Fréttir
24. Janúar 2001 | ÚTVEGURINN
Kjaraviðræður sjómanna og útvegsmanna
Landssamband Íslenskra útvegsmanna svaraði í dag framkomnum
hugmyndum sjómannasamtakanna um lausn á kjaradeilu sjómanna og
útvegsmanna. Útvegsmenn fagna því að stéttarfélög sjómanna komi nú
fram sameiginlega í kjaraviðræðum við útvegsmenn. Það er mikilvægur
áfangi í viðræðum þessara aðila og mun væntanlega greiða mjög fyrir
því að samningar náist.













