Fréttir
30. September 2002 | ÚTVEGURINN
Aðalfundur LÍÚ
Aðalfundur Landssambands íslenskra útvegsmanna verður haldinn á
Grand Hótel í Reykjavík dagana 31. október og 1. nóvember nk.
30. September 2002 | ÚTVEGURINN
Umhverfisverðlaun LÍÚ fyrir árið 2002
LÍÚ býður félagsmönnum sínum að láta sérfræðinga fara yfir stöðu
fyrirtækja þeirra í umhverfismálum og gefa þeim einkunn. Einkunnin
er trúnaðarmál á milli LÍÚ og viðkomandi aðila, en sá sem hlýtur
hæstu einkunn í stigagjöfinni vinnur til næstu umhverfisverðlauna
LÍÚ. Verðlaunin verða veitt á aðalfundi LÍÚ sem haldinn verður
dagana 31. október og 1. nóvember nk.
26. September 2002 | ÚTVEGURINN
Öryggisvika sjómanna hefst í dag
Öryggisvika sjómanna hefst í dag, fimmtudaginn 26. september. Af
því tilefni mun Slysavarnaskóli sjómanna verða með fræðslu um borð
í skipum föstudaginn 27. september og mánudaginn 30. september.













