Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Ábyrgar fiskveiðar

Sjávarútvegur er ein af meginstoðum íslensks hagkerfis og samofinn sögu þjóðarinnar. Ábyrgar fiskveiðar á Íslandsmiðum eru forsenda þess að íslenskur sjávarútvegur verði áfram öflugur þáttur í atvinnulífi Íslendinga og meginstoð í vöruútflutningi landsmanna.

Á Íslandi hefur verið byggt upp fiskveiðistjórnunarkerfi til að tryggja ábyrgar fiskveiðar sem fela í sér viðhald fiskistofna og góða umgengni um vistkerfi hafsins. Stjórnun fiskveiða á Íslandi byggist í aðalatriðum á víðtækum rannsóknum á fiskistofnum og vistkerfi hafsins, ákvörðunum um veiðar og afla á grundvelli vísindalegrar ráðgjafar og öflugu eftirliti með veiðum og heildarafla. Þetta eru þær meginstoðir íslenskrar fiskveiðistjórnunar sem ætlað er að tryggja ábyrgar fiskveiðar og viðhald auðlinda hafsins til framtíðar.

Upprunalogo_betraÁkveðið hefur verið að auðkenna íslenskar sjávarafurðir sem unnar eru úr afla í íslenskri lögsögu með séríslensku merki. Merkið vísar til íslensks uppruna afurðanna og ábyrgra fiskveiða. Notkun þess er heimil á öllum mörkuðum fyrir sjávarafurðir og má jafnframt nota til að auðkenna afla íslenskra fiskiskipa úr deilistofnum sem lúta heildarstjórnun.


Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta