Fréttir
24. Nóvember 2000 | ÚTVEGURINN
Kjaramál - Skiptaverðmætishlutfall 2000
Skiptaverðmætishlutfallið í desember er óbreytt frá nóvember
mánuði.
9. Nóvember 2000 | ÚTVEGURINN
Aðalfundur - Ræða formanns L.Í.Ú. á aðalfundi samtakanna 9. nóv. 2000
Þegar litið er til nýrrar aldar er ástæða til að vera bjartsýnn. Í
því sambandi skiptir meginmáli að okkur auðnist að nýta fiskistofna
á sjálfbæran hátt. Vitneskja okkar um lífríkið í hafinu er nú með
þeim hætti að það á að vera unnt að ná tilsettum markmiðum, þótt á
því kunni að vera nokkrar undantekningar. Sjávarútvegurinn verður
áfram mikilvægur, þótt margt bendi til þess að úr vægi hans dragi
og er það vel, ef unnt reynist að skjóta fleiri stoðum undir
íslenskt efnahagslíf og fleiri komi til ábyrgðar á velferð
þjóðarinnar.
3. Október 2000 | ÚTVEGURINN
Auðlindanefnd - Afstaða LÍÚ til skýrslu Auðlindanefndar
Afstaða LÍÚ til skýrslu Auðlindanefndar.
16. Júní 2000 | ÚTVEGURINN
Fiskveiðistjórnun - Leyfilegur heildarafli á fiskveiðiárinu 2000/2001
Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð um leyfilegan
heildarafla á fiskveiðiárinu 2000/2001.
24. Maí 2000 | ÚTVEGURINN
Kjaramál - Útvegsmenn vísa deilu til sáttasemjara
Samtök atvinnulífsins f.h. L.Í.Ú. hafa vísað kjaradeilu sjómanna og
útvegsmannna til sáttasemjara ríkisins til umfjöllunar og
verkstjórnar. Þess er óskað að gerð kjarasamninga verði flýtt svo
tryggja megi vinnufrið í sjávarútvegi, eins og í öðrum
atvinnugreinum.
18. Maí 2000 | ÚTVEGURINN
Hafrannsóknir - Nýtt hafrannsóknaskip til heimahafnar
Í ræðu formanns L.Í.Ú. við þetta tækifæri sagði hann að íslenskir
útvegsmenn hafa til margra ára sýnt skilning og lýst stuðningi við
störf Hafrannsóknastofnunar. Slíkur stuðningur er einstakur af
hálfu hagsmunaaðila þegar litið er til annarra þjóða. Þennan
stuðning undirstrikum við með því að greiða þann hluta þessa skips
sem kemur í hlut Þróunarsjóðs, en tekjur hans koma eingöngu frá
útgerðinni.
8. Maí 2000 | ÚTVEGURINN
Tryggingar - Þóknun fyrir björgun fiskiskipa yfir 100 brl.
Fjárhæðir í samkomulagi varðandi þóknanir fyrir björgun fiskiskipa,
100 rúmlestir og stærri, þegar ekki er um yfirvofandi hættu að
ræða.
8. Maí 2000 | ÚTVEGURINN
Tryggingar - Þóknun fyrir aðstoðir vegna skipa undir 100 brl.
Þegar skip yfir 100 brl. að stærð kemur fiskiskipi undir 100 brl.
til aðstoðar og hætta er ekki yfirvofandi.
26. Apríl 2000 | ÚTVEGURINN
Kjaramál - Ex works uppgjör á vinnsluskipum
Frá áramótum hefur verið nokkuð um það að afurðir vinnsluskipa hafi
verið seldar ex works, en í kjarasamningum segir ekki sérstaklega
hvernig skuli ákvarða skiptaverðmæti við sölu með þessum
flutningaskilmálum. Útgerðir verða því að finna rétt uppgjörsverð
við sjómenn með því að reikna út fob verð.
13. Apríl 2000 | ÚTVEGURINN
Kjaramál - Friður treystur á vinnumarkaði
Kjarasamningar þeir sem Samtök atvinnulífsins og
Verkamannasambandið hafa nú skrifað undir, renna enn styrkari
stoðum undir frið á almennum vinnumarkaði allt til ársloka 2003.
Með samningunum er undirstrikuð launastefna stöðugleika og aukins
kaupmáttar.
6. Apríl 2000 | ÚTVEGURINN
Hæstiréttur - Vatneyrardómurinn
"Að öllu þessu virtu er mat löggjafans reist á málefnalegum
forsendum. Eru ekki efni til þess, að því mati verði haggað af
dómstólum. Verður þannig að leggja til grundvallar að úthlutun
aflaheimilda eftir 7. gr. laga nr. 38/1990 fullnægi jafnræðisreglu
1. mgr. 65. gr. stjórnarskrárinnar og þeim sjónarmiðum um jafnræði,
sem gæta þarf við takmörkun atvinnufrelsis samkvæmt 1. mgr. 75. gr.
hennar. Ákvæðið er því stjórnskipulega gilt".
28. Mars 2000 | ÚTVEGURINN
Barentshaf - Rússneskar veiðiheimildir í þorski
Rússneski sölukvótinn í þorski í ár alls 1361 tonn. Verðið er 927
USD per. tonn.
27. Mars 2000 | ÚTVEGURINN
Fundur um kolmunnaveiðar
Samanlagðar kröfur þeirra þjóða, sem stunda veiðar á kolmunna
varðandi skiptingu á stofninum eru upp á 170%. Engin sátt er um
hlutfallslegan niðurskurð á þeirri tölu. Þannig má segja að
framtíðarhorfur kolmunnastofnsins séu allt annað en bjartar, ef
höfð er í huga sú veiðigeta sem þessar þjóðir búa yfir.
17. Mars 2000 | ÚTVEGURINN
Könnun - Rúmlega 80% kvótans hafa skipt um hendur
Niðurstöður leiða í ljós að einungis 19 prósent þeirra heimilda sem
úthlutað var í upphafi eru í höndum þeirra sem stunduðu útgerð á
viðmiðunarárunum sem úthlutunin byggðist á. Stærstur hluti, eða 81
prósent þeirra veiðiheimilda sem úthlutað var árið 1984, hefur því
skipt um hendur.
21. Janúar 2000 | ÚTVEGURINN
Útgerð sýknuð í félagsdómi
Útgerð sýknuð af 1.200.000 króna kröfu stéttarfélags fyrir meint
brot á kjarasamningi.













