Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

18. Desember 2002 | ÚTVEGURINN

Hækkun á tryggingagjaldi um 0,5% um áramót

Almennt tryggingagjald hækkar um 0,5% þann 1. janúar 2003. Gjaldið sundurliðast með eftirfarandi hætti:  Verður samtals af launum sjómanna 6,38%

5. Desember 2002 | ÚTVEGURINN

30 ár liðin frá því að Vestfirðingar eignuðust sinn fyrsta skuttogara

Þann 5. desember 1972 kom í fyrsta sinn til hafnar á Ísafirði skuttogarinn Júlíus Geirmundsson. Í dag eru því 30 ár frá skuttogaravæðingu á Vestfjörðum.

5. Desember 2002 | ÚTVEGURINN

Verksamningur um rekstur og starfsemi Stýrimannaskólans í Reykjavík og Vélskóla Íslands

Menntafélagið ehf. og menntamálaráðuneytið undirrituðu í dag verksamning um rekstur og starfsemi Stýrimannaskólans í Reykjavík og Vélskóla Íslands. Samningurinn tekur gildi 1. ágúst 2003 og er liður í þeirri viðleitni stjórnvalda að tengja fræðslu á starfsmenntasviðum enn betur við atvinnulífið.

29. Nóvember 2002 | ÚTVEGURINN

Viðskipti með sjávarafla og aflamark

Ríkisskattsjóri hefur í bréfi til LÍÚ þann 25. nóvember sl. staðfest að verð á afla skuli miða vð almennt gangverð sams konar afla í viðskiptum ótengdra aðila. Þetta á við í þeim tilvikum þegar fiskvinnsla ræður yfir aflamarki sem flutt er af skipi hennar yfir á skip útgerðar og heildarendurgjald liggur ekki jafn ótvírætt fyrir í krónum. Þá reynir á svokallaða skattverðsreglu.  Sjá nánar bréf Ríkisskattstjóra með þessari frétt og eldra bréf frá 30. júní 2002.

25. Nóvember 2002 | ÚTVEGURINN

Skiptaverðmæti breytist 1. desember 2002

Skiptaprósentur hækka að nýju vegna lækkunar á olíu.

21. Nóvember 2002 | ÚTVEGURINN

Samgönguráðuneytið úrskurðaðar Útgerðarfélaginu Tjaldi ehf í vil varðandi umsókn þess um að breyta skráðu vélarafli.

Samgönguráðuneytið hefur úrskurðað í stjórnsýslukæru Útgerðarfélagsins Tjalds ehf. varðaði þá ákvörðun Siglingastofnunar Íslands að synja umsókn um að breyta skráðu vélarafli Tjalds SH 270.  Það er niðurstaða samgönguráðuneytisins að túlka beri 9. tl. 4. gr. laga nr. 115/1985 með þeim hætti sem segir í áður gengnum héraðsdómi um þetta sama mál, að skrá skuli afl aðalvéla skipa á íslenska skipaskrá samkvæmt þeirri stærð og afli sem þær sannanlega og raunverulega skila.

14. Nóvember 2002 | ÚTVEGURINN

Niðurstaða Félagsdóms varðandi framlag í séreignarsjóð sjómanna í aðildarfélögum SSÍ.

Útvegsmönnum ber skv. nýjum dómi Félagsdóms að greiða sjómönnum í aðildarfélögum SSÍ 1% framlag í séreignarsjóð án framlags af hálfu starfsmannsins. Framlag þetta er reiknað af kauptryggingu. Breytingin nær til þeirra sjómanna sem ekki nýta sér heimild til viðbótarlífeyrissparnaðar.

3. Nóvember 2002 | ÚTVEGURINN

Ályktanir aðalfundar LÍÚ 2002

Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar á aðalfundi LÍÚ sem lauk föstudaginn 1. nóvember.

1. Nóvember 2002 | ÚTVEGURINN

Ræða formanns LÍÚ á aðalfundi

Ég tel að auka þurfi nú þegar þorskveiðiheimildir aflamarksskipa um 11.000 lestir. Ennfremur tel ég að auka þurfi aflaheimildir ufsa, skarkola og sandkola, sagði Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ í ræðu sinni á aðalfundi samtakanna í gær.

24. Október 2002 | ÚTVEGURINN

Dagskrá aðalfundar LÍÚ

63. aðalfundar LÍÚ verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík 31. október og 1.  nóvember 2002.

24. Október 2002 | ÚTVEGURINN

Vann mál vegna skorts á skriflegum ráðningarsamningi

Vélstjóri sem ráðinn var í maí 1998 í skiprúm á skipi sem útgerðarmaður leigði og gerði út tímabundið vann mál fyrir Hæstarétti Íslands vegna þess að ekki hafði verið gerður skriflegur ráðningasamningur. Útgerðarmanni er skylt samkvæmt 6. gr. sjómannalaga að gera ráðningarsamning við skipverja. Ósannað þótti að um tímabundna ráðingu hafi verið að ræða. Þá var ekki fallist á að vélstjórinn hafi fyrirgert kröfu sinni með tómlæti en tæplega 29 mánuðir liðu frá uppsögninni þangað til hann gerði kröfu um laun í uppsagnarfresti.

18. Október 2002 | ÚTVEGURINN

Ex-it skiljan fær löggildingu til áramóta

Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið að framlengja tímabundið löggildingu Ex-it smáfiskaskiljunnar (stundaglassins), samkvæmt reglugerð sem gefin var út 17. október sl. Hefur löggilding skiljunnar verið framlengd til næstu áramóta.

11. Október 2002 | ÚTVEGURINN

Dómur í Hæstarétti: Útgerð sýknuð af kröfu um greiðslu kauptryggingar sjómanns í jólafríi

Útgerð frá Höfn í Hornafirði var sýknuð í Hæstarétti Íslands af kröfu sjómanns, sem höfðaði mál á hendur útgerðinni  til að krefjast greiðslu á kauptryggingu í jólafríi, en hann var afskráður af skipinu.

30. September 2002 | ÚTVEGURINN

Aðalfundur LÍÚ

Aðalfundur Landssambands íslenskra útvegsmanna verður haldinn á Grand Hótel í Reykjavík dagana 31. október og 1. nóvember nk.

30. September 2002 | ÚTVEGURINN

Umhverfisverðlaun LÍÚ fyrir árið 2002

LÍÚ býður félagsmönnum sínum að láta sérfræðinga fara yfir stöðu fyrirtækja þeirra í umhverfismálum og gefa þeim einkunn. Einkunnin er trúnaðarmál á milli LÍÚ og viðkomandi aðila, en sá sem hlýtur hæstu einkunn í stigagjöfinni vinnur til næstu umhverfisverðlauna LÍÚ. Verðlaunin verða veitt á aðalfundi LÍÚ sem haldinn verður dagana 31. október og 1. nóvember nk.

26. September 2002 | ÚTVEGURINN

Öryggisvika sjómanna hefst í dag

Öryggisvika sjómanna hefst í dag, fimmtudaginn 26. september. Af því tilefni mun Slysavarnaskóli sjómanna verða með fræðslu um borð í skipum föstudaginn 27. september og mánudaginn 30. september.

28. Júní 2002 | ÚTVEGURINN

Kjaramál - Viðbótarfaramlag í lífeyrissjóð

Viðbótarframlag í séreignarsjóð án framlags af hálfu launamanns, sem samið var um milli ASÍ og SA þann 13. desember 2001 á ekki við sjómenn á fiskiskipum.

27. Júní 2002 | ÚTVEGURINN

Kjaramál - Skiptaverðmætishlutfall 2002

Skiptaverðmætishlutfall fyrir júlí mánuð er óbreytt frá því í júní.

20. Júní 2002 | ÚTVEGURINN

Flutningur - Skrifstofa LÍÚ flytur í Borgartún 35

Skrifstofa LÍÚ hefur flutt í nýtt húsnæði í Borgartúni 35, 105 Reykjavík. Nýtt símanúmer er 5910300 og faxnúmer er 5910301.

7. Júní 2002 | ÚTVEGURINN

Kjaramál - Samkomulag um starfsmenntamál sjómanna

Samtök atvinnulífsins og Landssamband ísl. útvegsmanna og Sjómannasambands Íslands hafa ásamt félagsmálaráðherra undirritað samkomulag um starfsmenntamál sjómanna. Verkefninu verða tryggðar 45 milljónir króna frá Atvinnuleysistryggingasjóði á þriggja ára samningstíma.

3. Júní 2002 | ÚTVEGURINN

Sjómannadagurinn - Ávarp Ólafs Marteinssonar frá Siglufirði

Ég vil nefna hér eitt sameiginlegt hagsmunamál okkar sem brýnt er að tekið sé á, en það er frekari þróun flotans með það að markmiði að gera mögulegt að efna til frekari vinnslu afurða sem og vinnslu nýrra afurða.

1. Júní 2002 | ÚTVEGURINN

Hafró - Ástand nytjastofna árið 2002

Þorskafli skv. aflareglu 179 þúsund lestir úr stækkandi þorskstofni. Lögð er til veruleg aukning ýsuafla. Blikur á lofti í hörpuskel - aukin afföll talin stafa af háum sjávarhita. Ástand skarkolastofns enn talið slakt.

29. Maí 2002 | ÚTVEGURINN

Tillögur framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um breytingar á sjávarútvegsstefnu sambandsins

Tillaga framkvæmdastjórnar ESB um breytingar á fiskveiðistefnu sambandsins er í sjö meginliðum. Lagt er til aukin vernd fiskistofna og að leyfilegur heildarafli í einstökum tegundum verði í samræmi við ýtrustu varfærnissjónarmið fiskifræðinga. Dregið verði úr veiðum á þorski í Norðursjó, en stofninn hefur minnkað um 60% síðastliðin 20 ár.

25. Apríl 2002 | ÚTVEGURINN

Kjaramál - Skiptaverðmætishlutfall 2002

Skiptaverðmætishlutfall fyrir maí breytist frá því í apríl.

19. Apríl 2002 | ÚTVEGURINN

Afstaða stjórnar Landssambands íslenskra útvegsmanna til aðildar Íslands að Evrópusambandinu

Það er útilokað að Íslendingar gangist undir hina sameiginlegu sjávarútvegsstefnu ESB og láti af hendi stjórn og yfirráð fiskimiðanna. Þegar af þeirri ástæðu kemur aðild að ESB ekki til álita.

19. Apríl 2002 | ÚTVEGURINN

Aðalfundur LÍÚ árið 2002

Aðalfundur LÍÚ, árið 2002, verður haldinn á Grand Hótel dagana 31.10.2002 og 01.11.2002.

16. Apríl 2002 | ÚTVEGURINN

60% alaskaufsakvótans veidd í Okhotskhafi

Þann 10. mars sl. höfðu 261.400 tonn af alaskaufsa verið veidd í Okhotskhafi, en það er 60% kvótans. Um 174.000 tonn voru því eftir af kvótanum þá og voru allar líkur á því að takast myndi að veiða það magn áður en veiðibann á alaskaufsa hefst í apríl.

10. Apríl 2002 | ÚTVEGURINN

Bandaríkin - Viðskipti með sjávarafurðir aukast

Árið 2001 fluttu Bandaríkjamenn inn alls 1,84 milljónir tonna af sjávarafurðum sem er 3,5 prósenta aukning frá árinu áður. Á sama tímabili nam heildarútflutningur sjávarafurða frá Bandaríkjunum alls 1,36 milljónum tonna sem er aukning um 260.000 tonn, eða 23,5%.

4. Apríl 2002 | ÚTVEGURINN

Hvalveiðar - Á heimleið með 440 hrefnur

Meðan japanska borgin Shimonoseki er í óða önn að undirbúa aðalfund Alþjóðahvalveiðinefndarinnar eru fimm hvalarannsóknaskip, sem hafa heimahöfn í borginni, á heimleið með 440 hrefnur sem veiddar voru við Suðurskautslandið.

27. Mars 2002 | ÚTVEGURINN

Sjávarútvegsráðuneytið - Humarveiðar

Ráðuneytið hefur í dag gefið út reglugerð um humarveiðar sem leysir af hólmi eldri reglugerð um sama efni. Reglugerðin tekur gildi 15. apríl 2002. Hér verður gerð grein fyrir helstu breytingum, sem í hinni nýju reglugerð felast.

25. Mars 2002 | ÚTVEGURINN

Styrkur til náms í fiskifræði og skyldum greinum

Landssamband íslenskra útvegsmanna auglýsir styrk til framhaldsnáms í fiskifræði, sjávarvistfræði eða sjávarlíffræði.

18. Mars 2002 | ÚTVEGURINN

Veiðiheimildir - Heildarkvóti kolmunna 282 þús. tonn árið 2002

Sjávarútvegsráðherra hefur gefið út reglugerð um úthlutun aflahlutdeildar og aflamarks í kolmunna. Samkvæmt reglugerð þessari er heildarkvóti í kolmunna á árinu 2002 ákveðinn 282 þús. lestir og er hverju skipi reiknuð aflahlutdeild miðað við aflareynslu þess á þremur bestu veiðiárum síðustu sex ára.

14. Mars 2002 | ÚTVEGURINN

Kvóti - Sjávarútvegsráðuneytið hefur í dag aukið loðnukvótann sem nemur 100 þús. tonnum

Sjávarútvegsráðuneytið hefur í dag aukið loðnukvótann sem nemur 100 þús. tonnum eða úr 996.202 lestum í 1.096.202 lestir. Ákvörðun þessi var tekin að tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar.

12. Mars 2002 | ÚTVEGURINN

Um friðun hrygningarþorsks og skarkola á vetrarvertíð 2002

Sjávarútvegsráðuneyið hefur gefið út reglugerð vegna hrygningar þorsks og skarkola. Til friðunar hrygningarþorsks eru allar veiðar bannaðar í 21 dag á svæði frá Stokksnesi vestur um að Skor.

26. Febrúar 2002 | ÚTVEGURINN

Fiskveiðistjórnun - Fréttatilkynning sjávarútvegsráðuneytisins um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða

Í nýju frumvarpi er gert ráð fyrir því að lagt verði á magn- og afkomutengt veiðgjald. Er gjaldið fundið út með því að draga helstu kostnaðarliði útgerðarinnar, olíu-, launa- og annan rekstrarkostnað ákveðins tímabils frá aflaverðmæti sama tímabils. Gerir frumvarpið ráð fyrir að 9,5% þeirrar fjárhæðar sem eftir stendur, reiknað í krónum á þorskígildiskílógrömm, verði lagt á þorskígildiskílógrömm komandi fiskveiðiárs. Lagt er til að veiðigjaldið verði tekið upp í áföngum á árunum 2004-2009.

12. Febrúar 2002 | ÚTVEGURINN

Bræðslufiskur - Verðþróun á fiskimjöli og lýsi

Verð á fiskimjöli og lýsi hefur farið hækkandi að nýju eftir verðfall í ársbyrjun 1999. Skv. Oil world er mjölið í janúar 2002 á um 61 þús.krónur tonnið og lýsið um 64 þúsund krónur tonnið. Sjáið nánar línurit um verðþróun í þessari frétt.

6. Febrúar 2002 | ÚTVEGURINN

Skattar - Neikvæð áhrif auðlindagjalds á skatttekjur ríkisins

Megin niðurstaða Hagfræðistofnunar er sú að neikvæð áhrif auðlindagjalds á eignir landsmanna og þá einkum á landsframleiðslu geta leitt til þess að tekjuaukning hins opinbera af álagningu auðlindagjalds verði engin eða jafnvel neikvæð. Hagfræðistofnun telur verulegar líkur á því að álagning auðlindagjalds muni lækka heildarskatttekjur hins opinbera þegar fram í sækir. Þessi lækkun gæti orðið innan tiltölulega fárra ára, sennilega 10 til 20 ára.

28. Janúar 2002 | ÚTVEGURINN

Fiskveiðistjórnun - Kvóti í sandkola aukinn um 1.000 tonn

Kvóti í sandkola hefur verið aukinn um 1.000 lestir eða úr 3.000 lestum í 4.000 lestir.

24. Janúar 2002 | ÚTVEGURINN

Fiskveiðistjórnun - Tillögur L.Í.Ú., F.F.S.Í., S.S.Í., og V.S.F.Í.

Fiskveiðistjórnun - Sameiginlegar tillögur L.Í.Ú., F.F.S.Í., S.S.Í., og V.S.F.Í. um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða

Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta