍÚ árið 2003. Öll starfandi fyrirtæki í sjávarútvegi sem eiga skip og eru félagsmenn innan LÍÚ koma til greina sem handhafar verðlaunanna.
22. September 2003 | ÚTVEGURINN
Hvers á starfsfólk Hraðfrystihússins-Gunnvarar að gjalda?
Svonefnd línuívilnun hefur verið mjög til umræðu í fjölmiðlum að undanförnu og hafa talsmenn hennar, þ.e. þeir sem vilja að fyrirtækjum í sjávarútvegi verði mismunað með slíkum hætti, m.a. haldið því fram að sú aðgerð sé til þess fallin að styrkja byggð á Vestfjörðum. Ég fullyrði slík mismunun mun ekki hafa þau áhrif, heldur gagnstæð.
17. September 2003 | ÚTVEGURINN
Yfirlit um gjaldskrár hafna.
Á þessari vefslóð - Gjaldskrár hafna - má skoða yfirlit um gjaldskrár einstakra hafna eftir breytingar 1. júlí síðastliðinn. Útgerðir eru hvattar til þess óska eftir langtímasamningi við hafnirnar og knýja á um lægri gjaldskrá fyrir notkun á höfnum.
8. September 2003 | ÚTVEGURINN
Uppgjör sjávarútvegsfyrirtækja fyrstu 6 mánuði ársins 2003.
Niðurstaða úr uppgjörum þeirra 12 sjávarútvegsfyrirtækja, sem eru skráð á aðal- og vaxtarlista Kauphallar Íslands fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2003 samanborðið við sama tímabil á árinu 2002.
4. September 2003 | ÚTVEGURINN
Verðlækkun á karfa, ýsu og ufsa.
Þann 3. september var kveðinn upp fiskverðsúrskurður í máli Haraldar Böðvarssonar hf. gegn áhöfnum Sturlaugs H. Böðvarssonar AK-10 og Haraldar Böðvarssonar AK-12.
4. September 2003 | ÚTVEGURINN
Ekkert lát er á umframveiði sóknardagabáta
Umframveiði sóknardagabáta var gríðarleg á síðasta fiskveiðiári, eða ríflega sexfalt meiri en viðmiðun þeirra gerði ráð fyrir, samkvæmt bráðabirgðatölum frá Fiskistofu.
27. Ágúst 2003 | ÚTVEGURINN
Úthafskarfinn fundinn - mokveiði á NAFO-svæðinu
Mokveiði hefur verið á úthafskarfa á NAFO-svæðinu undanfarið og virðist karfinn vera á stóru svæði. Fjölmörg skip eru á veiðum á svæðinu.
20. Ágúst 2003 | ÚTVEGURINN
Vísindaveiðar Íslendinga á hrefnu.
Vegna fyrirspurna sem borist hafa varðandi vísindaveiðar Íslendinga á hrefnu hefur Landssamband íslenskra útvegsmanna tekið saman texta á ensku sem veitir upplýsingar um vísindaveiðarnar.
15. Ágúst 2003 | ÚTVEGURINN
Ályktun stjórna útvegsmannafélaga vegna hugmynda um línuívilnun
Stjórnir Útvegsmannafélags Austurlands, Útvegsmannafélags Akraness, Útvegsmannafélags Hafnarfjarðar, Útvegsmannafélags Hornafjarðar, Útvegsmannafélags Norðurlands, Útvegsmannafélags Reykjavíkur, Útvegsmannafélags Snæfellsness, Útvegsmannafélags Suðurnesja, Útvegsmannafélags Þorlákshafnar og Útvegsbændafélags Vestmannaeyja hafa sent frá sér ályktun þar sem öllum áformum um að tekin verði upp sérstök ívilnun í kvóta til báta sem róa með línu er harðlega mótmælt.
6. Ágúst 2003 | ÚTVEGURINN
Vísindaveiðar á hrefnu hefjast síðar í þessum mánuði
Vísindaveiðar á hrefnu munu hefjast í þessum mánuði, en þetta er í fyrsta sinn frá árinu 1985 sem hrefna er veidd við Ísland. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Árni M. Mathiesen sjávarútvegssráðherra hélt í morgun.
18. Júlí 2003 | ÚTVEGURINN
Íslendingar taki stjórn á veiðum úr djúpkarfastofninum eigin hendur
Stofnstærð úthafskarfa mældist aðeins tæpar 100 þúsund lestir í sameiginlegum rannsóknaleiðangri Íslendinga, Þjóðverja og Rússa sem lauk nýlega. Er það mikið áhyggjuefni ef rétt er, því núverandi mat á stærð stofnins er aðeins 5% af áætlaðri stofnstærð úthafskarfa árið 1994. Við mælinguna ofan 500 metra dýpis var beitt tveimur aðferðum, bergmálsaðferð og trollaðferð, og voru niðurstöður beggja mælinganna samhljóða.
12. Júlí 2003 | ÚTVEGURINN
Sumarlokun skrifstofu LÍÚ
Skrifstofa LÍÚ verður lokuð vegna sumarleyfa, frá og með mánudeginum 21. júlí til þriðjudagsins 5. ágúst.
Hægt er að ná í starfsmenn skrifstofunnar í GSM númerum þeirra, þau er að finna hér eða í símaskrá á bls. 478.
11. Júlí 2003 | ÚTVEGURINN
Samstarfssamningur um starfsmenntun fyrir sjómenn
Þann 9. júlí sl. undirrituðu Sjómennt - samstarfsvettvangur Landssambands íslenskra útvegsmanna og Sjómannasambands Íslands og Menntafélagið ehf. samning um fræðslu og starfsmenntun sjómanna.
9. Júlí 2003 | ÚTVEGURINN
Samningur um stjórn veiða úr loðnustofninum
Í gær, þriðjudaginn 8. júlí, var gengið frá samningi um stjórn veiða úr loðnustofninum milli Íslands, Grænlands og Noregs, en Ísland sagði á haustdögum upp samningi landanna frá 1998.
3. Júlí 2003 | ÚTVEGURINN
Leyfilegur heildarafli fiskveiðiárið 2003/2004
Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla á fiskveiðiárinu 2003/2004 og er hann sem hér segir:
26. Júní 2003 | ÚTVEGURINN
Samkomulag við Norðmenn um norsk-íslensku síldina
11. Júní 2003 | ÚTVEGURINN
Afkoma í sjávarútvegi fyrstu þrjá mánuði ársins
Mun verri en í fyrra vegna hás gengis krónunnar og lækkandi afurðaverðs.
4. Júní 2003 | ÚTVEGURINN
Rangfærslur um tryggingamál sjómanna
28. Maí 2003 | ÚTVEGURINN
6% lækkun á karfa, 15% lækkun á ýsu og óbreytt verð á þorski
26. Maí 2003 | ÚTVEGURINN
TAFT 2003 - alþjóðleg ráðstefna um nýtingu sjávarfangs
22. Maí 2003 | ÚTVEGURINN
Stjórn LÍÚ: Óskaði eftir því við Björgólf Jóhannsson að hann gefi kost á sér til formanns
Á aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna á síðasta ári lýsti Kristján Ragnarsson formaður samtakanna því yfir að hann myndi ekki gefa kosta á sér til endurkjörs á aðalfundi 2003.
8. Maí 2003 | ÚTVEGURINN
Umsögn Sigurðar Líndal um ályktun miðstjórnar Alþýðusambands Íslands
8. Maí 2003 | ÚTVEGURINN
Sóknarstýring - afturhvarf til óhagkvæmrar fortíðar. Grein Kristjáns Þórarinssonar í Mbl. 6. maí 2003
2. Maí 2003 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð um stjórn veiða íslenskra skipa úr norsk-íslenska síldarstofninum árið 2003.
30. Apríl 2003 | ÚTVEGURINN
Evran eða krónan? Fundur á Grand Hótel Reykjavík
23. Apríl 2003 | ÚTVEGURINN
Samherji hf. hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2003
17. Apríl 2003 | ÚTVEGURINN
Hægt að auka þorskkvótann um 30 þúsund tonn
8. Apríl 2003 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna lækkar verð á ýsu um 10%.
1. Apríl 2003 | ÚTVEGURINN
Styrkur til náms í fiskifræði og skyldum greinum
1. Apríl 2003 | ÚTVEGURINN
AVS rannsóknasjóður - Styrkir til fiskeldis
27. Mars 2003 | ÚTVEGURINN
Breytt reglugerð um möskvastærð í þorskanetum
Frá 1. maí nk. verður síðan heimilt að nota þorskanet með 9 tommu möskva til 1. maí 2004, en samkvæmt eldri reglugerð var miðað við 1. janúar 2004. Þá verður hámarksstærð möskva 8 tommur og verður heimilt að nota þann möskva til 1. janúar árið 2005, þegar hámarksstærðin verður 7 ½ tomma.













